Rúmlega fimmtungur leigjenda óttast að missa húsnæðið sitt

Yngra fólk og tekju­lægri eru lík­leg­ustu sam­fé­lags­hóp­arnir til að vera á leigu­mark­aði.

Alls segj­ast 22 pró­sent leigj­enda að lík­legt sé að þeir muni missa hús­næði sitt. Fjöldi þeirra sem telja lík­legt að þeir missi hús­næði hefur vaxið mikið á und­an­förnum árum. Árið 2013 var hlut­fall þeirra 14 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á fast­eigna­mark­aði.

Í nið­ur­stöðum MMR kemur fram að leigj­endum hafi fjölgað um fjögur pró­sentu­stig frá sept­em­ber 2013 til sept­em­ber 2016. Á sama tíma hefur skynjun leigj­enda á öryggi hús­næðis síns hrakað og nú telur rúmur fimmt­ungur leigj­enda að lík­legt sé að þeir muni missa hús­næði sitt.

Yngra fólk og tekju­lægri eru lík­leg­ustu sam­fé­lags­hóp­arnir til að vera á leigu­mark­aði og því koma erf­ið­leikar á leigu­mark­aði mest niður á þessum hópum. Sem dæmi má nefna að 43 pró­sent þeirra sem voru á aldr­inum 18-29 ára bjuggu í leigu­hús­næði. Alls sagð­ist 29 pró­sent í sama ald­urs­bili búa í for­eldra­húsum. Yfir helm­ingur íbúa á heim­ilum þar sem heim­il­is­tekjur voru undir 250 þús­und krónur í leigu­hús­næði, en ein­ungis sex pró­sent þeirra sem bjuggu á heim­ilum með heim­il­is­tekjur yfir milljón krónur á mán­uði bjuggu í leigu­hús­næði.

Úrtakið var 18 ára og eldri og valið var handa­hófs­kennt úr hópi álits­gjafa MMR. Svar­fjöldi var 985 ein­stak­lingar og könn­unin var fram­kvæmd dag­anna 20. til 26. sept­em­ber 2016. Vikmörk eru +/-3,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár