Ráðuneytið neitar að afhenda skýrslu um Bessastaði

Raka­skemmdir og mygla fund­ust í íbúð­ar­húsi for­set­ans á Bessa­stöðum. For­sæt­is­ráðu­neytið neitar að afhenda skýrslu um ástand íbúð­ar­húss­ins, meðal ann­ars á grund­velli örygg­is­sjón­ar­miða

For­sæt­is­ráðu­neytið neitar að afhenda Kjarn­anum skýrslu um ástand húsa á Bessa­stöðum, bústað for­seta Íslands. Ráðu­neytið ber því við að ekki sé hægt að opin­bera myndir og inn­rétt­ingar, sem koma fram í skýrsl­unni, meðal ann­ars vegna örygg­is­sjón­ar­miða. Þá segir enn fremur í svar­inu frá ráðu­neyt­inu, að sést hafi ummerki um myglu­vöxt á afmörk­uðum svæðum og raka­skemmdir séu sjá­an­legar.

Öryggissjónarmið og einkahagsmunir

Þetta kemur fram í svari Stefáns Thors, húsa­meist­ara rík­is­ins, við fyr­ir­spurn Kjarnans um skýrslu sem unnin var um ástand húsa á Bessa­stöðum. „For­sæt­is­ráðu­neytið telur sig ekki geta orðið við beiðni fjöl­miðla um að afhenda skýrsl­una vegna örygg­is­sjón­ar­miða, sbr. 1. tölul. 10. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012, og einka­hags­muna, sbr. 9. gr. upp­lýs­inga­laga. Í skýrsl­unni eru teikn­ingar af hús­inu og ljós­myndir sem sýna hönnun og inn­rétt­ingar sem ekki er talið for­svar­an­legt að afhenda vegna örygg­is­sjón­ar­miða. Þá er hér um að ræða íbúð­ar­hús­næði for­seta Íslands og skýrslan unnin á meðan fyrr­ver­andi for­seta­hjón [Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff] bjuggu í því. Upp­lýs­ingar í skýrsl­unni kunna þar af leið­andi að falla að ein­hverju marki undir 9. gr. upp­lýs­inga­laga,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

For­seta­hjónin Guðni Th. Jóhann­es­son og Eliza Jean Reid gátu ekki flutt inn í íbúð­ar­hús for­set­ans þar sem sinna þurfti við­haldi fyrst. Í svari Stefáns kemur fram að skemmdir á hús­inu hafi meðal ann­ars verið vegna raka og myglu. „Við úttekt mátti sjá vís­bend­ingar um að þétt­ingar utan með gluggum væru farnar að gefa sig og ummerki um raka á par­k­eti má lík­lega rekja til leka frá gluggum. Í ljós kom einnig að raka­vörn á efri hæð er að hluta til óþétt auk þess sem loftun þaks­ins er sums­staðar tak­mörkuð þar sem ein­angrun leggst alveg upp að borða­klæðn­ingu. Sjá mátti ummerki um myglu­vöxt á borða­klæðn­ingu á afmörk­uðum svæðum,“ segir í svari Stefáns.

Meta loftgæði

Enn fremur kemur fram að mark­miðið með úttekt á hús­inu hafi verið að meta loft­gæði í helstu íveru­rýmum, og þá hvort raki og mygla væru að valda óheil­brigðu loft. „Markmið þeirrar úttektar á raka sem gerð var á hús­inu var að meta loft­gæði í helstu íveru­rýmum m.t.t. heil­brigðrar inni­vistar og kanna hvort raka­vanda­mál væru til staðar. Íbúð­ar­hús for­seta Íslands á Bessa­stöðum var tekið í notkun árið 1996 og því ýmis­legt sem þarf að yfir­fara en almennt er það mat iðn­að­ar­manna sem vinna að lag­fær­ingum að ástand húss­ins sé mjög gott. Það breytir auð­vitað ekki því að það er ýmis­legt sem þarf að gera. Á grund­velli skýrslu sér­fræð­inga er að hægt að afmarka þá staði sem þarf að lag­færa sér­stak­lega og verður m.a. gert við glugga. Það liggja ekki fyrir end­an­legar nið­ur­stöður ástand eða nauð­syn­legar aðgerðir en þó stað­fest að ekki hefur fund­ist fúi,“ segir í svari Stefáns.

Koma til móts við nýja tíma

Stefán segir enn­fremur að unnið sé að end­ur­bótum og breyt­ingum á hús­inu á Bessa­stöðum til að koma til móts við þarfir nýju for­seta­fjöl­skyld­unnar sem nú flytur í húsið, en Guðni og Eliza eiga fjögur börn saman á leik­skóla- og barna­skóla­aldri. „Það er lögð áhersla á að vinna end­ur­bætur á hús­inu og koma í veg fyrir raka og myglu eins vel og kostur er en ljóst að það muni taka nokkrar vikur,“ segir í svari Stefáns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár