„Megum ekki láta veiruna yfirtaka allt“

Engin smit hafa greinst hér á landi hjá fólki sem ekki var á skíðum í Ölpunum eða í nánu sam­neyti við þá ferða­langa. Öll skíða­svæði í Ölpunum eru nú áhættu­svæði og Íslend­ingar eru beðnir að sleppa ónauð­syn­legum ferðum þangað.

Sextíu manns hafa nú greinst með nýju kór­ónu­veiruna hér á landi. Öll smitin má rekja til skíða­svæða í Ölpunum og því hefur verið ákveðið að útvíkka áhættu­svæðið og hvetja fólk til að fara þangað ekki að nauð­synja­lausu. Mögulega eru um þús­und Íslend­ingar á þessum skíða­svæðum á hverjum tíma.

Ljóst er að 27 þeirra sem greinst hafa með veiruna hér á landi smit­uð­ust á Norður-Ítalíu og 22 á skíða­svæði í Aust­ur­ríki. Einn smit­að­ist í Asíu og tíu inn­an­lands­smit hafa greinst.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir sagði á blaða­manna­fundi almanna­varna, land­læknis og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í dag að oft snemmt væri að full­yrða hvaða árangri þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hér á landi hafi skilað. Hins vegar væri ljóst að þeir ein­stak­lingar sem hingað hefðu komið smit­aðir hefðu allir fund­ist og einnig þau smit sem orðið hefðu vegna sam­neytis við það fólk.

Smit hjá öðrum hafa ekki fund­ist. Því má að sögn Þórólfs segja að þær aðgerðir sem þegar hefur verið beitt virð­ast hafa borið árangur enn sem komið er.

Öll smitin má rekja til skíða­svæða í Ölpunum og sömu sögu er að segja frá smitum sem greinst hafa á hinum Norð­ur­lönd­unum. Á þeim grunni er talið nauð­syn­legt að útvíkka áhættu­svæðið svo það nái til allra skíða­svæða í Ölpunum. Eru Íslend­ingar hvattir til að fara ekki á þessi svæði að nauð­synja­lausu, segir Þórólfur.

Land­svæðin sem nú bæt­ast við eru eft­ir­far­andi:

Aust­ur­ríki: Vor­arl­berg, Tirol, Salzburg og Kärnten.

Sviss: Valais, Bernese Oberland, Ticino og Graubünden.

Þýska­land: Skíða­svæði í Suður Bæj­ara­landi.

Frakk­land: Provence-Alpes-Côte d'Azur og Auvergne-Rhône-Alpes.

Slóvenía: Öll skíða­svæði.

Þessi svæði bæt­ast við áður­nefnd áhættu­svæði sem eru Kína, Suður-Kórea, Íran og Norður-Ítalía auk Ischgl í Aust­ur­ríki.

Allir frá þessum svæðum þurfa í sóttkví

Íslend­ingar sem hafa dvalið á þessum svæðum frá 29. febr­úar eiga að fara í 14 daga sótt­kví frá því að þeir yfir­gáfu við­kom­andi svæði. Þeir sem hafa verið á þessum svæðum og finna til ein­kenna eru hvattir til að hafa sam­band við síma 1700, til­greina að þeir hafi verið á hættu­svæði og fá ráð­gjöf um næstu skref.

Ljóst er að fjöldi Íslend­inga er á þessum svæðum nú um stundir, mögu­lega um þús­und manns. Eru þeir hvattir til að skrá sig i grunn borg­ara­þjón­ust­unnar sem nálg­ast má á heima­síðu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Allir eiga að fara í sótt­kví, jafn­vel þó að margar dagar séu liðnir frá heim­komu, því jafn­vel örfáir dagar í sótt­kví geta skipt sköpum fyrir heilsu ann­arra, segir í upp­lýs­ingum almanna­varna.

[links]Þórólfur sagði spurn­ingar hafa vaknað um hvort að mikið sam­fé­lags­smit sé í gangi og á þeim grunni sé hafið sam­starf við Íslenska erfða­grein­ingu og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans. Fólk verði fengið til að koma í sýna­töku til að fá góða mynd af því hvort að veiran sé algeng­ari í sam­fé­lag­inu en vitað er núna. Að sögn Þórólfs mun þessi skimun von­andi hefj­ast í vik­unni.

Í kjöl­farið ætti að fást góð mynd af því til hvaða aðgerða beri að grípa næst.

Alma Möller land­læknir sagði að hröð fjölgun smita í norð­an­veðri Evrópu væri áhyggju­efni. Hún sagði heil­brigð­is­yf­ir­völd hér á landi því búa sig undir þá sviðs­mynd að smitum fjölgi og að fólk komi til með að veikj­ast meira. Enginn þeirra sem nú hefur greinst með veiruna er með alvar­leg ein­kenni og sumir eru nær ein­kenna­lausir.

Verðum að vera yfirveguð

„Við megum ekki láta veiruna yfir­taka allt,“ sagði Alma. „Við verðum að vera yfir­veguð,“ og leita eftir að veita alla nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu. Allir vilji sam­ein­ast um að slá skjald­borg um við­kvæm­ustu hópana, þá sem eru veikir fyrir og aldr­aðir. „Við verðum að passa að það verði ekki rof í heil­brigð­is­þjón­ustu þessa fólks.“

Brýndi hún fyrir fólki að afpanta ekki tíma sem það á bók­aða hjá læknum nema að höfðu sam­ráði við sína lækna.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði að enn væri verið að skoða hvenær gripið verði til sam­komu­banns og benti á að slíkum tak­mörk­unum þurfi að beita á réttum tíma, með réttum hætti og á réttum stöðum. Ekki sé t.d. víst að það muni ná til alls lands­ins. Verið sé að rýna í reynslu ann­arra og taka skyn­sam­leg­ustu ákvörð­un­ina byggða á vís­inda­legum grunni.

Þórólfur sagði að leitað væri ráða hjá alþjóða­stofn­unum í þessum efnum. Ítrekaði hann að mestu máli skiptu þær aðgerðir sem fólk almennt gripi til til að koma í veg fyrir sam­fé­lags­smit. Það skil­aði miklu meiri árangri en boð og bönn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár