Tilvistarkreppa stjórnmálanna

Sjö fyrr­ver­andi ráð­herrar sam­mæl­ast um að mjög margt megi betur fara í íslenskum stjórn­málum og að ýmis­legt hafi breyst til hins verra frá því þau yfir­gáfu Alþingi.

Umræðan um van­traust til Alþingis, arfa­slaka stjórn­mála­menn sem ekki eru starfi sínu vaxnir og óvenju­legt póli­tískt lands­lag hefur sjaldan verið hávær­ari en nú. Að minnsta kosti ekki eins áber­andi. Enda er lands­lagið all­sér­stakt. Píratar tróna efstir á toppum skoð­ana­kann­anna mán­uðum saman og fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins er nán­ast í sögu­legu lág­marki. Vin­sæl­asti stjórn­mála­mað­ur­inn, Katrín Jak­obs­dóttir, leiðir einn óvin­sælasta stjórn­mála­flokk­inn, Sam­fylk­ingin er við það að þurrkast út og fram­tíðin virð­ist heldur ekki björt fyrir afsprengi Besta flokks­ins, Bjarta fram­tíð. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur helm­ing­ast frá kosn­ingum.

Aldrei hafa fleiri viljað titla til sér­fræð­inga og jafn­vel álits­gjafa í umræð­unni en nú. Allir virð­ast hafa eitt­hvað til mál­anna að leggja og koma meira að segja stundum með til­lögur um hvað megi betur fara.

En hvernig birt­ist stjórn­mála­á­standið þeim sem setið hafa í stólum þeirra ráða­manna sem sæta gagn­rýn­inni nú? Geta þau miðlað reynslu sinni og bent á umbætur, eða hefur þetta kannski bara alltaf verið svona?

„Það er eitt og hálft ár eftir af kjör­tíma­bil­inu. Það getur margt gerst og það mun margt ger­ast,” segir Álf­heiður Inga­dóttir. Hún horfir til tíma­bils Reykja­vík­ur­list­ans í borg­inni, sem Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir leiddi. „Hann var búinn til á jafn­ræð­is­grunni þar sem fólk sam­ein­að­ist um grund­vall­ar­at­riði og nýttu atkvæðin betur,” segir Álf­heiður. „Ég held að eitt­hvað eins og Reykja­vík­ur­list­inn þurfi að ger­ast og muni ger­ast.”

Hún segir sam­fé­lagið ein­kenn­ast af eins­máls­hyggju og eins­konar sýni­þörf í stjórn­mál­unum, þar sem allir vilja koma sér á fram­færi og skili þar af leið­andi ekki þeim árangri sem þarf.

Ég bíð eftir því að þessi rík­i­s­tjórn fari, hún er að éta þetta sam­fé­lag að innan.

Að mati Álf­heiðar hefur núver­andi rík­is­stjórn reynt að breyta sam­fé­lag­inu til baka í það sem var fyrir hrun. „Og mér finnst það ganga allt of vel,” segir hún. „Þögn, leynd og lítil eft­ir­fylgni í fjöl­miðlum hjálpar ekki til. Ég bíð eftir því að þessi rík­i­s­tjórn fari, hún er að éta þetta sam­fé­lag að innan.” 

Hvað er til ráða?

„Samstarf á vinstri vængnum með sam­eign­lega sýn á helstu grund­vall­ar­at­riðin í anda Reykja­vík­ur­list­ans," segir Álf­heiður.

Ásta Ragn­heiður segir mikil við­brigði hafa orðið á þing­inu eftir hrun og áhrifin úr sam­fé­lag­inu náð betur eyrum fólks. Eftir hrunið beindi fólk reiði sinni að þing­inu þótt þar sæti fólk sem það hefði sjálft veitt umboð til að fara með lög­gjaf­ar­valdið.

Það vilja allir hafa þjóð­þing og lýð­ræð­is­legt stjórn­ar­far. Það er ekki van­traust á það, heldur er þetta afstaða fólks til þing­manna.

„Fólk lét í sér heyra og það urðu gíf­ur­lega miklar breyt­ingar,” segir hún. „Almenn­ingur lá ekki lengur á skoð­unum sínum og reiðin varð mjög sýni­leg. Og ég held að það sé bara ekki komin ró.”

Ásta Ragn­heiður telur fólk ekki bera van­traust til Alþingis sem stofn­unar, heldur frekar til fólks­ins sem þar situr.

„Það vilja allir hafa þjóð­þing og lýð­ræð­is­legt stjórn­ar­far. Það er ekki van­traust á það, heldur er þetta afstaða fólks til þing­manna. Sem er ef til vill ekki að öllu leiti sann­gjarnt. Þetta ástand í stjórn­málum er ekki ein­ungis hér á landi heldur víðar í hinum vest­ræna heimi."

Hvað er til ráða?

„Tíminn mun von­andi vinna með þing­inu þar sem það er afar mik­il­vægt að það ríki sátt og traust um lög­gjaf­ar­sam­kund­una," segir Ásta Ragn­heiður. „Sam­fé­lagið er enn í sárum eftir hrunið."

„Staðan í dag ber nokkurn svip upp­náms, einkum hjá stjórn­ar­and­stöð­unni,” segir Björn. „Stjórn­ar­flokk­arnir hafa náð veru­legum árangri við stjórn efna­hags­mála en að öðru leyti sópar lítið að þeim. Takist þeim að sigla þjóð­inni út úr höft­unum og ná settu marki mun það styrkja stjórn­ar­flokk­ana, ekki síst Sjálf­stæð­is­flokk­inn og for­mann hans.”

Ótti við að ekki sé unnt að leiða mál til lykta á lýð­ræð­is­legan hátt virð­ast fæla ráð­herra frá að leggja mál fyrir þingið.

Það kemur Birni á óvart að ekki hafi skap­ast meira jafn­vægi í störfum Alþingis og hve grunnt umræður rista. „Vissu­lega er unnt að skella skuld­inni á þing­sköpin en eitt­hvað meira ræður þeim upp­náms­blæ sem ein­kennir Alþingi,” segir hann. Fjöldi mála sé er ekki mæli­kvarði þegar rætt er um þingið heldur hvernig tekst að leiða þau til lykta.

„Ótti við að ekki sé unnt að leiða mál til lykta á lýð­ræð­is­legan hátt virð­ist fæla ráð­herra frá að leggja mál fyrir þingið. Í þessu birt­ist í senn van­trú á þing­inu og skortur á ein­beittri for­ystu stjórn­ar­flokk­anna.”

Hvað er til ráða?

Björn segir að Íslend­ingar eigi að horfa til nágranna­land­anna þar sem mun fleiri þing­menn sitja en hér á landi. Þar séu dæmi sem sýni að þrátt fyrir ágrein­ing ganga menn skipu­lega til verks til að kom­ast að nið­ur­stöðu. „Ætla mætti að hér teldu alþing­is­menn það til marks um eigin ves­al­dóm að vinna á þennan hátt," segir hann.

„Þrátt fyrir tíma­bund­inn árangur í efna­hags­málum, sem er nán­ast allur utan­að­kom­andi happ­drætt­is­vinn­ingur í auð­lindum og túrisma, þá er íslenskt þjóð­fé­lag í kreppu,” segir Jón Baldvin og nefnir flokka­kerfið sem dæmi. „Menn undr­ast hversu lengi Píratar geta haldið uppi fylgi í skoð­un­ar­könn­unum og bak við það er fyrst og fremst ein grund­vall­ar­breyt­ing sem gæti fest sig í sessi: Að stór­veld­is­tíma­bili Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé lokið,” segir hann.

Sam­fylk­ingin er í rúst eftir mesta ósigur stjórn­mála­sög­unnar vegna mis­taka rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur. Vinstri græn eru föst í lam­andi fari þar sem þau eru í aðra hönd­ina Fram­sókn­ar­flokkur án gjafa land­bún­að­ar­kerf­is­ins.

Vinstrið sé líka í mik­illi krísu. „Sam­fylk­ingin er í rúst eftir mesta ósigur stjórn­mála­sög­unnar vegna mis­taka rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur. Vinstri græn eru föst í lam­andi fari þar sem þau eru í aðra hönd­ina Fram­sókn­ar­flokkur án gjafa land­bún­að­ar­kerf­is­ins,” segir hann. „Síðan er hinn pópúl­íski Fram­sókn­ar­flokkur, um hann er ekki hægt að tala nema út frá spurn­ingum um aug­lýs­inga­stofu, hvaða trikk þau taka næst til að forða sér frá dauða. Það hefur virkað hingað til.”

Hvað er til ráða?

Jón Baldvin telur mik­il­væg­ast að end­ur­skoða stjórn­ar­skránna og stjórn­kerfið sem heild. Vinstri­væng­ur­inn geti sam­ein­ast í því að fá auð­linda­á­kvæðið inn í stjórn­ar­skránna og færa þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu­vald til fólks­ins.

„Pírat­arnir eru ekki bara bóla, þeir eru komnir til að vera,” segir Val­gerður. „Þeir eru að sækja fylgi alls staðar að og það sem passar ekki við gamla tím­ann, þegar flokk­arnir áttu að vera með stefnu, er að þeir eru ekki með neina aðra en þá að þjóðin þurfi nýja stjórn­ar­skrá. Og ég trúi því ekki að núver­andi stjórn­ar­flokkar ætli að afhenda sig­ur­inn í næstu kosn­ingum með því að draga lapp­irnar með breyt­ingar á stjórn­ar­skrá. Þetta gengur ekki svona í breyttu þjóð­fé­lagi.”

Val­gerður segir hina hefð­bundu flokka ekki ná í gegn til fólks­ins og er sann­færð um að stjórn­ar­skráin spili þar stórt hlut­verk.

Pírat­arnir eru ekki bara bóla, þeir eru komnir til að vera.

„Þó að hægt sé að segja að rík­is­stjórnin hafi gert margt gott og staðið við stóru orðin í skulda­nið­ur­fell­ingu, losun hafta og efna­hags­mál­unum almennt, þá nær það ekki í gegn,” segir hún. „Hér áður fyrr, ef hægt var að benda á nokkur atriði sem rík­is­stjórnin hafi gert sem var hún bara í góðum málum.”

Hún segir vinnu­brögðin á Alþingi breytt.

„Það átti nú allt að batna með því að fá nógu mikið af nýju fólki inn, en því miður hefur það ekki gerst,” segir hún. „Og það er mjög baga­legt fyrir Alþingi sem stofnun, sem mér þykir afar vænt um.”

Hvað er til ráða?

„Áður fyrr gátu menn talað saman. Það vantar taug­arnar sem voru áður á milli flokk­anna, á milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu," segir Val­gerður. Þingmenn þurfi að taka höndum saman um breyttar aðferðir. „Þetta gengur ekki svona."

Hin sér­staka póli­tíska staða sem komin er upp á Íslandi er ekki bundin við land­stein­ana, heldur er hún orðin afar óvenju­leg víða, að mati Þor­gerðar Katrínar. 

„Ég held því að gömlu flokk­arnir hafi setið eftir með orð­ræðu sem var skilj­an­leg á öðrum tíma sem er ekki lengur,” segir hún og und­ir­strikar þá miklu breyt­ingu sem hefur orðið í Evrópu á und­an­förnum ára­tug. Hún nefnir þar hinar ýmsu fleka­hreyf­ingar, flótta­manna­vand­ann og upp­gang öfga-Islam. 

„Jarð­vegur til pop­u­l­isma er frjórri nú en áður og það skiptir miklu máli að þeir sem bera ábyrgð og eru í for­ystu - falli ekki falla í þá gryfju.”

Hún segir núver­andi rík­is­stjórn standa sig vel.

Jarð­vegur til pop­u­l­isma er frjórri nú en áður og það skiptir miklu máli að þeir sem bera ábyrgð og eru í for­ystu - falli ekki í þá gryfju.

„Hún stendur sig mjög vel í ákveðnum verk­efnum eins og afnámi hafta og lög um opin­ber fjár­mál,” segir hún. „En það skortir sýn á stóru mynd­ina eins og að ýta undir fram­leiðni­aukn­ingu í sam­fé­lag­inu.” 

Mögulega sé verið að hlaða upp í nýja geng­is­fell­ingu innan ein­hverra miss­era.

„Það er ekki verið að und­ir­búa lang­tíma­stöð­ug­leika með nægi­lega skýrum hætti. Þegar geng­is­fell­ingin kemur og það verður míníkrísa, þá er ekki ólík­legt að menn líti til áranna 2015 til 2016 hvað var gert til að byggja stoðir í sam­fé­lag­inu.”

Hvað er til ráða?

Þor­gerður segir að það þurfi að end­ur­skoða vinnu- og verk­reglur Alþingis til að ná betri takti við nútím­ann. Þá þurfi að kynna starf Alþingis betur fyrir þing­mönnum sjálfum og þjóð­inni allri. „Formenn flokk­anna verða að sam­ein­ast um mik­il­væg mál eins og hefur gerst að hluta til í jafn­rétt­is­málum og lofts­lags­málum," segir hún. Heil­brigð­is­mál væru þar efst á lista.

Það er ekk­ert nýtt að rík­is­stjórnin komi seint fram með mál, eins og hún hefur sætt gagn­rýni fyrir að gera und­an­farið, að mati Þor­steins. Slíkt eigi þó ekki endi­lega að setja mik­inn svip á umræður í þing­inu.

„Ég sakna þess að það skuli ekki vera dýpri umræður, til að mynda um efna­hags­mál, sem skila sér til almenn­ings,” segir hann. „Svo hefur það verið að ger­ast á löngum tíma í þing­inu að ráð­herrar eru minna við heldur en áður var, jafn­vel í umræðum um eigin mál.”

Svo hefur það verið að ger­ast á löngum tíma í þing­inu að ráð­herrar eru minna við heldur en áður var, jafn­vel í umræðum um eigin mál.

Upp­gangur í efna­hags­líf­inu eigi rætur að rekja til ferða­þjón­ust­unnar.

„Við venju­legar aðstæður ætti rík­is­stjórnin að njóta þess í meira mæli en sýn­ist í skoð­ana­könn­unum. Kannski gerir fólk sér grein fyrir því að það eru veik­leikar í stöð­unni,” segir hann og bætir við að upp­sveiflan byggi á minni fram­leiðni­aukn­ingu heldur en í fyrri upp­sveiflum.

„Það er meira mis­rétti á fjár­mála­mark­aði hér en ann­ars staðar, þar sem stærstu útflutn­ings­fyr­ir­tækin starfa utan hag­kerf­is­ins, en aðrir eru bundnir,” segir hann. „Mis­skipt­ing af þessu tagi hlýtur að koma niður á stjórn­ar­flokk­unum, enda er þetta það fyr­ir­komu­lag sem þeir verja hvað stífast.”

Hvað er til ráða?

„Menn þurfa að vanda sig í umræð­unni. Ekki þannig að þeir séu alltaf sam­mála, það væri hættu­merki, en það þarf dýpri og mál­efna­legri umræðu," segir Þor­steinn. „En það ger­ist ekki nema þing­menn hafi á því áhuga."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár