„Vægi loftslagsmálanna minnkar ekki þessa dagana“

Þing­maður VG segir að ef Íslend­ingar standi við það sem þeir hafa sam­þykkt af áætl­unum um lofts­lags­mál og geri aðeins betur hafi þeir að minnsta kosti staðið við sinn skerf í mála­flokknum.

Ari
Ari Mynd: Bára Huld Beck

„Vægi lofts­lags­mál­anna minnkar ekki þessa dag­ana. Margir töldu að áhrif COVID-19 yrðu þannig að það leiddi til minni los­unar, meðal ann­ars út af sam­göngum og öðru slíku, en þvert á móti jókst losun á heims­vísu en minnk­aði ekki á árunum 2019 og 2020 sam­kvæmt nýjum tölum. Ástæðan var aukin vinnsla jarð­efna­elds­neytis í orku­fram­leiðslu, að hluta til til að vega upp á móti nei­kvæðum áhrifum COVID-19.“

[links]Þetta sagði Ari Trausti Guð­munds­son, þing­maður Vinstri grænna, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Benti hann enn fremur á að fréttir af jöklum heims væru heldur ekki góðar. „Þeir halda áfram að minnka og nú bætir í hækkun sjáv­ar­borðs sem nemur 0,75 milli­metrum á ári. Með öðrum orðum bætir veru­lega í. Íslenskir jöklar halda áfram að minnka. Árið 1890 var flat­ar­mál þeirra 12.600 fer­kíló­metrar, 2019 eru það 10.400 fer­kíló­metrar. Þeir hafa því minnkað um 2.200 fer­kíló­metra eða 18 pró­sent.“

Þá taldi þing­mað­ur­inn að auð­vitað væru ein­hverjar ljóstírur í þessu öllu saman. „Banda­ríkin eru komin aftur að Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Önnur stór­veldi, mestu meng­un­ar­vald­arnir, þ.e. Rússland, Kína og Indland, segj­ast miða við Par­ís­ar­sam­komu­lagið eins og áður en þau þurfa auð­vitað að sanna að þær áætl­anir stand­ist. Við hér höldum máli. Við getum minnkað sam­drátt okkar um 45 til 50 pró­sent fram til 2030 sam­kvæmt aðgerða­á­ætlun þar um.“

Vildi hann minna á að það væri líka til önnur leið sem væri að auka kolefn­is­bind­ingu, bæði með skóg­rækt og end­ur­heimt vot­lendis. „Ef við stöndum við það sem við höfum sam­þykkt af áætl­unum og gerum aðeins betur höfum við að minnsta kosti staðið við okkar skerf,“ sagði hann að lokum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár