Ólafur Ragnar segir skjöl Sádi-Araba um hann vera uppspuna og ýkjur

Íslend­ingar verða að hafa þor og kjark til að horfast í augu við þá stað­reynd að innan Íslam sé hópur byggður á öfga­kenndri túlkun þeirrar trúar. Þessi hópur „telur það rétt­læt­an­legt að drepa alla, hvort sem þeir eru Múhameðstrú­ar­menn eða Vest­ur­landa­búar eða Kristnir, sem ekki vilja gang­ast undir hin algjöru, óskorð­uðu, yfir­þyrm­andi lög íslam.“

Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, í við­tali við Hallgrím Thor­steins­son á Rás 1 í morgun.

For­set­inn ræddi um hryðju­verkin í París og hryðju­verkaógn­ina í heim­inum. „Hvort sem að frjáls­lyndum öflum svoköll­uðum líkar það betur eða ver, þá er það núna orðið við­fangs­efni kjör­inna full­trúa víða í Evrópu, að koma í veg fyrir að venju­legt fólk sé drepið,“ sagði hann.

Ástæða til að hafa áhyggjur af afskiptum í trúmálum

Bent hefur verið á að for­seti Íslands hefur fundað með sendi­herra Sádi-Arabíu hér á landi, og skjöl um fund þeirra voru birt á vef­síðu Wikileaks. Í skjöl­unum var sagt að for­seti Íslands hefði hrósað Sádi-Arabíu og óskað eftir nán­ara sam­starfi ríkj­anna. Ólafur Ragnar segir að þessi skjöl, sem komu úr sendi­ráði Sádi-Arabíu, hafi verið „meira og minna upp­spuni og ýkjur.“

Ólafur sagði í við­tal­inu að hann hefði sjálfur vakið athygli á boði sendi­herr­ans um fjár­hags­legan stuðn­ing Sádi-Arabíu við trú­fé­lög á Íslandi. Þetta hafi komið fram á fundi hans með nýjum sendi­herra rík­is­ins og afskipti Sádi-Araba af trú­málum á Íslandi sé áhyggju­efni.

„Hverjir eru hags­munir og ástæður þess að það ríki sem hefur stutt - umfram öll önnur ríki - hið öfga­fulla íslam, er nú farið að hafa afskipti af því hér á Íslandi, af því hvernig trú er iðkuð hér á Íslandi? Og þegar menn spyrja: „Snertir þetta okkur eitt­hvað?“ Þá svara ég með þeim hætti að benda á þá stað­reynd að for­seti lýð­veld­is­ins, borg­ar­yf­ir­völd í Reykja­vík, for­ystu­menn þess­ara safn­aða á Íslandi, allir þessir aðilar hafa nú orðið á und­an­förnum mán­uðum með einum eða öðrum hætti þurft að hafa afskipti af því sem Sádi-Arabía er að reyna að gera á Íslandi. Og það er nýr veru­leiki fyrir okkar litla land,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár