Ingibjörg: Páll Winkel fer undan í flæmingi

Páll Winkel, for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar, fer undan í flæm­ingi og það bendir ein­dregið til þess að hann geti ekki svarað fyrir gjörðir sínar. Þetta segir Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar, í svari sem hún sendi Kjarn­anum. Ingi­björg skrif­aði grein í Frétta­blaðið á föstu­dag þar sem hún sak­aði Pál um mann­rétt­inda­brot gegn föngum, meðal ann­ars manni hennar. Páll tjáði sig um grein­ina við Kjarnann á laug­ar­dag og hafn­aði ásök­unum Ingi­bjargar.

Ingi­björg segir að við­horf og hegðun Páls sé í engu sam­ræmi við eðli­lega fram­komu opin­berra starfs­manna, og segir að hann geti enn beðist afsök­unar á þessu „frum­hlaupi“ sínu ef honum sé umhugað um að vera tek­inn alvar­lega.

Svar Ingi­bjargar í heild sinni má lesa hér að neðan.

[adspot]

Páll Winkel fang­els­is­mála­stjóri gerir til­raun til að svara grein minni sem birt­ist í Frétta­blað­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Í grein­inni vek ég athygli á ómak­legu fram­ferði Páls gagn­vart skjól­stæð­ingum sínum á Kvía­bryggju á opin­berum vett­vangi nýverið. Annars vegar að hann hefur ítrekað komið fram í fjöl­miðlum og tjáð sig um einka­mál­efni fanga. Hins vegar að hann segir ósatt varð­andi þetta sama mál.

Ég tek það fram að hann nefnir ekki nöfn skjól­stæð­inga sinna, en hann sér til þess að les­endur átta sig á því hverja hann er að tala um, sem er brot á ákvæði um þagn­ar­skyldu í lögum um fulln­ustu refs­inga. Viðurlög við því er allt að 1 árs fang­elsi, sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum, og allt að 3ja ára fang­elsi ef hann hefur gert það sér til ávinn­ings.

Ég upp­lýsti í grein minni að hann fór með rangt mál þegar hann sagð­ist ekki hafa vitað af mál­inu fyrr en skömmu áður en hann tjáði sig um það í fjöl­miðlum, og stað­hæfði jafn­framt að hann hefði stoppað málið af í fram­hald­inu.

Í við­tali við Kjarnann síð­ast­lið­inn laug­ar­dag víkur Páll sér undan því að svara ásök­unum um að hann brjóti á skjól­stæð­ingum sínum. Að hann hafi farið með rangt mál. Hann ber því við að hann geti ekki svarað aðstand­endum fanga hverjum fyrir sig þar sem þeir skipta hund­ruðum?! Ekki verður annað skilið á Páli en að hann telji eðli­leg­ast að aðstand­endur fari með mál sín í gegnum Afstöðu, sem eru sam­tök fanga.

Ef Páll Winkel for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar ákveður að opin­bera einka­mál skjól­stæð­inga sinna og fara með rangt mál í fjöl­miðlum varð­andi mál­efni þeirra, liggur þá ekki beint við fyrir mig sem aðstand­anda, að mæta for­stjór­anum og mót­mæla aðför hans á opin­berum vett­vangi? Það stendur hvergi skrifað í skýin að for­stjóri Fang­els­is­mála­stofn­unar skuli ekki svara alvar­legum ásök­unum nema að þær komi til hans í gegnum Afstöðu.

Það er ein­kenni­legt að Páll skuli ekki svara mál­inu efn­is­lega. Það að hann fer undan í flæm­ingi bendir ein­dregið til þess að hann geti ekki svarað fyrir gjörðir sínar. Þær hljóta því að standa óhagg­aðar sem sann­leik­ur­inn í mál­inu.

Það kemur einnig und­ar­lega fyrir sjónir að for­stjór­inn noti orða­lagið “Konan, sem kveðst maki refsi­fanga, sakar mig um ýmis brot……” Hvað á hann við með því? Er hann að gefa í skyn að ég sé ekki eig­in­kona Ólafs, eða liggur efinn í því að eig­in­mað­ur­inn minn sé refsi­fangi? Eða er hann ein­fald­lega að tala niður til mín sem aðstand­anda?

Viðhorf og hegðun Páls er í engu sam­ræmi við eðli­lega fram­komu opin­bers starfs­manns, for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­unar. Ef Páli er umhugað um að vera tek­inn alvar­lega sem maður sem ber hag skjól­stæð­inga sinna fyrir brjósti, og berst fyrir breyttum áherslum í fang­els­is­málum, þá bendi ég Páli á að hann getur enn dregið orð sín til baka og beðist afsök­unar á þessu frum­hlaupi sínu.

Þetta er afstaða mín sem aðstand­anda og borg­ara.

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár