Nýtt yfirtökutilboð komið í Refresco – Íslenskir fjárfestar gætu grætt milljarða

Hópur sem keypti stóran hlut í Stoðum, áður FL Group, í vor mun hagn­ast mikið á fjár­fest­ingu sinni ef til­boði í einu eign félags­ins, Refresco, verður tekið. Hann er m.a. sam­an­settur af hlut­höfum í TM og mönnum sem áður gegndu lyk­il­stöðum hjá FL Group.

Refresco er hollenskur drykkjavöruframleiðandi.
Refresco er hol­lenskur drykkja­vöru­fram­leið­andi.

Fjár­fest­inga­fé­lagið PAI Partners SAS gerði í dag nýtt yfir­tökutil­boð í hol­lenska drykkja­vöru­fram­leið­and­ann Refresco. Tilboðið hljóðar er upp á 1,6 millj­arða evra og er 14 pró­sent hærra en fyrra yfir­tökutil­boð, sem hafnað var í apríl síð­ast­liðnum. Miðað við gengi evru í dag er til­boðið upp á um 200 millj­arða íslenskra króna.

[links]Stærsti ein­staki hlut­hafi Refresco eru Stoðir, sem áður hétu FL Group. Verði yfir­tökutil­boðið sam­þykkt myndu Stoðir fá um 17,7 millj­arða króna í sinn hlut. Hlut­ur­inn var met­inn á 12,7 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót í bókum Stoða og því ljóst að hlut­hafar Stoða munu fá mun meira en það fyrir hann verði til­boðið sam­þykkt.

Greint er frá yfir­tökutil­boð­inu í til­kynn­ingu frá Refresco til mark­að­ar­ins í Hollandi í dag.

Græða milljarða á nokkrum mánuðum

Refresco er eina eft­ir­stand­andi eign Stoða. Í vor áttu sér stað umtals­verð við­skipti með hluti í félag­inu. Tvö félög, S121 ehf. og S122 ehf., eign­uðust meiri­hluta í Stoð­um. Sam­an­lagt eiga þessi tvö félög 50,15 pró­sent hlut.

Fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar úr fyr­ir­tækja­skrá benda til þess að félögin tvö hafi greitt 4,8 millj­arða króna fyrir 48,73 pró­sent hlut. Miðað við það verð má ætla að mark­aðsvirði Stoða væri um tíu millj­arðar króna þegar við­skiptin áttu sér stað.

Miðað við yfir­tökutil­boðið virð­ist ljóst að hóp­ur­inn sem keypti hlut­inn í Stoðum snemma á þessu ári, í við­skiptum sem litlar upp­lýs­ingar fást um, hefur hagnað mjög vel á fjár­fest­ingu sinni. Og verði yfir­tökutil­boð­inu tekið munu þeir geta leyst það fé út. Alls ætti hlutur þeirra að verða 8,9 millj­arðar króna. Hópurinn hefur því tæp­lega tvö­faldað fjár­fest­ingu sínu á örfáum mán­uðum miðað við þær tölur sem gefnar eru upp í gögnum sem skilað var inn til fyr­ir­tækja­skráar.

Gamlir lyk­il­menn úr FL og stjórn­ar­menn TM

En hverjir eru í þessum hópi? S121 og S122 eru í eigu fjög­urra einka­hluta­fé­laga og eins skráðs félags, Trygg­inga­mið­stöðv­ar­inn­ar. Fé­lögin fjögur heita Helg­ar­fell ehf., Esju­­borg ehf., Einir ehf. og GGH ehf. Þrjú þeirra, eru í eigu aðila sem eru líka stórir hlut­hafar í Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni. Og eig­endur þeirra voru margir hverjir lyk­il­menn í FL Group á árunum fyrir hrun.

Esju­­borg er í 50 pró­­sent eigu félags sem heitir Jökla­­borg. Það er skráð í 100 pró­­sent eigu Jóhanns Arn­­ars Þór­­ar­ins­­son­­ar, for­­stjóra og eins stærsta eig­anda veit­ing­­aris­ans Foodco. Hinn helm­ing­­ur­inn í Esju­­borg er í eig Riverside Capital SARL, félags sem er skráð í Lúx­em­borg. Sam­­kvæmt Pana­ma­skjöl­unum er það félag í end­an­­legri eigu Fortown Corp, félags skráð á Möltu. Eig­andi þess félags er Örvar Kærne­sted. RiversideCapital á líka 2,63 pró­­sent hlut í Trygg­inga­mið­­stöð­inni í gegnum íslenska félagið Riverside Capital ehf. Hann situr einnig í stjórn Trygg­inga­mið­­stöðv­­­ar­inn­­ar. Örvar var yfir starf­­semi FL Group í London um tíma fyrir banka­hrun og þar áður hjá Kaup­­þingi í níu ár. Hann er nú umsvifa­­mik­ill fjár­­­fest­­ir. Hann sett­ist í stjórn Stoða á síð­­asta aðal­­fundi félags­­ins, se fór fram 21. apríl síð­­ast­lið­inn.

[adspot]Einar Örn Ólafs­­son er líka á meðal eig­enda Trygg­inga­mið­­stöðv­­­ar­inn­­ar. Hann á 2,76 pró­­sent hlut í henni í gegnum félag sitt Einir ehf. Það félag er líka á meðal þeirra sem náð hafa yfir­­ráðum í Stoð­­um. Einar starf­aði hjá Glitni og síðar Íslands­­­banka á árum áður. Hann var meðal ann­­ars for­­stöð­u­­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Íslands­­­banka fyrstu mán­uð­ina eftir að bank­inn var end­­ur­reistur eftir hrun­ið. Hann gerð­ist síðan for­­stjóri Skelj­ungs í maí 2009 eftir að hafa hætt hjá bank­­anum vegna trún­­að­­ar­brests. Hann er í dag umsvifa­­mik­ill fjár­­­fest­­ir.

Stærsti ein­staki eig­andi að hlutum í Trygg­inga­mið­­stöð­inni, að und­an­­skildum líf­eyr­is­­sjóðum og sjóðs í stýr­ingu Stefn­is, er félag sem heitir Helg­ar­fell ehf. með 6,34 pró­­sent hlut. Helg­ar­fell er líka á meðal þeirra félaga sem keyptu stóran hlut í Stoðum með Trygg­ing­ar­mið­stöð­inni á síð­­­ustu mán­uð­­um.

Eig­endur Helg­ar­fells eru Björg Fenger, Kristín Fenger Ver­­munds­dóttir og Ari Fenger. Björg er eig­in­­kona Jóns Sig­­urðs­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra FL Group/­Stoða. Jón tók við sem stjórn­­­ar­­for­­maður Stoða á síð­­asta aðal­­fundi félags­­ins fyrir tæpum mán­uði síð­­­an.

Fjórða félagið sem er stór eig­andi í S122 og S121 heitir GGH ehf. Eig­endur þess eru Gruppen ehf. (í eigu hol­­lenska félags­­ins Golden Gate Mana­gement BV, sem teng­ist Magn­úsi Ármann), Ágúst Már Ármann (faðir Magn­úsar Ármann), og BNB Consulting (fé­lag í eigu Bern­hards Boga­­son­­ar, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóra lög­­fræð­is­sviðs FLGroup) sem á eitt pró­­sent hlut. Magnús Ármann var á meðal hlut­hafa í FL Group fyrir hrun og sat í stjórn félags­­ins.

Sam­­starfs­að­ili hóps­ins er félagið Tavira Securities sem er í eigu óþekkts hol­­lensk fjár­­­fest­­is.

Tengsl við fortíðina

Félögin sem notuð voru til að kaupa hluti í Stoðum hafa þegar skipt um stjórn­­­ir. Í S121 er Gunnar Sturlu­­son lög­­­maður í stjórn. Hann var lengi vel náinn sam­­starfs­­maður Hann­esar Smára­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra FL Group, var lög­­­maður hans, sat í stjórnum og var skráður fram­­kvæmda­­stjóri félaga í eigu Hann­es­­ar. Gunnar er líka í stjórn S122. Þar situr hann ásamt Þor­­steini M. Jóns­­syni, sem á árum áður var oft­­ast kenndur við kók. Þor­­steinn átti hlut í FL Group fyrir banka­hrun­ið, sat í stjórn félags­­ins og tók við sem stjórn­­­ar­­for­­maður Glitnis um tíma eftir að FL Group og tengdir aðilar náðu yfir­­ráðum yfir bank­an­­um.

Bæði Jón Sig­­urðs­­son og Þor­­steinn M. Jóns­­son hafa setið í stjórn Refresco fyrir hönd íslenskra eig­enda. Jón situr þar raunar enn og hefur gert frá 2009.

GlitnirHoldco seldi

Stærsti selj­andi þeirra hluta sem félögin tvö keyptu í vor var GlitnirHoldco, eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir Glitn­is, banka sem FL Group og tengdir aðilar voru með tögl og haldir í á loka­metrum íslenska góð­ær­is­ins fyrir hrun.

Félagið sjálft átti 32 pró­sent hlut í Glitni. Banka sem lán­aði FL Group sam­stæð­unni tugi millj­arða króna sem leiddi svo til þess að kröfu­hafar bank­ans eign­uð­ust stærstan hluta í félag­inu eftir að það fór í gegnum nauða­samn­ing sum­arið 2009.

GlitnirHolco hefur ekk­ert viljað gefa upp um hvað hefði verið greitt fyrir hlut­inn í Refresco sem félagið seldi, en það hafði átt 40,28 pró­sent hlut. Raunar hafa ekki feng­ist upp­­lýs­ingar um hvenær hóp­­ur­inn sem nú á meiri­hluta í Stoðum hóf upp­­­kaup sín á bréf­um, hvað hann greiddi fyrir hlut­inn né hvernig þau kaup voru fjár­­­mögn­uð utan þeirra upp­lýs­inga sem hægt er að nálg­ast í skrán­ing­ar­skjölum félag­anna í fyr­ir­tækja­skrá,sem fjallað er um hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár