Tímamót í danskri knattspyrnusögu

Þótt margir Danir vilji kannski helst af öllu gleyma lands­leik Dana og Svía sl. þriðju­dag sem fyrst mark­aði leik­ur­inn, eða betur sagt úrslit hans, tíma­mót í danskri knatt­spyrnu­sögu. Úrslitin (2-2) þýddu að Svíar taka þátt í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu sem fram fer í Frakk­landi á næsta ári en Danir sitja heima. Að leik loknum til­kynnti Morten Olsen lands­liðs­þjálf­ari Dana að hann væri hættur störfum, en samn­ingur hans var ann­ars í gildi fram yfir Evr­ópu­meist­ara­mótið. Þótt það þyki iðu­lega ekki sér­lega frétt­næmt, enda nán­ast dag­legt brauð, að knatt­spyrnu­þjálf­ari taki pok­ann sinn gegnir öðru máli þegar Morten Olsen á í hlut. Nafn hans hefur verið sam­ofið danskri knatt­spyrnu­sögu um ára­tuga­skeið.

Byrjaði kornungur í boltanum

Morten Olsen er fæddur í smá­bænum Vor­ding­borg á Sjálandi 14. ágúst 1949. Í þessum smábæ var á þeim tíma eitt knatt­spyrnu­fé­lag, Vor­ding­borg IF, stofnað 1904. Vor­ding­borg IF var í upp­hafi alhliða íþrótta­fé­lag en klofn­aði síðar upp í ýmis sér­fé­lög, knatt­spyrnu­deildin varð sjálf­stætt félag árið 1946. Morten Olsen var átta ára þegar hann fór að mæta á fót­bolta­æf­ingar hjá lið­inu. Fljót­lega kom í ljós að strák­ur­inn hafði „þetta í sér“ eins og einn af þjálf­urum drengja­flokk­anna komst að orði. Morten Olsen spil­aði með Vor­ding­borg IF til árs­ins 1969. Félagið var hrein­ræktað áhuga­manna­fé­lag, leik­menn sem flestir voru ungir og óreyndir stund­uðu nám eða vinnu á dag­inn en reim­uðu á sig skóna á kvöldin. Morten Olsen hefur í við­tölum sagt að hann hafi ekki verið nein „háskólatýpa“, en hann lærði að verða máln­ing­ar­kaup­maður, sem á þeim tíma var tveggja til þriggja ára nám, bók­legt að hluta en að mestu leyti starfs­nám. Morten Olsen þótti á þessum árum efni­legur fim­leika­maður, og tók þátt í mótum, en valdi að lokum knatt­spyrn­una.

[adspot]

B 1901- Cercle Brugge - Racing White – Anderlecht – FC Köln

Árið 1970 gekk Morten Olsen til liðs við knatt­spyrnu­fé­lagið B 1901 (Nyköbing Falster Boldklub af 1901). Þarna kynnt­ist Morten Olsen í fyrsta skipti, að eigin sögn, alvöru­þjálf­ara. Sá var Kurt „Nikkelaj“ Nielsen sem seinna varð þjálf­ari danska lands­liðs­ins. Þetta sama ár lék Morten Olsen sinn fyrsta lands­leik, liðið var skipað leik­mönnum 21 árs og yngri.

Árið 1972 bauðst Morten Olsen samn­ingur hjá belgíska knatt­spyrnu­lið­inu Cercle Brugge. Þetta lið sem var stofnað 1899 hafði átt mis­jöfnu gengi að fagna, meðal ann­ars lent í mútu­máli. Árið 1965 hafði Belginn Urbain Braems tekið við lið­inu og sett sér það mark­mið að koma lið­inu í fremstu röð í Belgíu, sem honum tókst. Eitt af síð­ustu verkum hans hjá Cercle Brugge var að ráða ljós­hærða Danann, eins og Belgar köll­uðu Morten Olsen, til liðs­ins. En þeir voru fleiri sem fylgd­ust með Dananum sem allan sinn feril spil­aði stöðu sókn­ar­tengiliðs. Belgíska félagið Racing White í Molenbeek bauð honum samn­ing árið 1976, en þetta lið var þá í hópi þeirra bestu í Belgíu.

Eftir fjögur ár þar (1980) lá leiðin til Anderlecht og á þeim sex árum sem Morten Olsen lék með lið­inu varð það þrisvar sinnum belg­íu­meist­ari. Loks lá leiðin til Þýska­lands, til Kölnar. Hjá FC Köln var Morten Olsen í þrjú ár og lauk leik­manns­ferl­inum þar árið 1989 þá orð­inn fer­tugur. Hann hafði þá jafn­framt leikið 102 lands­leiki fyrir Danmörku og 5 til við­bótar fyrir lands­liðið 21 árs og yngri. Hann var í tvígang kjör­inn knatt­spyrnu­maður árs­ins í Danmörku, 1983 og 1986. Í rök­stuðn­ingi fyrir vali hans í bæði skiptin var tekið fram að styrkur hans væri hlut­verk varn­ar­stjórn­and­ans og jafn­framt það að byggja upp sókn­ar­leik­inn.

Hann var jafn­framt fyr­ir­liði danska lands­liðs­ins árum saman og hægri hönd þjálf­ar­ans þau ell­efu ár (1979 -1990) sem Sepp Piontek stjórn­aði lands­lið­inu og kom því á kortið, eins og það er kallað. Piontek hafði byggt upp liðið sem vann Evr­ópu­meist­ara­tit­il­inn árið 1992, þótt hann væri þá hættur sem þjálf­ari liðs­ins og Richard Møller Nielsen tek­inn við.

Takkaskórnir á hilluna og þjálfaraskórnir dregnir fram

Árið 1989 var fer­ill Mortens Olsens sem knatt­spyrnu­manns á enda en það þýddi ekki að afskiptum hans af íþrótt­inni væri lokið. Öðru nær. Sama árið og atvinnu­manns­ferl­inum lauk var Morten Olsen ráð­inn þjálf­ari danska knatt­spyrnu­liðs­ins Bröndby IF. Þar var hann í þrjú ár en fór þá til FC Köln, þar sem hann þekkti vel til. Á árunum 1997 og 1998 var hann þjálf­ari hol­lenska liðs­ins Ajax.

Fimmtán ár með landsliðið

Árið 2000 var Morten Olsen ráð­inn lands­liðs­þjálf­ari Dan­merkur. Hann hefur í við­tölum sagt að öll árin sem leik­maður og síðar þjálf­ari hafi í raun verið und­ir­bún­ingur þess að taka að sér starf lands­liðs­þjálf­ara. Reyndar hafði hann ekki ætlað sér að vera svona lengi í þessu starfi, 8. nóv­em­ber 2010 til­kynnti hann að hann myndi láta af störfum eftir Evr­ópu­meist­ara­mótið 2012. Ári síðar, þegar danska liðið hafði áunnið sér rétt til þát­töku í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu var samn­ingur hans fram­lengdur til 2014, fram yfir heims­meist­ara­mótið það ár. Dönum tókst ekki að vinna sér sæti í loka­keppn­inni en samið var um að Morten Olsen yrði þjálf­ari lands­liðs­ins fram yfir Evr­ópu­meist­ara­mótið árið 2016. Síð­ast­liðið þriðju­dags­kvöld, þegar fyrir lá að Danir yrðu ekki með á því móti til­kynnti Morten Olsen að hann væri hættur, leik­ur­inn gegn Svíum, sem lauk með jafn­tefli, hefði verið sá síð­asti undir sinni stjórn.

Alls urðu lands­leikir Dana undir hans stjórn 166 tals­ins og sem leik­maður urðu lands­leik­irnir 102 eins og áður er getið. Hann mun vera eini mað­ur­inn í heim­inum sem hefur náð 100 leikjum, ann­ars vegar sem leik­maður og hins vegar sem þjálf­ari. Morten Olsen er einn þriggja þjálf­ara sem tek­ist hefur að koma danska lands­lið­inu í loka­keppni heims­meist­ara­keppn­innar, það var árið 2010. Hinir eru þeir Sepp Piontek árið 1986 og Bo Johans­son árið 1998.

Þrátt fyrir að á þessum fimmtán árum sem Morten Olsen hefur stjórnað lands­lið­inu hafi ekki alltaf allt gengið að óskum hefur nær allan tím­ann ríkt sátt um störf hans. Stjórn danska knatt­spyrnu­sam­bands­ins hefur ætíð stutt hann í einu og öllu enda hefur Morten Olsen ætíð sagt að hann myndi hætta sam­stundis ef henn teldi sig ekki hafa stuðn­ing allra stjórn­ar­manna. Hann hefur líka alla tíð notið virð­ingar leik­mann­anna og und­an­farna daga hafa bæði eldri og yngri lands­liðs­menn tjáð sig um þjálf­ar­ann og per­són­una Morten Olsen. Nær allir hrósa honum í hástert. Einn af blaða­mönnum Politi­ken sagði í umfjöllun sinni um þjálf­ar­ann að ein­hverjir „sófasér­fræð­ingar“ teldu ugg­laust að Morten Olsen hefði átt að vera hættur fyrir löngu. „Þeir vita nú alltaf best“ bætti blaða­mað­ur­inn við.

Og hvað nú?

Þessari spurn­ingu varp­aði einn frétta­maður fram á fund­inum þegar Morten Olsen til­kynnti afsögn sína. „Ætlarðu að halda áfram að þjálfa?“ Morten Olsen svar­aði þessu ekki beint en sagði að eig­in­konan Mireille, sem er belgísk, hefði neit­un­ar­vald í öllum málum.

Þau Mireille og Morten búa í Beersel, skammt frá Brussel. Með hænsn í garð­inum en Morten Olsen veit fátt skemmti­legra, fyrir utan fót­bolt­ann, en snú­ast í kringum pút­urnar og fylgj­ast með þeirra dag­lega amstri, sem að mestu snýst um að finna eitt­hvað gott í gogg­inn. Hirtir og endur leggja líka leið sína í garð­inn hjón­unum til mik­illar ánægju.

Þau eiga líka íbúð­ar­hús í Vor­ding­borg á Sjálandi, fæð­ing­arbæ Mortens, og dvelja þar oft á tíðum.

Morten Olsen er 66 ára. Á þeim aldri horfa margir til rólegri daga og minni vinnu. Hvað þjálf­ar­inn fyrr­ver­andi tekur sér fyrir hendur veit eng­inn. Hann fær örugg­lega mörg atvinnu­til­boð en eins og hann sagði, frúin ræður. Ef hún hristir höf­uðið þegar bónd­inn minn­ist á slíkt nær það ekki lengra og hann getur ótrufl­aður áfram fylgst með fið­ur­fénu í garð­inum.

Til við­bótar:

  • Morten Olsen talar fimm tungu­mál: dönsku, þýsku, ensku, flæmsku og frönsku.
  • Hann er mik­ill áhuga­maður um fugla. 
  • Hann er heið­urs­borg­ari Vor­ding­borgar og gatan sem liggur að íþrótta­velli bæj­ar­ins ber nafn hans: Morten Olsens Allé.
  • Hann er heyrn­ar­daufur (sem getur að hans sögn stundum komið sér vel) og er „heið­ur­sendi­herra“ danska heyrn­ar­tækja­fram­leið­and­ans Widex.
  • Unnusta hans, Marianne Kristien Egeberg, hvarf sum­arið 1978 þegar hún var far­þegi á ferj­unni sem siglir milli Gedser og Tra­vemünde. Hún hefur ekki fund­ist. 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár