Valkvæðar aðgerðir hefjast fyrr en ráðgert var

„Nú virð­ist sem að við séum komin á lygn­ari sjó varð­andi far­ald­ur­inn,“ segir Alma Möller land­læknir. Val­kvæðar aðgerðir verði því gerðar fljót­lega á ný og til­slak­anir á heim­sókn­ar­banni á hjúkr­un­ar­heim­ili eru í vinnslu.

Alma Möller, landlæknir.
Alma Möller, land­læknir. Mynd: Lögreglan

„Við sem sam­fé­lag ákváðum í byrjun að standa vörð um þau gildi sam­fé­lags­ins að hlúa að þeim sem eru veikir fyrir og fara saman í gegnum það sem framundan væri,“ sagði Alma Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag.

Í und­ir­bún­ingi heil­brigð­is­kerf­is­ins við að takast á við far­ald­ur­inn hafi þrennt skipt máli. Í fyrsta lagi að tryggja öryggi starfs­manna, að starfs­fólk hefði þá þekk­ingu og leið­bein­ingar sem þurfti og sér­stak­lega að fólk hefði greiðan aðgang að við­eig­andi hlífð­ar­bún­aði. Það tókst hér á landi en því miður ekki í ýmsum öðrum löndum heims

Í öðru lagi var ákveðið að hlúa að þeim sem myndu veikj­ast af COVID-19 og að árangur með­ferð­ar­innar yrði eins góður og mögu­legt væri. „Við erum ekki komin fyrir vind og ekki búin að gera upp árang­ur­inn,“ sagði Alma en að ljóst væri að tek­ist hefði að sveigja kúr­f­una og forða því að hér skylli á far­aldur eins og gerð­ist til dæmis á Norður-Ítalíu.

Í þriðja lagi ein­settu yfir­völd sér að tryggja aðra nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu og að breyta þar for­gangs­röðun. Þegar ákveðið var 22. mars að fresta val­kvæðum skurð­að­gerðum og ífar­andi rann­sóknum eins og spegl­unum var ekki ljóst hvaða stefnu far­ald­ur­inn myndi taka. Ákveðið var að fresta öllu því sem ekki gat beðið í átta vikur.

[links]„En nú virð­ist sem að við séum komin á lygn­ari sjó varð­andi far­ald­ur­inn,“ sagði Alma en benti á að far­ald­ur­inn næði ekki toppi í inn­lögnum á sjúkra­hús og gjör­gæslu­deildir fyrr en um næstu helgi. „Ef svo heldur sem horfir þá mun ég í byrjun næstu viku mæl­ast til þess að leyft verði að hefja aftur þessar val­kvæðu aðgerðir,“ sagði Alma. Að rúmri viku lið­inni er því mögu­legt að þær hefj­ist á ný.

Alma sagði einnig á fund­inum að í vinnslu væru til­slak­anir á heim­sókn­ar­tak­mörk­unum á hjúkr­un­ar­heim­ili. Upp væru komnar margar góðar hug­myndir og nið­ur­staða mun liggja fyrir og verða til­kynnt í næstu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár