Bófarnir á bókasafninu

Á nokkrum árum hafa bíræfnir þjófar kom­ist yfir millj­ónir danskra króna af fjöl­mörgum banka­reikn­ingum. Þeir sem orðið hafa fyrir barð­inu á þjóf­unum eiga það sam­eig­in­legt að hafa notað almenn­ings­bóka­söfn víða í Danmörku.

Á Þor­láks­messu fyrir fjórum árum lagði maður sem við skulum kalla Bjarna, og er búsettur í Árósum, leið sína í bank­ann. Hann spurði gjald­ker­ann um stöð­una á banka­reikn­ingi sínum og sperrti eyrun þegar gjald­ker­inn upp­lýsti hann um inni­stæð­una. „Þetta getur varla passað,“ sagði Bjarni og bað gjald­ker­ann að renna yfir sein­ustu færslur. „Þú ert varla búinn að gleyma að þú varst að kaupa bíl fyrir 200 þús­und (4,2 millj­ónir íslenskar) fyrir skömmu,“ sagði gjald­ker­inn. „Svo­leiðis sést nú á banka­reikn­ingnum“. „Ég er ekki far­inn að tapa minni, en var ekki að kaupa bíl,“ svar­aði Bjarni. „Greiðsla fyrir BMW stendur sem skýr­ing,“ svar­aði gjald­ker­inn. Og þarna stóð það svart á hvítu, á tölvu­skjánum. 200 þús­und, greiðsla fyrir BMW.

Bjarni fór heim en „bíla­kaupin“ urðu til þess að hann var algjör­lega „úti að aka“ næstu daga. Pur­u­steikin og brún­uðu kart­öfl­urnar, dans­inn í kringum jóla­tréð, pakk­arnir og messan, allt var þetta á sínum stað en Bjarni var sífellt að hugsa um „bíla­kaupin“. Milli jóla og nýárs fór Bjarni í annan banka, þar sem hann er líka með banka­reikn­ing. Þar átti hann, sam­kvæmt mán­að­ar­gömlu yfir­liti frá bank­anum, 640 þús­und (13.3. millj­ónir íslenskar) á bók­inni. En viti menn, inni­stæðan á bók­inni var nú 0 krónur. Hver ein­asta króna sem sé á bak og burt.

Sagan af Bjarna er ekki eins­dæmi. Í sjón­varps­frétta­tíma danska útvarps­ins, DR, síð­ast­lið­inn sunnu­dag, 6. des­em­ber, var fjallað ítar­lega um sér­kenni­legt fjársvika­mál, sem teygir sig yfir nokk­urra ára tíma­bil. „Bílakaup“ Bjarna fyrir fjórum árum er ein­ungis einn angi þess máls.

11 handteknir

Danska lög­reglan var snemma á fótum 18. júní sl. Uppúr klukkan fimm um morg­un­inn hand­tók lög­reglan 11 menn á aldr­inum 16 til 30 ára. Menn­irnir voru að sögn lög­reglu frá Árósum, Óðins­véum, Norður- Sjálandi og af Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu. Hinir hand­teknu reynd­ust ekki vera neinn engla­kór, eins og lög­reglan orð­aði það, margir þeirra höfðu áður kom­ist í kast við lögin. Ástæða hand­tak­anna var umfangs­mikið fjársvika­mál sem staðið hafði yfir árum saman. Annar tveggja bræðra, sem lög­reglan kallar höf­uð­paurana í því máli, var meðal hinna hand­teknu. Hinn hafði ekki átt heim­an­gengt af þeirri ein­földu ástæðu að hann sat í fang­elsi. Árið 2019 hlutu bræð­urnir dóma fyrir fjár­svik, annar í þriggja og hálfs árs fang­elsi, hinn fékk fimm ára dóm. Bræð­urnir höfðu setið lengi í gæslu­varð­haldi áður en dómar féllu og það var ástæða þess að sá sem fékk styttri dóm­inn var laus úr prís­und­inni.

[adspot]Hand­tökur ell­efu­menn­ing­anna í júní tengj­ast, að sögn lög­reglu, allar fjársvikum, sem bræð­urnir stjórn­uðu og skipu­lögðu. Með notkun NemId aðgangskorta í eigu ann­arra.

NemId kortið

Áður en lengra er haldið er rétt að útskýra í stuttu máli danska auð­kennis- og aðgangskortið, NemId (Nem id).

Skilyrði þess að geta fengið NemId er að umsækj­andi hafi danska kenni­tölu, svo­kallað CPR númer. Til þess að kom­ast inn í „kerfið“, við flutn­ing til lands­ins, er nauð­syn­legt að fá kenni­tölu, sem er ein­ungis úthlutað einu sinni. Þegar kennitalan er fengin (fæð­ing­ar­dagur, mán­uður og ár plús fjórir tölu­stafir) er hægt að sækja um NemId.

NemId kortið fær umsækj­andi sent heim í pósti, eins og hvert annað bréf. Til að virkja kortið þarf not­and­inn að skrá sig inn, lang oft­ast kenni­tölu og leyni­orði. Á kort­inu eru 176 núm­eraraðir, hver þeirra ein­ungis notuð einu sinni. Í hvert skipti sem eig­andi korts­ins notar það sér hann jafn­framt hve margar núm­eraraðir eru eftir á kort­inu. Þegar örfáar núm­eraraðir eru ónot­aðar fær eig­and­inn sent nýtt kort í pósti. Hægt er að loka kort­inu, ef sér­stök ástæða er til og þá kemur nýtt kort í póst­inum.

Bankar og samskipti við hið opinbera

Stofn­anir á vegum rík­is­ins „hið opin­bera“ nota allar raf­ræn sam­skipti, engin hefð­bundin bréf. Ef bank­inn eða „hið opin­bera“ vill til­kynna eitt­hvað fær við­kom­andi til­kynn­ingu í tölvu­pósti. Þá þarf við­tak­andi tölvu­pósts­ins að fara á heima­síðu send­and­ans og skráð sig þar inn með NemId. Ein­stak­lingur sem ætlar að greiða reikn­inga, eða milli­færa i heima­banka, skráir sig inn með NemId kort­inu, og fær þá aðgang að eigin banka­reikn­ingi. Sama gildir ef hann fær til­kynn­ingu í póst­hólfið frá skatt­inum, þá þarf hann að fara á heima­síðu skatts­ins til að skoða til­kynn­ing­una og til þess notar hann NemId. Í stuttu máli sagt NemId er lyk­ill­inn að ótal mörgu sem varðar per­sónu­leg mál. Þess vegna er mik­il­vægt að passa vel uppá kortið og nota ein­ungis „öruggar“ tölvur, þegar verið er að gera eitt­hvað sem krefst inn­skrán­ingar með kort­inu.

Tölvurnar á bókasöfnunum

Dönsk almenn­ings­bóka­söfn eru bæði mörg og stór. Þeim er skylt að hafa tölvur til afnota fyrir við­skipta­vini. Ástæða þess er sú ákvörðun „hins opin­bera“ að not­ast ein­vörð­ungu við raf­ræn sam­skipti, en ekki er hægt að skylda fólk til að eiga tölvur. Á söfn­unum eru þess vegna tölvur, oft­ast margar. Þetta not­færa margir sér, þeir sem ekki hafa inter­net heima hjá sér, eða eiga jafn­vel ekki tölvu fara á bóka­safnið. Þótt tölv­urnar þar séu einkum not­aðar til að leita upp­lýs­inga og „kíkja á netið“ eru margir sem nota þær líka til að fara í heima­bank­ann.

Aðferðin er fremur einföld

Í áður­nefndum sjón­varps­frétta­tíma DR var farið ítar­lega yfir „bóka­safns­þjófn­að­ina“ og aðferðir bræðr­anna og aðstoð­ar­manna þeirra. Eins og nefnt var hér að framan nota margir tölv­urnar á bóka­söfn­unum til að sinna banka­við­skiptum. Þetta not­færðu þjófarnir sér. Aðferðin, trix nr. 1, var að stinga svoköll­uðum „keylog­ger“ í sam­band aftan á tölv­unni. „Keylog­ger“ er eins konar minnis­lyk­ill sem skráir allt sem slegið er á lykla­borð við­kom­andi tölvu. Með þessu móti gátu þjófarnir séð aðgangs­orð og lyk­il­orð þess sem not­aði tölv­una og líka beðið um að NemId kort­inu yrði lokað. Þá fær eig­andi korts­ins til­kynn­ingu um að kort­inu hafi verið lokað en nýtt kort sé á leið­inni. Og þá kemur trix númer 2. Þjófarnir voru búnir að kynna sér hvar eig­andi korts­ins átti heima, og fylgd­ust svo með póst­inum. Þegar póst­ur­inn var búinn að stinga umslag­inu með nýja NemId kort­inu í póst­kass­ann þurfti sá sem fylgd­ist með að ná umslag­inu úr kass­anum (oft­ast mjög auð­velt) og þar með var eft­ir­leik­ur­inn auð­veldur.

Lengi verið vitað um aðferðina

Vitað er að þjófarnir hafa stundað þessa iðju á að minnsta kosti 46 bóka­söfnum í Danmörku og upp­hæð­irnar sem þeir hafa náð að svíkja út nema, var­lega áætlað, 20 millj­ónum danskra króna. Dönskum bóka­söfnum er skylt að hafa tölvur til afnota fyrir við­skipta­vini. Sér­fræð­ingar sem frétta­maður danska sjón­varps­ins ræddi við sögð­ust undr­andi á frá­gangi tölvanna á bóka­söfnum, hægð­ar­leikur einn að búa svo um að ekki sé hægt að kom­ast að „bak­hlið“ tölv­unnar. Lengi hefði verið vitað að með minnis­lykl­inum „keylog­ger“ væri auð­velt að nálg­ast upp­lýs­ingar sem ekki ættu að vera aðgengi­legar öðrum en við­kom­andi not­anda.

Yfirmenn bóka­safna sem frétta­maður DR hafði sam­band við vegna vinnslu frétta­skýr­ing­ar­innar sögðu allir að nú stæði yfir vinna við að gera tölv­urnar á söfn­unum örugg­ari.

Í lokin er rétt að nefna að gefnar hafa verið út ákærur á hendur mönn­unum 11 sem lög­reglan hand­tók í júní. Ekki er vitað hvenær rétt­ar­höldin hefj­ast.

Hvort fólk sem orðið hefur fyrir barð­inu á þjóf­unum fær tjón sitt bætt liggur ekki fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár