Drangajökull verður líklega horfinn árið 2050

Nið­ur­stöður nýrrar rann­sóknar draga upp dökka mynd af fram­tíð Dranga­jök­uls. Höfundar hennar telja þó að stjórn­völd hafi enn tíma til að und­ir­búa við­brögð sín.

Eini jök­ull Vest­fjarða, Dranga­jök­ull, er á hverf­anda hveli. Samkvæmt nið­ur­stöðum nýrrar rann­sóknar, sem byggði á marg­þættri og nýstár­legri grein­ingu hóps vís­inda­manna, gæti svo farið að jök­ull­inn yrði horf­inn, bók­staf­lega gufaður upp, um árið 2050.

Það er ekki í fjar­lægri fram­tíð þótt ártalið virð­ist fram­andi. Þangað til eru ein­ungis þrjá­tíu ár.

Afar ólík­legt er að þess­ari þróun verði snúið við. Til þess er sá hraði sem hlýnun jarðar er að eiga sér stað á of mik­ill. En þó að rann­sóknin dragi upp skugga­lega mynd af fram­tíð Dranga­jök­uls benda nið­ur­stöð­urnar til þess að stjórn­völd hafi enn tíma til að und­ir­búa við­brögð sín.

Þessar nýtil­komnu upp­lýs­ingar geta nýst til fram­tíð­ar­stefnu­mót­unar, ekki síst þeim sem koma að fyr­ir­hug­uðum vatns­afls­virkj­unum á svæð­inu. Sé þeim ætlað að virkja jök­ul­vatn þarf að vega og meta kostn­að­inn við bygg­ingu þeirra og þess líf­tíma sem af þeim er að vænta með til­liti til bráðn­unar jök­uls­ins.

Þetta er meðal þess sem aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar, forn­lofts­lags­fræð­ing­ur­inn David John Harning, segir í við­tali við Kjarnann. Rann­sóknin er dokt­ors­verk­efni Davids og hluti af stærra verk­efni sem Áslaug Geirs­dóttir, pró­fessor við jarð­vís­inda­deild Háskóla Íslands, hefur leitt.

Rann­sókn­ar­nið­ur­stöð­urnar voru nýverið birtar í vís­inda­tíma­rit­inu Geophysical Research Letters. Í stuttu máli var í rann­sókn­inni meðal ann­ars not­ast við leifar af bakt­er­íum og þör­ungum sem varð­veist hafa í seti vatna við Dranga­jökul til að meta breyt­ingar á hita­stigi á svæð­inu á síð­ustu tíu þús­und árum. Á því tíma­bili í jarð­sög­unni þegar hita­stig var sam­bæri­legt við það sem vænst er nú við lok 21. ald­ar­innar.

David John Harning er fornloftslagsfræðingur. Hann hefur rannsakað Drangajökul í sex ár.
David John Harning er forn­lofts­lags­fræð­ingur. Hann hefur rann­sakað Dranga­jökul í sex ár.

Höfundar rann­sókn­ar­innar not­uðu svo þetta mat á þróun hita­stigs, ásamt svæð­is­bundnum lofts­lags­hermum og fyr­ir­liggj­andi gögnum og lík­önum á þróun lofts­lags og jökla á Íslandi, til að spá fyrir um hop Dranga­jök­uls.

Nið­ur­staðan var sem fyrr segir sú að með áfram­hald­andi hlýnun gæti jök­ull­inn horfið um árið 2050.

Var fjölfarinn á árum áður

Dranga­jök­ull er nyrsti jök­ull Íslands. Sérstaða hans felst einnig í því að hann er eini jök­ull lands­ins sem er í undir þús­und metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Hann dregur nafn sitt af Dranga­skörðum, sjö mögn­uðum og hrika­legum jarð­laga­stöflum sem ganga í sjó fram í mynni Dranga­víkur á Ströndum.

Dranga­jök­ull var mjög fjöl­far­inn þegar Horn­strandir voru í byggð. Yfir hann héldu menn fót­gang­andi eða á hestum og var til dæmis fluttur reka­viður yfir jökul­inn af Ströndum niður í Djúp.

Drangajökull er eini jökull Vestfjarða. Úr honum ganga þrír aðalskriðjöklar; í Kaldalón í Djúpi, Leirufjörð í Jökulfjörðum og Reykjarfjörð á Hornströndum. Staða þessara jökulsporða hefur verið mæld nær árlega síðan 1931.
Dranga­jök­ull er eini jök­ull Vest­fjarða. Úr honum ganga þrír aðal­skrið­jöklar; í Kaldalón í Djúpi, Leiru­fjörð í Jök­ul­fjörðum og Reykj­ar­fjörð á Horn­ströndum. Staða þess­ara jök­ul­sporða hefur verið mæld nær árlega síðan 1931.

Ólíkt öðrum íslenskum jöklum hefur stærð Dranga­jök­uls hald­ist nokkuð stöðug síð­ustu ár þrátt fyrir að eldri rann­sóknir hafi bent til að hann myndi hverfa á innan við hálfri öld. Þetta er lík­lega vegna stað­setn­ingar jök­uls­ins á Vest­fjörðum, þar sem hann verður fyrir áhrifum frá lægra hita­stigi sjávar sam­an­borið við jöklana við suð­ur­strönd­ina.

Hin nýja rann­sókn styrkir nið­ur­stöður fyrri rann­sókna og gefur við­bótar upp­lýs­ingar sem að sögn höf­unda hennar er hægt að nota til að spá fyrir um áhrif hlýn­unar lofts­lags á Dranga­jökul. Þar sem vatns­afls­virkj­anir í jök­ulám fram­leiða yfir 70% allrar raf­orku hér á landi er skiln­ingur á þróun jökla sér­lega mik­il­vægur fyrir orku­ör­yggi lands­ins.

Áslaug Geirsdóttir, prófessor í jarðvísindum, ásamt hópi annarra vísindamanna við rannsóknir á Drangajökli.
Áslaug Geirs­dóttir, pró­fessor í jarð­vís­indum, ásamt hópi ann­arra vís­inda­manna við rann­sóknir á Dranga­jökli.

Lofts­lags- og jök­ul­líkön eru nauð­syn­leg tæki til að spá fyrir um breyt­ingar á lofts­lagi næstu aldar. Til að bæta nákvæmni lík­an­anna er hins vegar mik­il­vægt að prófa getu þeirra til að end­ur­gera lofts­lag for­tíðar eins nákvæm­lega og hægt er með til­tækum gögnum.

Áhugi forn­lofts­lags­fræð­ings­ins Davids bein­ist einmitt að því að nota gögn um breyt­ingar á lofts­lagi for­tíðar til að spá fyrir um og setja í sam­hengi við það sem er að ger­ast í dag og kemur til með að eiga sér stað í fram­tíð­inni.

Fortíðin notuð til að spá fyrir um framtíðina

Hann bendir á að fyrir 9 til 7 þús­und árum hafi hita­stig verið sam­bæri­legt við það sem búast má við á næstu öld. „Ef að við getum sagt til um hvernig lands­lagið var þá, svo sem stærð jökla, gróð­ur­far og gæði vatns í stöðu­vötnum, þegar hita­stig var af nátt­úru­legum orsökum hærra en það er í dag, getum við dregið upp mynd af því hverjar horf­urnar eru í nán­ustu fram­tíð.“

Drangajökull er eini jökull Vestfjarða.
Dranga­jök­ull er eini jök­ull Vest­fjarða.

David segir að vís­inda­menn hafi dreg­ist að norð­ur­slóðum til þess­ara rann­sókna, „ekki aðeins af því að jökl­arnir eru tákn­mynd lofts­lags­breyt­inga, heldur einnig vegna þess að breyt­ing­arnar eru meira en tvö­falt hrað­ari á norð­ur­slóðum en á nokkru öðru svæði á plánet­unni. Af þeim sökum eru lofts­lags­breyt­ingar þar miklu sýni­legri en ann­ars staðar.“

David er í hópi vís­inda­manna sem hefur ein­beitt sér að því að rann­saka forn­lofts­lag Íslands. Síðustu sex árin hefur hann rann­sakað Dranga­jökul. Í fyrsta hluta rann­sókn­ar­innar, sem fólst í því að skoða set­lög í vötnum umhverfis jök­ul­hett­una, sýndi hann fram á að Dranga­jök­ull hvarf fyrir um 9000 árum og mynd­að­ist svo aftur fyrir um tvö þús­und árum.

Hitastig helsti áhrifavaldurinn

Þar sem hita­stig er lyk­ilá­hrifa­valdur þegar kemur að íslensku jöklunum var dregin sú ályktun af gögn­unum að hita­stigið hefði lík­lega verið hærra fyrir 9000 árum en það er í dag. David og aðrir sem að rann­sókn­inni komu átt­uðu sig á því að með því að finna út hversu miklu hlýrra var þá en nú væri hægt að veita dýr­mæta inn­sýn í fram­tíð Dranga­jök­uls. „Svo spurn­ingin varð hversu mikið hlýrra var þá en nú?“

Jökulvatn af Drangajökli.
Jök­ul­vatn af Dranga­jökli.

Til að svara þeirri spurn­ingu skoð­aði David nánar set­lögin og í það skiptið með því að greina frumu­himnu­brot úr fornum bakt­er­íum og þör­ungum. Þetta var gagn­legt því að frumu­upp­bygg­ing bakt­ería og þör­unga aðlag­ast og breyt­ist í takti við hita­stig. Með þessu móti er því hægt að afla gagna um hita­stig á þeim svæðum þar sem þessar líf­verur hafa búið í fyrnd­inni. Með aðstoð lofts­lags­lík­ana var svo lagt mat á hversu hlýtt þurfi að vera til að bræða Dranga­jökul.

Rannsókn Davids og félaga er ein­stök að ýmsu leyti og í henni voru sam­tvinn­aðar aðferðir margra sviða vís­ind­anna. Þannig var til dæmis stuðst við jökla­sögu, set­laga­fræði og jarð­efna­fræði. „Þver­fag­leg vinna rann­sókn­ar­hóps­ins gerði honum kleift að fara óhefð­bundnar leiðir og taka á flóknum og mik­il­vægum spurn­ingum um breyt­ingar á lofts­lagi fram­tíð­ar­innar,“ segir David.

Í mörgum rann­sóknum á forn­lofts­lagi hefur verið not­ast við annað hvort leifar bakt­ería eða þör­unga til að svara spurn­ingum en það hefur ekki áður verið gert sam­tímis. „Vís­inda­menn eru enn að læra hvernig hægt er að nota þessar aðferðir og því getur þessi sam­þætta vinna okkar fært okkur eitt skref áfram.“

Helsta nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar var sú að fyrir um 9000 árum, er Dranga­jök­ull hvarf, var með­al­hiti á norð­vestur hluta Íslands um 2,2 gráðum hærri en hann er í dag. Miðað við spár um hlýnun á Íslandi næstu árin verður sama hita­stigi náð árið 2050 og þar með er hægt að áætla að um það leyti muni jök­ull­inn vera horf­inn eða um það bil að hverfa.

Viðbragðstíminn um 10-100 ár

En hversu nákvæmar eru þessar nið­ur­stöður og hvaða þættir gætu helst haft áhrif á þró­un­ina?

„Einn helsti óvissu­þátt­ur­inn er hversu hratt Dranga­jök­ull getur bráðnað,“ segir David. „Fyrir meira en níu þús­und árum, áður en for­veri Dranga­jök­uls hvarf, var hlýn­unin mun hæg­ari en hún er í dag og þá gat jök­ull­inn brugð­ist hægt og rólega við. Ef hita­stig myndi hækka um 2,2 gráður á morgun myndi það ekki þýða að Dranga­jök­ull hyrfi á morgun. Fyrir lít­inn jökul sem þennan þá er við­bragðs­tím­inn á bil­inu tíu til hund­rað ár svo það gæti verið sá tími sem það tæki hann að hverfa.“

Hins vegar, segir David, sýna nið­ur­stöður óháðra jökla­lík­ana svip­aða nið­ur­stöðu, „svo lík­lega er okkar mat ekki fjarri lagi“.

Drangajökull er fimmti stærsti jökull landsins og er um 200 ferkílómetrar að stærð.
Dranga­jök­ull er fimmti stærsti jök­ull lands­ins og er um 200 fer­kíló­metrar að stærð.

David segir að hægt sé að vissu leyti að yfir­færa nið­ur­stöður rann­sókn­anna á Dranga­jökli á aðra íslenska jökla og jökla ann­ars staðar í heim­inum. „Hitastig er aðal áhrifa­valdur íslenskra jökla og því væri hægt að nota þessi gögn um stað­bundið hita­stig í öðrum lík­önum. Fyrri líkön byggðu á gögnum úr Norður-Atl­ants­hafi og Græn­landi. Hins vegar þá end­ur­spegla þau ekki endi­lega lofts­lagið á Íslandi. Með því að setja þessi nýju hita­gögn inn í önnur líkön gætum við betur séð fram­tíð­ar­þróun ann­arra íslenskra jökla.“

Við slíkar rann­sóknir verður þó að hafa í huga að haf­straumar umhverfis Ísland gera það að verkum að hita­stig á norð­vestur hluta lands­ins er lægra en á suð­ur­hluta þess. Því er ekki full­víst að gögnin sem aflað var við Dranga­jökul end­ur­spegli hita fyrri árþús­unda við Vatna­jökul, svo dæmi sé tekið.

Nokkrir óvissuþættir

Því væri mjög dýr­mætt að gera sam­bæri­legar set­laga­rann­sóknir ann­ars staðar á Íslandi. Ýmsir aðrir þættir geta einnig haft áhrif á aðra jökla. Því stærri sem jöklar eru þeim mun hægar hopa þeir. Að auki geta aðrir óvissu­þættir, svo sem eld­gos, einnig haft áhrif, til dæmis hvað varðar þróun Mýr­dals­jök­uls og Vatna­jök­uls. „Til að gera langa sögu stutta, það á enn eftir að gera margar áhuga­verðar rann­sóknir,“ segir David.

Fjöldi vísindamanna hefur lagt stund á rannsóknir á Drangajökli og nágrenni síðustu ár og áratugi.
Fjöldi vís­inda­manna hefur lagt stund á rann­sóknir á Dranga­jökli og nágrenni síð­ustu ár og ára­tugi.

Hann bendir á að stað­bundnar rann­sóknir sem þessar gefi nær­sam­fé­lögum gríð­ar­lega mik­il­vægar upp­lýs­ingar þegar kemur að áhrifum lofts­lags­breyt­inga. „Rann­sóknir sem ná til stórra land­svæða hafa ekki sömu áhrif og þegar þú getur sagt fólki að jök­ull­inn í sveit­inni þeirra muni hverfa eftir ákveð­inn tíma eða að hita­stig muni hækka ákveðið mikið. Þannig getum við und­ir­búið okkur betur fyrir það sem koma skal.“

Sjónir vís­inda­manna hafa beinst að að Dranga­jökli í auknum mæli und­an­farin ár. Jarð­fræð­ingar hafa notað marg­vís­legar aðferðir, meðal ann­ars rann­sakað set­lög og ald­urs­greint jök­ul­garða, til að skoða sögu jök­uls­ins síð­ustu tíu þús­und ár. Þær rann­sóknir hafa þó aðeins sýnt hvernig jök­ull­inn hefur breyst að stærð.

Niðurstaðan styður við eldri rannsóknir

Nýlega hafa verið gerð reikni­líkön sem not­uð­ust við þessar upp­lýs­ingar til að meta hversu hlýtt var þegar íshettan bráðn­aði. Sú rann­sókn náði hins vegar aðeins til ákveð­inna tíma­bila. „Með nýju hitafars­gögn­unum okkar gátum við metið hita­breyt­ingar sjálf­stætt, óháð jökla­gögn­unum, sem var mjög þarft. Nið­ur­stöður okkar eru svo sam­bæri­legar þeim sem feng­ust út úr jök­ul­lík­ön­unum sem styður því við meg­in­nið­ur­stöður okkar.“

Með rann­sókn­inni var hægt að setja fram sam­felld gögn um þróun hita­stigs á svæð­inu. „Þetta hefur vantað til rann­sókna á forn­lofts­lagi á Íslandi og ég held að við höfum nú gert þetta í fyrsta skipti með mik­illi vissu.“

Drangajökull dregur nafn sitt af Drangaskörðum.
Dranga­jök­ull dregur nafn sitt af Dranga­skörðum.

En er hægt að gera eitt­hvað til að koma í veg fyrir að Dranga­jök­ull hverfi á næstu ára­tugum?

David telur svo ekki vera. „Jafnvel þótt við drögum úr losun koltví­sýr­ings á morgun og náum kolefn­is­hlut­leysi þá mun losun okkar í dag vera áfram í and­rúms­loft­inu í ára­tugi. Þetta þýðir að við erum alltaf að horfa til að minnsta kosti 1,5 gráða hækkun á hita­stigi til árs­ins 2100. Og af því að áhrifin á norð­ur­slóðum eru marg­falt meiri en ann­ars staðar þá mun hlýnun á Íslandi verða til þess að mjög ólík­legt er að það sé nokkuð hægt að gera til að bjarga Dranga­jökli.“

Tæki til stefnumótunar

Hins vegar segir David að það að vita hvenær hann hverfur gefi stjórn­völdum færi á að bregð­ast við og móta stefnu til fram­tíðar út frá þeim upp­lýs­ingum. Það eigi sér­stak­lega við þá sem tengj­ast fyr­ir­hug­uðum vatns­afls­virkj­unum. „Auðvitað er raf­orkan nauð­syn­leg, en nú þarf að meta kostnað við bygg­ingu virkj­ana og bera saman þann tíma sem mögu­legt verður að afla orkunnar.“

Þetta er vegna þess að hið aug­ljósa blasir við: Ef jök­ull bráðnar hætta jök­ulár að renna frá honum og jök­ul­vötn hverfa sömu­leiðis.

Þrjár virkj­anir eru fyr­ir­hug­aðar í nágrenni Dranga­jök­uls: Aust­ur­gils­virkjun, Skúfna­vatna­virkjun og Hval­ár­virkjun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár