Utanríkisráðuneytið styrkti líka mynd um flóttamenn

Utan­rík­is­ráðu­neytið styrkir mynd um komu flótta­manna um 3 millj­ónir, eins og rík­is­stjórnin. Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn er fyrr­ver­andi for­maður flótta­manna­ráðs, en líka fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður og vara­þing­maður í Framsókn.

Heim­ild­ar­mynd um mót­töku flótta­mann­anna frá Sýrlandi hefur fengið styrki bæði frá rík­is­stjórn­inni og þró­un­arvsam­vinnu­skrif­stofu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Hvor styrkur um sig eru þrjár millj­ónir króna.

Eins og Kjarninn greindi frá í gær bar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra til­lög­una upp á fundi rík­is­stjórnar í gær og var hún sam­þykkt ein­róma. Það er fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Skotta Film sem fram­leiðir mynd­ina með Árna Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi for­mann Flótta­manna­ráðs, í far­ar­broddi. Árni er líka fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Páls Pét­urs­sonar og fyrr­ver­andi vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Árni segir við RÚV að hann hafi sótt um styrki hjá nokkrum menn­ing­ar­sjóðum en hafi ekki sótt um styrk úr kvik­mynda­sjóði Kvik­mynda­mið­stöðvar þar sem slíkt hefði tekið of langan tíma. Ef hann hefði haft tíma hefði hann hins vegar gert það.

Kolbrún Hall­dórs­dóttir, for­seti Banda­lags íslenskra lista­manna og fyrr­ver­andi ráð­herra VG, setur spurn­inga­merki við styrk­veit­ingu rík­is­stjórn­ar­innar sem hún segir orka tví­mælis. „Rík­is­stjórn­inni er auð­vitað í sjálfs­vald sett hvernig hún fer með sína fjár­muni - það hefði hins vegar verið betra að setja þessa umsókn í fag­legan far­veg,“ segir hún við RÚV. Formaður félags kvik­mynda­gerð­ar­manna, Hrafn­hildur Gunn­ars­dóttir, segir styrk­inn óvenju­legan og greini­legt að málið sé mik­il­vægt fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið. Hún segir að leitað hafi verið til mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins til að styrkja heim­ild­ar­mynda­röð­ina Öldin hennar, en sá styrkur fékkst ekki.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra, sagði við Kjarnann í gær að verk­efnið hafi verið að gerj­ast í ein­hvern tíma.

„Árni fór til Líbanon og hefur fylgt fólk­inu eftir, þá sér­stak­lega þeim hópi sem fór til Akur­eyrar,” segir hann. „Hug­myndin er að gera heim­ild­ar­mynd um mót­töku og aðlögun þess­ara hópa hér á Íslandi og hvernig aðlögun gengur.”

Að sögn Jóhann­esar stendur einnig til að gera kennslu­mynd­bönd fyrir skóla og nýta verk­efnið á fleiri sviðum. Áætlað er að það taki um ár að gera.

Jóhannes bendir enn fremur á í sam­tali við RÚV að rík­is­stjórnin hafi áður lagt sitt af mörkum til menn­ing­ar­verk­efna - til að mynda fékk barna­óperan Bald­urs­brá styrk upp á 1,5 milljón fyrir sýn­ingu. Rík­is­stjórnin styrkti einnig óper­una Ragn­heiði eftir Gunnar Þórð­ar­son um þrjár millj­ónir þannig að hægt væri að taka hana upp.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er sjálfur á leið til Líbanon, þar sem hann ætlar að kynna sér aðstæður flótta­manna og starf stofn­ana Sam­ein­uðu þjóð­anna og Rauða kross­ins á svæð­inu. Síðar í vik­unni fer hann svo til London á sér­stakan leið­toga­fund um mál­efni Sýrlands.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár