Sigríður greindi Bjarna frá því að Benedikt væri meðmælandi Hjalta í júlí

Dóms­mála­ráð­herra fékk upp­lýs­ing­arnar frá emb­ætt­is­mönnum, og taldi sig geta látið Bjarna hafa þær upp­lýs­ingar.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra, upp­lýsti Bjarna Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, um það í júlí, að Benedikt Sveins­son, faðir hans, væri meðal með­mæl­enda Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, dæmds barn­a­níð­ings, sem nauðg­aði og mis­þyrmdi stjúp­dóttur sinni í tólf ár og hlaut fyrir það dóm í Hæsta­rétti. Brotin áttu sér stað þegar stúlkan var 5 til 17 ára.

Þetta kemur fram á vef Vísis, en vef­ur­inn greindi fyrstur miðla frá því í dag, að Benedikt Sveins­son hefði verið meðal þeirra sem mæltu með upp­reist æru fyrir Hjalta. Viðtalið við Sigríði var birt í fréttum Stöðvar 2.

Þetta kom fram í við­tali við Sigríði Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, í beinni útsend­ingu í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Hún sagði að emb­ætt­is­menn hefðu henni greint henni frá því í lok júlí að faðir Bjarna væri á meðal umsagn­ar­að­ila Hjalta. Hún hefði talið rétt að láta for­sæt­is­ráð­herra vita af því.

„Hann kom algjör­lega af fjöllum,“ sagði Sigríður í við­tali við Stöð 2 og Vísi.

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur enn ekki birt gögnin um votta þeirra sem hafa fengið upp­reist æru, líkt og úrskurður úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál segir til um. Einungis hafa verið birt gögnin í máli Roberts Downey, sem var til umfjöll­unar í fyrr­nefndu máli. En upp­lýs­inga­full­trúi ráðu­neyt­is­ins, Jóhannes Tómasson, hefur upp­lýst um að unnið sé að því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár