Hryðjuverkamenn á örvandi lyfjum, mannréttindi fanga og framsóknarmaðurinn JFK

Liðin helgi var afar tíð­inda­mikil og við­burð­ar­rík, jafnt á inn­lendum og erlendum vett­vangi.

Fókus fjöl­miðla var eðli­lega enn mestur á hryðju­verkin í París og eft­ir­mál þeirra. Freyr Eyj­ólfs­son, frétta­rit­ari Kjarnans í Frakk­landi, skrif­aði röð frétta og skýr­inga um það mál. Þar fjall­aði hann meðal ann­ars ítar­lega um höf­uð­paur­inn Abdel Abaaoud, notkun viga­manna Íslamska rík­is­ins á lyf­inu captagon, sem eru kröft­ugar og örvandi amfetamíntöflur, og frá sögu­legri ályktun Frakka, sem lögð var fram og sam­þykkt í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna, þess efnis að öll ríki heims lýsi yfir stríði við Íslamska ríkið.

Þótt hryðju­verka­árás­irnar sem framdar voru fyrir tíu dögum síðan hafi verið mann­skæð­ustu fjöldamorð sem framin hafa verið í Frakk­landi frá því í síð­ari heims­styrj­öld­inni þá hefur Par­ís­ar­borg þó oft verið skot­mark hryðju­verka­árása á und­an­förnum ára­tugum. Sagn­fræð­ing­ur­inn Kristinn Haukur Gunn­ars­son rakti þær alvar­leg­ustu. 

Ef fram heldur sem horfir mun mað­ur­inn klára auð­lindir jarðar á næstu ára­tugum. Birgir Þór Harð­ar­son hélt áfram umfjöllun sinni um loft­lags­mál í aðdrag­anda loft­lags­ráð­stefn­unnar sem hefst í París 30. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Herdís Sig­ur­gríms­dóttir var ekki á ósvip­uðum slóðum í frétta­skýr­ingu um ógn­væn­legar sviðs­myndir nátt­úru­ham­fara.

Borgþór Arn­gríms­son, frétta­rit­ari Kjarnans í Danmörku, ein­beitti sér að sögu­legum tíð­indum í danskri knatt­spyrnu. Morten Olsen, sem hefur verið við­loð­andi danska lands­liðið í knatt­spyrnu nærri linnu­laust frá því snemma á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar, og þjálfað liðið síð­ustu 15 ár, er hættur.

Það gerð­ist líka ýmis­legt inn­an­lands um liðna helgi. Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, var í við­tali við hlað­varps­þátt­inn Grettistak um helg­ina. Þar sagði hún meðal ann­ars að það væri afleitt að læknar á Íslandi fái ekki laun í sam­ræmi við menntun sína og starf. Agnes sagð­ist þó ekki sam­mála því að menntun og starf presta væri minna virði en starf lækna, en prestar fá jafnan hærri laun.

Hún var ekki eina íslenska fyr­ir­mennið sem vakti athygli um liðna helgi. Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, fór í útvarps­við­tal og sagði að skjöl um hann, sem komu úr sendi­ráði Sádí-Arabíu, hafi verið „meira og minna upp­spuni og ýkjur.“

Þá deildu fang­els­is­mála­stjóri og eig­in­kona efn­aðs fanga um hvað sé mann­rétt­inda­brot og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hvatti Íslend­inga til að fylgja speki John F. Kennedy, sem Sig­mundur segir að hafi verið fram­sókn­ar­maður, og hvatti lands­menn til að spyrja sig ekki hvað landið gæti gert fyrir þá heldur hvað þeir geti gert fyrir landið.

Og svo varð Björk, fræg­asti Íslend­ingur allra tíma, auð­vitað fimm­tug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár