Styttur bæjarins

Í þekktu lagi söng Spilverk Þjóðanna um stytt­urnar „sem eng­inn nennir að horfa á“. Í dag yrði kannski frekar sungið um styttur og götu­nöfn sem eng­inn vill vita af og helst af öllu fjar­lægja. Þar á meðal í Danmörku.

Dauði George Floyd í Minn­ea­polis, 25. maí síð­ast­lið­inn, hratt af stað bylgju mót­mæla víða um heim. George Floyd er ekki fyrsti þeldökki mað­ur­inn sem lög­regla í Banda­ríkj­unum hefur orðið að bana en mynd­band af atvik­inu vakti eflaust meiri athygli á fram­ferði lög­regl­unnar en ella hefði orðið. Mynd­bandið fór eins og eldur í sinu um víða ver­öld og fólk sem fylgist með fréttum hefur séð það margoft. Banda­rískir lög­reglu­menn hafa iðu­lega komið með alls kyns skýr­ingar á fram­ferði sínu, til dæmis að lífi þeirra hafi verið ógnað,en í til­viki George Floyd var slíku ekki til að dreifa, það sýndi og sann­aði mynd­bands­upp­takan.

Mótmæli vegna þessa atviks breidd­ust hratt út og ein­skorð­uð­ust ekki við George Floyd og dauða hans. Þau sner­ust upp í mót­mæli gegn kyn­þátta­mis­rétti og ekki síður þræla­haldi og þræla­sölu, sem margar þjóðir stund­uðu og græddu með því stórfé. Þar á meðal okkar gamla herra­þjóð, Danir. Í Danmörku hafa verið haldnir úti­fundir til að mót­mæla með­ferð­inni á George Floyd og jafn­framt vekja athygli á flekk­aðri for­tíð Dana.

Milljónir þræla yfir hafið

Á ára­bil­inu 1525 – 1866 er talið að Evr­ópu­búar hafi sam­tals flutt um það bil tólf og hálfa milljón þræla yfir Atl­ants­hafið. Á árunum 1670 -1803 fluttu Danir um það bil 111 þús­und Afr­íku­búa nauð­uga yfir hafið en Kristján VII bann­aði flutn­ing­ana árið 1802. Þræla­hald á vegum Dana hélt þó áfram fram til árs­ins 1848. Þess má geta að danski rit­höf­und­ur­inn Thorkild Hansen (1927 – 1989) hlaut árið 1971 bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs fyrir bækur sínar, Þræla­ströndin, Þræla­skipin og Þræla­eyj­arnar, sem fjalla um þennan þátt í sögu Dan­merkur.

[adspot]Þræla­salan í Afríku var ekki upp­finn­ing Evr­ópu­búa, hún á sér mun lengri sögu.

Þríhyrningsleiðin og viðskiptin

Danska þræla­versl­unin fylgdi hinni svo­nefndu þrí­hyrn­ings­leið. Þá var siglt frá höfnum í Evrópu, til hafna á vest­ur­strönd Afríku og nýlendna í Ameríku. Með þessu móti nýtt­ust straumar og vindar best og flutn­ingur á öllum leiðum. Allar sigl­ingar Dana byrj­uðu og end­uðu í Kaup­manna­höfn, í Afríku réðu Danir yfir versl­un­ar­stöðum á Gull­strönd­inni (núver­andi Gana) og í Ameríku réðu Danir þremur eyjum, hinum svo­nefndu Dönsku Vestur-Indíum. Þessar eyjar seldu Danir Banda­ríkja­mönnum árið 1917, nú nefndar Jóm­frúr­eyjar.

Frá Kaup­manna­höfn sigldu skipin hlaðin vopnum, skot­færum og brenni­víni. Þessi varn­ingur var seldur á Gull­strönd­inni en þar voru þræl­arnir, sem Danirnir „keyptu“ af höfð­ingjum á svæð­inu, teknir um borð, ásamt ýmsum varn­ingi. Þar á meðal fíla­beini sem flutt var til Dan­merkur. Þræl­arnir (margir dóu á leið­inni yfir hafið) voru seldir í þræl­dóm á kar­ab­ísku eyj­unum, Dönsku Vestur-Indíum. Eftir að skipin höfðu verið lestuð syk­ur­reyrs­sírópi, tóbaki og eðal­viði, einkum mahoní var haldið heim til Dan­merkur. Ferðir skip­anna, frá því að lagt var af stað frá Kaup­manna­höfn og komið til baka, tóku að jafn­aði um 18 mán­uði.

Í Danmörku voru nokkur fyr­ir­tæki sem högn­uð­ust mikið á þess­ari starf­semi og danska ríkið hafði af henni miklar tekjur.

Götunöfn og byggingar

Dauði George Floyd hefur komið af stað mik­illi umræðu um kyn­þátta­mis­rétti, og fram­ferði gagn­vart þeldökkum. Sú umræða hefur ekki farið fram hjá Dönum, en danskir fjöl­miðlar hafa að und­an­förnu fjallað mikið um dönsku þræla­versl­un­ina. Margir hafa, í við­tölum og fjöl­miðla­skrifum látið í ljós þá skoðun að Danir eigi að fjar­lægja styttur og breyta nöfnum gatna sem tengj­ast þræla­tíma­bil­inu í sögu lands­ins.

Í Holte, norðan við Kaup­manna­höfn er lítil og huggu­leg gata, De Conincks vej. Undir götu­heit­is­skilt­inu stendur „hand­elsm­and“ versl­un­ar­maður. Gatan er skírð eftir Hol­lend­ingnum Frederic de Coninck (1740 – 1811) sem bjó í Danmörku mestan hluta ævinnar og hafði náin tengsl við dönsku hirð­ina. Hann átti á tíma­bili 64 skip og nokkur þeirra fluttu afríska þræla til Vestur-Indía. Frederic de Coninck var um tíma eig­andi einnar hall­ar­innar á Amali­en­borg, sú er kennd við Moltke greifa. Adam Gottlob Moltke (1710 – 1792) eins og hann hét fullu nafni lét byggja höll­ina á árunum 1750 – 1754. Moltke kom mjög við sögu í þræla­versl­un­inni, var meðal ann­ars stjórn­ar­for­maður í tveimur félögum sem stund­uðu þessi við­skipti. Moltke veitti ekki af sæmi­lega rúm­góðu húsi, hann eign­að­ist 22 börn.

Í Gentofte er gata kennd við Heinrich Carl Schimmelmann (1724 -1782). Sá þén­aði vel á þræla­við­skipt­unum og átti meðal ann­ars nokkur þræla­skip og verk­smiðju í Kaup­manna­höfn þar sem unn­inn var sykur úr hrá­efni frá Vestur – Indíum. Schimmelmann var á sinni tíð einn rík­asti maður Dan­merkur og bjó frá 1762 og til ævi­loka í stór­hýsi við Breið­götu í Kaup­manna­höfn, síðar þekkt sem Oddfellowhöllin. Hér hafa aðeins verið nefnd tvö dæmi um götur og hús sem tengj­ast mönnum sem létu mjög að sér kveða í þræla­sölu Dana á 18. Öld, en mörg fleiri væri hægt að nefna. Engar raddir hafa heyrst sem vilja ganga svo langt að rífa bygg­ingar sem byggðar voru fyrir „þræla­gróða“.

Stytturnar

Í Danmörku eru til­tölu­lega fáar styttur af þeim körlum (aldrei minnst á konur í þessu sam­bandi) sem komu við sögu danskrar þræla­versl­unar. Vel að merkja með und­an­tekn­ingum. Og þær und­an­tekn­ingar eru ekki síst kóng­arnir. Af þeim eru margar styttur víðs­vegar um land. Sumar þeirra á mjög áber­andi stöðum. Á miðju torg­inu við Amali­en­borg er stytta af Friðriki V (1723 -1766) fyrir framan Krist­jáns­borg­ar­höll trónir stytta af Friðriki VII. Á miðju Kóngsins Nýja­torgi situr Kristján V á hesti sínum, óneit­an­lega lík­ari róm­verskum ridd­ara en nor­rænum þjóð­höfð­ingja. Þessir kóngar tóku beinan eða óbeinan þátt í þræla­söl­unni sem danski rík­is­kass­inn naut góðs af. Fyrir framan Kon­ung­lega leik­húsið við Kóngsins Nýjatorg situr svo leik­rita­skáldið Ludvig Holberg, hann átti víst lít­inn hlut í ein­hverju þeirra fyr­ir­tækja sem stund­uðu þræla­sölu. Fleiri dæmi mætti nefna um menn sem telj­ast stór­menni í sögu Dan­merkur en tengj­ast jafn­framt þræla­söl­unni með einum eða öðrum hætti.

Stjórn­mála­menn og sagn­fræð­ingar sem danskir fjöl­miðlar hafa rætt við að und­an­förnu telja vart koma til greina að fjar­lægja styttur sem margar hverjar hafa trónað á stalli sínum um ára­tuga skeið eða jafn­vel lengur. En á að láta sem ekk­ert sé? Nei, ekki gengur það. Nokkrir stjórn­mála­menn hafa nefnt að rétt væri að setja upp­lýs­inga­skilti við umræddar styttur. Þar kæmu fram upp­lýs­ingar um fyr­ir­mynd stytt­unnar, bæði það sem við­kom­andi hefði gert landi og þjóð til gagns og líka það sem miður gott mætti telj­ast.

Vestur-Indía pakkhúsið

Á bryggju­kant­inum skammt frá Amali­en­borg stendur háreist pakk­hús úr rauðum múr­steini, Vestur – Indía pakk­húsið. Húsið var byggt árið 1783 og þar var geymt kaffi og te sem kom frá eyjum í kar­ab­íska haf­inu. Sú starf­semi er löngu fyrir bí en í hús­inu var síðar komið fyrir hinu Kon­ung­lega afsteypusafni, sem geymir gifs­af­steypur margra frægra lista­verka víða að úr heim­inum. Safnið er í umsjón Danska rík­is­lista­safns­ins en afsteypusafn­inu var lokað fyrir nokkrum árum vegna fjár­skorts. Fyrir nokkru var greint frá því að hug­myndir væru uppi um að flytja afsteyp­urnar úr hús­inu og jafn­vel selja það. Margir urðu til að gagn­rýna þá hug­mynd og í ljósi atburða síð­ustu vikna hafa margir þing­menn lýst sig fylgj­andi því að afsteypusafnið verði áfram í hús­inu og þar verði jafn­framt opnað safn um sögu þræla­söl­unnar fyrr á tímum. Engin ákvörðun hefur verið tekin í þessum efnum.

Árið 2018 var reist stytta fyrir framan Vestur – Indía pakk­húsið. Lista­kon­urnar Jeanette Ehlers og La Vaughn Belle gerðu stytt­una til að heiðra minn­ingu Mary Thomas, hún var í for­ystu­sveit þræla sem árið 1878 gerðu upp­reisn (nefnd Fireburn) á eyj­unni St. Croix. Eftir margra daga átök var upp­reisnin bæld niður. Mary Thomas, kölluð Queen Mary, var dæmd til dauða, en þeim dómi var síðar breytt í lífs­tíð­ar­fang­elsi. Hún var send til Kaup­manna­hafnar árið 1882 og vistuð í kvenna­fang­els­inu á Krist­jáns­höfn. Fimm árum síðar var hún send til baka til Christiansted á St. Croix þar sem hún lést árið 1905.

Styttan fyrir framan Vestur -Indía pakk­húsið heitir „I am Queen Mary“ og er sögð fyrsta stytta af þeldökkri konu sem reist hefur verið í Danmörku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár