Höfuðpaurinn Abdel Abaaoud

Lög­reglan í París komst á sporið um mið­stöð hryðju­verka­mann­anna í Saint-Denis eftir að hafa fundið grun­sam­legan far­síma fyrir utan tón­leika­stað­inn Bataclan. Í aðgerðum lög­regl­unnar síð­ast­liðið þriðju­dags­kvöld féll sá sem sagður er sjálfur höf­uð­paur­inn: Abdel Abaaoud. Hann er tal­inn hafa skipu­lagt árás­irnar 13. nóv­em­ber og jafn­vel verið með fleiri hryðju­verk í bígerð. Hugs­an­lega í fjár­mála­hverfi borg­ar­innar.

Hann er fæddur 1987 og upp alinn í Brussel í Belgíu, eitt af sex börnum Omar Abaaoud sem flutt­ist frá Marokkó 1975 og sett­ist að í Molenbeek-hverf­inu þar sem hann opn­aði mat­vöru­verslun. Þetta hverfi er þekkt fyrir lit­skrúð­uga fjöl­menn­ingu en oft hefur verið þar und­ir­liggj­andi spenna og átök. Abdel Abaaoud sat inni fyrir þjófnað í Saint Gilles fang­els­inu 2010. Í fang­els­inu kynn­ist hann Salah Abdeslam sem und­ir­bjó með honum hryðju­verkin í París og er þessa stund­ina einn eft­ir­lýstasti maður Evrópu.

Í fyrra fór Abaaoud til Sýrlands til þess að berj­ast með víga­sveitum Íslamska rík­is­ins og tók með sér í þá för 13 ára gamlan bróður sinn. Hann kom fram í fréttaum­fjöllun sem blaða­menn­irnir Étienne Huver og Guillaume Lhot­ellier unnu. Ljós­myndir og mynd­bönd sem tekin eru af honum á landa­mærum Sýrlands og Tyrk­lands sýna hann alvopn­aðan vera að hlaða upp blóð­ugum líkum á trukk. Hann er bros­andi og hlær þegar hann segir:

„Áður lifði ég áhyggju­lausu lífi, var ég bara að leika mér á mót­or­hjólum, fjór­hjólum, fór í frí til Marokkó. Þökk sé Guði, líf mitt er breytt. Nú geng ég á guðs vegum; við erum hér að berj­ast við villi­trú­ar­menn og lið­hlaupa.“

Hann var í nánu sam­bandi við marga hryðju­verka­menn. Meðal ann­ars Mehdi Nemmouche, Frakka ætt­aðan frá Alsír, íslamskan öfga­mann sem myrti fjóra í Gyð­inga­safn­inu í Brussel í maí 2014. Abaaoud hefur lengi verið eft­ir­lýstur. En sagt er að hann hafi snúið aftur til Belgíu til þess að skipu­leggja ýmsa hryðju­verka­hópa og hvetja unga menn til þess að ganga til liðs við Íslamska ríkið. Þrátt fyrir að hafa verið eft­ir­lýstur fyrir hryðju­verka­starf­semi og meira að segja einu sinni hand­tek­inn af belgísku lög­regl­unni, sleppur hann aftur til Sýrlands. Þetta er ein ástæða þess að frönsk stjórn­völd hafa sent Belgum tón­inn fyrir að hafa sýnt of mikið kæru­leysi und­an­farið ár hvað varðar hryðju­verka­hættu. Hann er tal­inn tengj­ast árásum á bæna­hús gyð­inga í vor í París, sömu­leiðis er hann tengdur árásinni 21. ágúst síð­ast­lið­inn í Thalys-lest­inni sem var á leið frá Brussel til Parísar.

Inn­an­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, Bernard Cazeneuve, ræddi við fjöl­miðla á fimmtu­dag þegar til­kynnt var að Abaaoud hefði verið einn þeirra sem lát­ist hefði í hand­tök­unum í Saint-Denis. Hann sagði Abaaoud hafa komið frá Sýrlandi, lík­leg­ast í gegnum Grikk­land. Öll lög­gæslu­yf­ir­völd og njósn­a­stofn­anir héldu að mað­ur­inn væri enn í Sýrlandi og það virt­ist hafa komið öllum að óvörum að hann væri kom­inn til Frakk­lands. Viðbrögð við þessu klúðri, eins og það er kallað, eru að herða enn frekar landamæra­eft­ir­lit um alla Evrópu.

Abaaoud er tal­inn hafa verið í sam­bandi við æðstu ráða­menn Íslamska rík­is­ins, eins og Abu Bakr al-Bagdadi, og komið skila­boðum áleiðis til ýmissa hryðju­verka­hópa í Evrópu. Strax eftir árás­irnar föstu­dag­inn þrett­ánda nóv­em­ber beindust öll spjót að Abaaoud. Hann var höf­uð­paur­inn sem ennþá gekk laus. Hann tjáði sig um ódæð­is­verkin í tíma­rit­inu Dabiq sem er gefið út af Íslamska rík­inu.

Að morgni þriðju­dags rudd­ist síðan lög­reglan inn í íbúð hryðju­verka­manna í Saint-Denis, þrír lét­ust, einn af þeim var Abaaoud. Lík hans var illa útleikið, sem tor­veld­aði rann­sókn­ina. Fingraför leiddu svo í ljós að þarna var um að ræða höf­uð­paur­inn, Abdel Abaaoud.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár