Opinn fundur undirbúningskjörbréfanefndar á mánudaginn

Und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréfa hefur boðað Hafstein Þór Hauksson, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands, á opinn fund eftir helgi.

Birgir Ármannsson er formaður nefndarinnar.
Birgir Ármanns­son er for­maður nefnd­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Und­ir­bún­ings­nefnd fyrir rann­sókn kjör­bréfa heldur opinn fund næst­kom­andi mánu­dag klukkan 10:30. Þetta kemur fram á vef Alþingis.

Fund­ar­efnið er und­ir­bún­ingur fyrir rann­sókn kjör­bréfa og gestur fund­ar­ins verður Haf­steinn Þór Hauksson, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands.

Fund­ur­inn verður hald­inn í hús­næði nefnda­sviðs Alþingis í Aust­ur­stræti og verður opinn full­trúum fjöl­miðla og almenn­ingi meðan hús­rúm leyfir. Bein útsend­ing verður frá fund­inum á vef Alþingis og á sjón­varps­rás Alþingis á dreifi­kerfum Símans og Vodafone, að því er fram kemur á vef Alþingis.

[links]Nefndin hefur það hlut­verk að skoða gildi kosn­ing­anna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og önnur álita­mál en álit nefnd­ar­innar verður síðan borið undir atkvæða­greiðslu í þing­inu.

Und­ir­bún­ings­nefndin er skipuð eftir þing­styrk flokka. Viðreisn og Mið­flokk­ur­inn fengu ekki sæti í nefnd­inni heldur ein­ungis áheyrn­ar­full­trúa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með þrjá nefnd­ar­menn, þau Birgi Ármanns­son, Vilhjálm Árnason og Diljá Mist Ein­ars­dóttur. Birgir er jafn­framt for­maður nefnd­ar­innar.

Framsókn er með tvo nefnd­ar­menn, þau Líneik Önnu Sæv­ars­dóttur og Jóhann Friðrik Frið­riks­son. Inga Sæland er í nefnd­inni fyrir hönd Flokks fólks­ins, Svandís Svav­ars­dóttir fyrir Vinstri græn, Björn Leví Gunn­ars­son fyrir Pírata og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir fyrir Sam­fylk­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár