Landsvirkjun ætlar ekki í Austurgilsvirkjun

Lands­virkjun hefur ákveðið að und­an­geng­inni skoðun á fyr­ir­hug­aðri Aust­ur­gils­virkjun að halda ekki áfram með verk­efnið af sinni hálfu. For­svars­maður verk­efn­is­ins segir að næstu skref verði tekin eftir afgreiðslu ramma­á­ætl­unar.

Skjaldfannardalur við Ísafjarðardjúp og Drangajökull í baksýn. Bæirnir Laugaland (t.h.) og Skjaldfönn (t.v.) ásamt mögulegu stöðvarhúsi (gulur kassi ofarlega fyrir miðju).).
Skjald­fann­ar­dalur við Ísa­fjarð­ar­djúp og Dranga­jök­ull í bak­sýn. Bæirnir Lauga­land (t.h.) og Skjald­fönn (t.v.) ásamt mögu­legu stöðv­ar­húsi (gulur kassi ofar­lega fyrir miðju).). Mynd: Úr skýrslu Orkustofnunar

Lands­virkjun mun ekki koma að Aust­ur­gils­virkjun sem fyr­ir­huguð er í Skjald­fann­ar­dal við Ísa­fjarð­ar­djúp. Þetta er nið­ur­staða fyr­ir­tæk­is­ins eftir að hafa skoðað aðkomu sína að verk­efn­inu um hríð. Í til­lögu að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar, sem leggja á fram á þingi í þriðja sinn innan skamms, er lagt til að Aust­ur­gils­virkjun fari í orku­nýt­ing­ar­flokk. For­svars­menn verk­efn­is­ins segja að beðið verði með að ákveða næstu skref þar til Alþingi hefur fjallað um og afgreitt áætl­un­ina.

Í skrif­legu svari Lands­virkj­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að hag­kvæm­asta útfærslan af virkj­un­inni hafi reynst minni en áætlað var þegar fyr­ir­tækið hóf skoðun á aðild að verk­efn­inu.

Virkj­un­ar­verk­efnið miðar að því að virkja rennsli áa undan Dranga­jökli. Þegar verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar fjall­aði um virkj­ana­kost­inn á sínum tíma var miðað við að upp­sett afl gæti orðið 35 MW og að fram­leiddar yrðu 228 gígawattstundir af raf­orku á ári.

Hugmynd í skoðun frá 2014

Að baki verk­efn­inu stendur Bjartmar Pét­urs­son fisk­út­flytj­andi og eig­andi jarð­ar­innar Lauga­lands í Skjald­fann­ar­dal. Hann hóf skoðun á hug­mynd­inni vorið 2014 og leit­aði til Orku­stofn­unar í lok þess árs. Orku­stofnun hafði þá þegar skilað skýrslu um virkj­ana­kosti til umfjöll­unar í verndar- og orku­nýt­ing­ar­á­ætlun (3. áfanga ramma­á­ætl­unar), „en þar sem orku­ör­yggi á Vest­fjörðum er ábóta­vant ákvað stofn­unin að taka þessa hug­mynd upp á sína arma sem sína eigin,“ segir í við­auka sem gerður var við skýrsl­una og fjall­aði um Aust­ur­gils­virkjun.

Nið­ur­staða verk­efn­is­stjórn­ar­innar var í fram­hald­inu sú að leggja til að virkj­ana­hug­myndin færi í orku­nýt­ing­ar­flokk. Í rök­stuðn­ingi fyrir þeirri ákvörðun segir: Virkj­un­ar­kost­ur­inn er inni á svæði sem er óbyggt víð­erni sam­kvæmt laga­legri skil­grein­ingu, en sam­kvæmt nið­ur­stöðum fag­hóps 2 hefði virkjun á svæð­inu lítil áhrif á ferða­mennsku, beit og veiði. Í ljósi fram­kom­inna gagna um gróð­ur­far, jarð­fræði, fugla­líf, vatna­líf og menn­ing­arminjar á svæð­inu er lagt til að virkj­un­ar­kost­ur­inn verði í orku­nýt­ing­ar­flokki.

Tillaga lögð fram í þriðja sinn

Verk­efn­is­stjórnin skil­aði sinni vinnu til umhverf­is­ráð­herra í ágúst 2016. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu að ramma­á­ætlun sem fyrst var lögð fram á þingi það ár og svo aftur 2017 var Aust­ur­gils­virkjun í nýt­ing­ar­flokki í sam­ræmi við nið­ur­stöðu verk­efn­is­stjórn­ar­innar. Vegna ólgu í stjórn­mál­unum og tíð rík­is­stjórn­ar­skipti af þeim sökum var til­lagan hins vegar ekki afgreidd á Alþingi.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra hyggst nú á vor­þingi leggja til­lög­una fram óbreytta, þremur og hálfu ári eftir að verk­efn­is­stjórnin skil­aði sínum til­lögum og tæpum sjö árum eftir að vinna hennar hófst.

Vondadalsvatn og Djúpi pollur

Samkvæmt skýrslu Orku­stofn­unar um Aust­ur­gils­virkjun, sem verk­efn­is­stjórnin fékk til að byggja sitt mat á, kom fram að virkjað yrði í Aust­ur­gilsá sem fellur í Selá í Skjald­fann­ar­dal. Þar sagði að virkj­unin myndi nýta vatns­afl sem feng­ist úr Vonda­dals­vatni, Skeifu­vatni og Djúpa polli. Ráðgert væri að með­al­hæð inn­takslóns í Vonda­dals­vatni yrði í 435 metra hæð yfir sjó. Þaðan yrði lögð 3,9 kíló­metra löng vatns­pípa að stöðv­ar­húsi við Selá.

Reiknað var með að nær allt jök­ul­rennsli Selár færi í inn­takslónið og jafn­vel einnig rennsli jök­ul­vatna á svæðum vestan Skjald­fann­ar­dals með frek­ari fram­leng­ingu skurða.

Skynsamlegt að eyða ekki peningum í glannaskap

Kristinn Pét­urs­son, bróðir Bjart­mars, ráð­gjafi í orku­málum og fyrr­ver­andi verk­efn­is­stjóri Aust­ur­gils­virkj­unar, segir í sam­tali við Kjarnann að Lands­virkjun hafi skoðað aðkomu að fyrsta áfanga verk­efn­is­ins. Þær fram­kvæmdir sem þar hafi verið til skoð­unar séu ein­göngu á jörð­inni Lauga­landi sem er í eigu Bjart­mars. Rann­sókn­ar­vinna hafi aðal­lega farið fram þar.

Spurður um stöðu verk­efn­is­ins nú þegar Lands­virkjun hefur gefið það frá sér segir Kristinn að enn sé stefnt að því að það verði að veru­leika.

„En ég tel það grund­vall­ar­at­riði að til­laga að ramma­á­ætlun fari í gegnum þingið áður en farið verður að eyða meiri pen­ingum í verk­efnið,“ segir hann. „Annað væri glanna­legt og ófag­leg vinna að mínu mati. Skyn­semin segir manni að það eigi eng­inn á Íslandi að eyða pen­ingum í glanna­skap lengur. Við eigum að vera búin að læra það.“

Langt ferli

Kristinn bendir á að vinna að virkj­ana­verk­efnum taki langan tíma. Í þeim sé þörf á djúpri fag­vinnu, meiri en gangi og ger­ist í mörgum öðrum greinum. Vinna þurfi að rann­sóknum í langan tíma, jafn­vel ára­tugi, áður en hægt sé að taka end­an­legar ákvarð­anir. „Svona verk­efni eru tíma­frek­ari en við héldum. Það er því skyn­sam­legt að bíða núna þar til [ramma­á­ætlun] fer í gegnum þingið og eftir það er hægt að fara að skoða það af alvöru aftur í róleg­heit­unum.“

Spurður hvort til greina komi að reyna að fá ein­hverja aðra en Lands­virkjun að verk­efn­inu segir Kristinn ekki tíma­bært að svara því. „Það á eftir að koma í ljós.“

Á óbyggðu víðerni

Aust­ur­gils­virkjun færi inni á óbyggt víð­erni líkt og fyr­ir­huguð Hval­ár­virkjun á Ófeigs­fjarð­ar­heiði. Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, sagði í við­tali á mbl.is haustið 2017 að fyr­ir­tækið hefði ákveðið að skoða aðkomu sína að Aust­ur­gils­virkjun eftir að hún fékk góða umfjöllun í ramma­á­ætlun. Farið hafi verið í við­ræður við land­eig­endur og rann­sóknir gerðar á svæð­inu. „En þarna yrði farið inn á svæði sem ekki hefur áður verið virkjað og því yrðu umhverf­is­á­hrifin umtals­verð,“ sagði Hörður.

Aust­ur­gils­virkjun og Hval­ár­virkjun yrðu báðar langt frá meg­in­flutn­ings­kerfi raf­orku. Forsenda fyrir fram­kvæmd­unum er því teng­ing þeirra við raf­orku­kerfið. Und­an­farið hefur mest verið rætt um að flytja ork­una frá virkj­un­unum að tengi­punkti sem reistur yrði í Ísa­fjarð­ar­djúpi. Þaðan yrði svo raf­magnið flutt með loft­línum yfir Kolla­fjarð­ar­heiði og að Vest­ur­línu. Sá tengi­punktur myndi gagn­ast bæði Aust­ur­gils­virkjun og Hval­ár­virkjun sem og þriðju virkj­un­inni, Skúfna­vatna­virkjun, sem fyr­ir­huguð er á þessum slóðum.

Þegar virkj­anir á þessu svæði á Vest­fjörðum komu fyrst fram var hug­myndin sú að tengja raf­magnið beint úr Djúpinu og inn á Ísafjörð, með loft­línum, jarð­strengjum og jafn­vel sæstreng. Þannig myndi nást lang­þráð hring­teng­ing raf­magns á stórum hluta Vest­fjarða sem auka myndi raf­orku­ör­yggi á svæð­inu til muna. Slík áform eru ekki lengur í for­gangi heldur er nú horft til fyrr­nefndrar teng­ingar yfir Kolla­fjarð­ar­heiði og inn á meg­in­flutn­ings­kerfið.

Tengipunktur ekki háður fleiri virkjunum

Í apríl á síð­asta ári gaf Landsnet út skýrslu þar sem kostn­aður við teng­ingar Hval­ár­virkj­unar var met­inn. Samkvæmt henni munu tekjur Lands­nets af því að flytja raf­orku frá virkj­un­inni standa undir fram­kvæmdum við fyrsta áfanga nýs tengi­punktar í Ísa­fjarð­ar­djúpi.

Guð­mundur Ingi Ásmunds­son, for­stjóri Lands­nets, sagði í sam­tali við mbl.is er skýrslan kom út að nið­ur­staða kostn­að­ar­grein­ing­ar­innar væri ekki háð því að fleiri virkj­anir yrðu reistar á þeim slóðum sem tengi­punkt­ur­inn er fyr­ir­hug­aður, „en komi fleiri virkj­anir inn, sem gæti orðið annar áfangi þessa verk­efnis, mun það auð­vitað skila meiri tekjum]...]“.

Tillaga að friðlýsingu Drangajökulsvíðerna

Frá því að verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hóf umfjöllun sína um Aust­ur­gils­virkjun og lagði til að hún færi í nýt­ing­ar­flokk áætl­un­ar­innar hefur ýmis­legt dregið til tíð­inda. Ferða­mennska hefur blómstrað sem aldrei fyrr, svo dæmi sé tekið, og þá lagði Nátt­úru­fræði­stofnun til árið 2018 að Dranga­jök­uls­svæðið yrði frið­lýst.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kom fram að helsta ógn sem að svæð­inu stafi sé mögu­leg virkjun vatns­afla. „Við gerum okkur fulla grein fyrir því að Hval­ár­virkjun er í orku­nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar og að umhverf­is­mat á henni hefur farið fram. Einnig að Aust­ur­gils­virkjun er í orku­nýt­ing­ar­flokki í til­lögum að þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar,“ sagði Trausti Bald­urs­son, for­stöðu­maður vist­fræði- og ráð­gjafa­deilar Nátt­úru­fræði­stofn­unar, sem leiddi vinnu við til­lögu­gerð­ina, í sam­tali við mbl.is. „En hlut­verk okkar í þessu til­viki er að rann­saka og kort­leggja nátt­úru­far og gera til­lögur um vernd út frá því, óháð hags­munum ann­arra. Því hlut­verki erum við að sinna með þessum til­lögum. Hvað svo verður um þær er í ann­arra höndum.“

Hópur þrjá­tíu land­eig­enda af átta jörðum í Árnes­hreppi sendu síð­asta sumar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem röskun Dranga­jök­ul­svíð­erna með þremur fyr­ir­hug­uðum vatns­afls­virkj­unum var and­mælt. Hug­mynd­irnar sem um ræðir eru auk Aust­ur­gils­virkj­unar og Hval­ár­virkj­unar Skúfna­vatna­virkjun í Ísa­fjarð­ar­djúpi.

„Þessar stór­karla­legu virkj­ana­hug­mynd­irnar eru full­komin tíma­skekkja í nútíma­sam­fé­lagi,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni sem send var til ráð­herra og for­manna stjórn­mála­flokka. „Nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­mið njóta sífellt meira fylgis og óbyggð víð­erni hafa öðl­ast við­ur­kenn­ingu og vernd í lögum. Þessar virkj­ana­hug­mynd­irnar eiga því að okkar mati heima í verndar- eða bið­flokki ramma­á­ætl­unar, ára­tugs­gamlar for­sendur þeirra eru löngu úreltar. Allir sem kynna sér stað­reyndir um raf­orku­ör­yggi á Vest­fjörðum vita að þessar virkj­anir hafa þar engin áhrif. Raforkan yrði seld hæst­bjóð­anda suður á land, lík­lega til gagna­vera sem leita raf­myntar, s.s Bitcoin.“

Umhverf­is­stofnun hefur til­lögu Nátt­úru­fræði­stofn­unar að frið­lýs­ingu Dranga­jök­ul­svíð­erna enn til með­ferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár