Sakar Pál Winkel um mannréttindabrot og lygar

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar, segir Pál Winkel, for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­unar, brjóta á rétt­indum fanga eins og eig­in­manns hennar. Hún sakar hann einnig um að tjá sig opin­ber­lega um einka­mál útrás­ar­vík­inga sem sitja í fang­els­inu að Kvía­bryggju og fara með ósann­indi um þá. Þetta segir hún í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag.

„Fram­ganga Páls er sér­lega ósmekk­leg í ljósi þess að hann veit manna best að frels­is­svipt­ingin ein og sér er mönnum nógu erfið þó mann­rétt­indi þeirra séu ekki brotin sam­hliða“ segir Ingi­björg. Þetta hafi verið gert á kostnað skjól­stæð­inga Páls, „fanga sem eiga sér fáa málsvara í þjóð­fé­lagi hat­urs og hefnigirni, fanga sem Páll veit að er óheim­ilt að tjá sig í fjöl­miðlum. Fang­arnir eru því varn­ar­lausir gegn aðför for­stjóra Fang­els­is­mála­stofn­unar.“ 

Ingi­björg segir að Páll hafi „ítrekað veist ómak­lega að ákveðnum skjól­stæð­ingum sínum í fang­els­inu á Kvía­bryggju. Hann brýtur á þeim sem ekki geta varið sig og hefur orðið upp­vís að því að fara með rangt mál. Einn þeirra sem Páll hefur brotið á er eig­in­maður minn, Ólafur Ólafsson, sem afplánar þar dóm.“ 

Ingi­björg ræðir um nýlegt mál þar sem komst í fjöl­miðla að Ólafur og fleiri fangar hygð­ust stunda nám í reið­mennsku. „Um er að ræða fjar­nám skipu­lagt af End­ur­mennt­un­ar­deild Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands. Verklegi hluti náms­ins átti að fara fram á næsta bæ við Kvía­bryggju,“ segir Ingi­björg í grein­inni.

Páll hafi hins vegar komið fram í fjöl­miðlum og sagst hafa stoppað námið af á síð­ustu stundu. Hann hafi meðal ann­ars farið í við­tal á RÚV „þar sem hann ræðir mjög frjáls­lega og allt að því háðs­lega um þetta sama mál og þessa sömu menn.“ Ingi­björg segir Pál ekki hafa nefnt nöfn skjól­stæð­inga sinna en eng­inn velk­ist í vafa um hverja hann hafi átt við, enda hafi hann sagt að mjög lít­ill hópur fanga hefði aðgengi að mörgum millj­ónum króna. Með þessum upp­lýs­ingum segir Ingi­björg að Páll hafi tjáð sig opin­ber­lega um einka­mál eig­in­manns hennar og sam­fanga hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár