Ber að fjalla um hugsanlega áfangaskiptingu Hagavatnsvirkjunar

Íslenskri vatns­orku ehf. ber að sögn Orku­stofn­unar að fjalla um hugs­an­lega áfanga­skipt­ingu fyr­ir­hug­aðrar Haga­vatns­virkj­unar í frum­mats­skýrslu. Þá ber fyr­ir­tæk­inu einnig að bera saman 9,9 MW virkjun og fyrri áform um stærri virkj­anir.

Hugmyndir um að hækka vatnsborð Hagavatns með því að stífla útfall þess, Farið, eru ekki nýjar af nálinni.
Hug­myndir um að hækka vatns­borð Haga­vatns með því að stífla útfall þess, Farið, eru ekki nýjar af nál­inni. Mynd: Ellert Grétarsson

Orku­stofnun segir að í frum­mats­skýrslu um umhverf­is­á­hrif fyr­ir­hug­aðrar Haga­vatns­virkj­unar sunnan Lang­jök­uls beri að fjalla um og bera saman mis­mun­andi útfærslur á virkj­un­ar­kostum, þar með talið hugs­an­lega áfanga­skipt­ingu virkj­unar á síð­ari stigum.

[links]Í til­lögu að mats­á­ætlun um Haga­vatns­virkjun, sem Mannvit vann fyrir Íslenska vatns­orku ehf. og lögð var fram til kynn­ingar hjá Skipu­lags­stofnun í lok síð­asta árs, er fjallað um 9,9 MW virkjun. Það er rétt undir þeim mörkum sem kalla sam­kvæmt lögum á með­ferð hjá verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar. Í til­lög­unni kemur ekki fram hvort um sé að ræða fyrsta áfanga en rann­sókn­ar­leyfi sem Orku­stofnun end­ur­nýj­aði í fyrra mið­ast við 18 MW. Í við­tali við fram­kvæmda­stjóra Íslenskrar vatns­orku í Morg­un­blað­inu á síð­asta ári kom fram að 9,9 MW virkjun væri fyrsti áfangi verk­efn­is­ins.

Líkt og Orku­stofnun bendir á í umsögn sinni liggur fyrir til­laga um 20 MW Haga­vatns­virkjun í þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar og í umsókn um rann­sókn­ar­leyfi sem stofn­unin gaf árið 2013 eru tvær kostn­að­ar­á­ætl­anir, ann­ars vegar fyrir 20 MW virkjun og hins vegar 35 MW. Þriðji áfangi ramma­á­ætl­unar hefur enn ekki verið afgreiddur á Alþingi. Verk­efna­stjórn skil­aði til­lögum af sér í ágúst 2016 og þar var 20 MW Haga­vatns­virkjun sett í bið­flokk.

Orku­stofnun vekur athygli á því að í nýju mats­á­ætl­un­inni er ekki til­greint hvers vegna til­högun 9,9 MW virkj­unar er lögð fram nú og að ekki sé heldur tekið fram að gerður verði sam­an­burður milli mis­mun­andi útfærsla á virkjun sem þegar hafi verið álitnir raun­hæfir.

Með vísan til mark­miða um þjóð­hags­lega hag­kvæmni raf­orku­kerf­is­ins í raf­orku­lögum og mark­miðs í lands­skipu­lags­stefnu um sjálf­bæra nýt­ingu orku­linda telur Orku­stofnun að í frum­mats­skýrslu, sem er næsta skref í skipu­lags­ferl­inu, beri að fjalla um og bera saman mis­mun­andi útfærslur og hugs­an­lega áfanga­skipt­ingu.

Þó að megawött Haga­vatns­virkj­unar séu í nýj­ustu til­hög­un­inni færri en áður stóð til er umfang fram­kvæmd­ar­innar sjálfrar sam­bæri­legt. Stíflur eru jafn margar, jafn háar og svipað langar og miðl­un­ar­lónið sem yrði til með stíflun Haga­vatns yrði jafn stórt.

Í athuga­semdum nátt­úru­vernd­ar­sam­taka er það sem þau telja upp­brot fram­kvæmd­ar­innar harð­lega gagn­rýnt og sagt óheim­ilt. Ekki verði betur séð en að um sömu fram­kvæmd og áður sé að ræða. „Dagljóst er að fram­kvæmd­ar­að­ili reynir með und­an­brögðum að kom­ast hjá því að fara að gild­andi lögum í land­inu,“ segir í athuga­semd Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Suð­ur­lands. „Heildar umhverf­is­á­hrif fram­kvæmda vegna fyr­ir­hug­aðrar 18 MW Haga­vatns­virkj­unar er það sem metið skal, í einu lagi.“

Ólafur Örn Har­alds­son, for­seti Ferða­fé­lags Íslands sagði í við­tali við Kjarnann í vetur að það væri „hrein ósvífni“ og til marks um „fúsk og fag­legt sið­leysi“ að Íslensk vatns­orka reyni að „svindla sér fram hjá fag­legri skoðun“ með því að leggja fram til­lögu að Haga­vatns­virkjun rétt undir þeim stærð­ar­mörkum sem kalli á með­ferð í ramma­á­ætlun um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða. Á sama tíma sé boðað að aðeins sé um fyrsta áfanga að ræða. Til standi að stækka virkj­un­ina með því að nýta vatna­svið Jarl­hettu­kvíslar sem er á milli Lang­jök­uls og móbergs­hryggj­ar­ins Jarl­hetta.

Hann segir miklu nær að frið­lýsa hinar sér­stæðu jarð­mynd­anir sunnan og austan Lang­jök­uls, Jarl­hettur og Hagavatn þar með. „Land­mótun við Hagavatn er meðal merk­ustu ferla í jöklum á Íslandi. Þetta er hin kalda kinn lands­ins. Hlýnun jarðar og hop jöklanna myndar bak­grunn­inn og svæðið er eins og opin bók fyrir hvert manns­barn að skilja áhrifin. Þarna er hægt að skoða sög­una, verða vitni að henni. Og í þessu fel­ast gríð­ar­lega mikil verð­mæti.“

Hug­myndir um að hækka vatns­borð Haga­vatns með því að stífla útfall þess, Farið, eru ekki nýjar af nál­inni. Á árum áður var það fyr­ir­hugað sem liður í upp­græðslu­verk­efni vegna sand­foks og „mikið áhuga­mál“ sveit­ar­stjórnar Blá­skóga­byggðar og sveit­ar­stjórnar Bisk­ups­tungna­hrepps þar á undan. Á síð­ari árum kvikn­aði áhugi á að nýta þá fram­kvæmd og vatn Haga­vatns til orku­fram­leiðslu.

Gert er ráð fyrir 20 MW Haga­vatns­virkjun í nýlega sam­þykktu aðal­skipu­lagi Blá­skóga­byggðar. „Til að draga úr upp­blæstri í nágrenni Haga­vatns og minnka fok yfir byggð­ina þá er stefnt að því að end­ur­heimta Hagavatn í þeirri mynd sem það var fyrir hlaupið árið 1939,“ segir í grein­ar­gerð. „End­ur­heimt Haga­vatns er for­senda þess að hægt sé að ráð­ast í frek­ari land­græðslu­að­gerðir sunnan þess. Til að auka hag­kvæmni fram­kvæmd­ar­innar er æski­legt að nýta stækkað Hagavatn til raf­orku­fram­leiðslu.“

Í til­lögu að mats­á­ætlun 9,9 MW Haga­vatns­virkj­unar kemur fram að 5 metra sveifla yrði á vatns­yf­ir­borði uppi­stöðu­lóns­ins eftir árs­tíma. Þessi sveifla mun að mati nátt­úru­vernd­ar­sam­taka og Land­græðsl­unnar auka jarð­vegs­fok á svæð­inu en ekki draga úr því eins og yfir­lýst mark­mið sveit­ar­stjórnar Blá­skóga­byggðar er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

virkjanamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár