Munu bólusetningavegabréf færa ferðalög til fyrra horfs?

Flug­fé­lög eru þegar farin að prófa smá­forrit sem geyma upp­lýs­ingar far­þega um bólu­setn­ingar og sýna­tökur. Þó að bólu­setn­ing gegn COVID-19 verði ekki skylda er ljóst að ýmsir þjón­ustu­að­ilar gætu krafið við­skipta­vini um ónæm­is­vott­orð.

Bólusetning gegn COVID-19 er að hefjast víða um heim um þessar mundir. Enn er ekki vitað hversu lengi vörnin gegn veirunni endist.
Bólu­setn­ing gegn COVID-19 er að hefj­ast víða um heim um þessar mundir. Enn er ekki vitað hversu lengi vörnin gegn veirunni end­ist. Mynd: EPA

Stjórn­völd í Ísrael eru þau fyrstu í heim­inum til að ákveða að gefa út „græn vega­bréf“ til þeirra borg­ara lands­ins sem farið hafa í bólu­setn­ingu gegn COVID-19. Vega­bréfið greiðir hand­höfum leið fram hjá ýmsum hindr­unum sem settar hafa verið á í far­aldr­inum. Þannig þurfa þeir sem það fá ekki að fara í ein­angrun eða sótt­kví eftir að hafa orðið útsettir fyrir veirunni vegna nálægðar við sýkta mann­eskju og einnig munu þeir geta sótt veit­inga­hús og menn­ing­ar­við­burði, að því er heil­brigð­is­ráð­herra lands­ins hefur sagt.

Fólk mun fá græna vega­bréfið tveimur vikum eftir að það hefur fengið síð­ari sprautu bólu­efn­is­ins.

Samkvæmt því sem heil­brigð­is­ráð­herr­ann Yuli Edel­stein segir munu þeir sem fá vega­bréfið ekki þurfa að fara í sýna­töku áður en lagt er í ferða­lag til útlanda.

[adspot]

Allt frá upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa fjöl­margir aðilar jafnt úr heil­brigð­is­stétt sem ferða­þjón­ust­unni, bent á að bólu­setn­ing sé leiðin út úr þreng­ing­unum. Bóluefni hafa svo verið þróuð á met­tíma og bólu­setn­ing er þegar hafin í nokkrum löndum, m.a. meðal ákveð­inna hópa í Bret­landi. Á næstu viku – jafn­vel dögum – hefst svo bólu­setn­ing í mörgum til við­bótar. Enn er beðið leyfis Lyfja­stofn­unar Evrópu svo að heim­ilt verði að bólu­setja íbúa innan EES-landa, þar á meðal Íslands.

En hvaða þýð­ingu mun bólu­setn­ing hafa fyrir utan hið aug­ljósa – að verja þann sem hana fær fyrir sjúk­dómnum COVID-19 sem kór­ónu­veiran veldur?

[links]Tveir óvissu­þættir varð­andi bólu­efnin eru helsta hindr­unin í vegi fyrir því að heil­brigð­is­yf­ir­völd víða, sem og Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, eru hik­andi við að gefa án fyr­ir­vara, út sér­stök vega­bréf eða skír­teini til þeirra sem fá bólu­setn­ingu gegn COVID-19 á næstu mán­uðum. Í fyrsta lagi er ekki vitað hversu lengi vörn bólu­efn­anna gegn sjúk­dómnum virkar og í öðru lagi er enn ekki vitað hvort að sá sem hefur verið bólu­settur og myndað mótefni getur borið veiruna með sér og sýkt aðra – þó að hann sjálfur fái engin ein­kenni COVID-19.

Fleiri óvissu­þættir eru vissu­lega til staðar. Einn þeirra er tregða fólks til að láta bólu­setja sig yfir höfuð. Þó að Íslend­ingar séu mjög jákvæðir í garð bólu­setn­ingar gegn COVID-19 er sömu sögu ekki að segja í mörgum öðrum ríkjum. Þetta spilar svo aftur saman með þeirri óvissu sem fylgir því hvort að bólu­settur ein­stak­lingur getur enn smitað aðra.

Stjórn­völd víð­ast hvar í heim­inum sem og Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin vilja ekki gera bólu­setn­ingu gegn COVID-19 að skyldu. Sú ákvörðun á að hvíla hjá ein­stak­lingnum. Engu að síður er hvatt til þess að sem flestir láti bólu­setja sig svo að hið umtal­aða hjarð­ó­næmi sam­fé­lags, hóps eða heilu þjóð­anna náist.

Það sem hins vegar gæti gerst og er þegar farið að ger­ast er að fyr­ir­tæki, t.d. flug­fé­lög, krefj­ist þess að við­skipta­vinir fram­vísi vott­orði til marks um að þeir séu annað hvort bólu­settir eða hafi fengið COVID-19 og séu því ónæmir fyrir veirunni.

Bólusetningaskírteini ekki ný af nálinni

Í almennri umræðu eru vott­orð þessi oft kölluð bólu­setn­ing­ar­vega­bréf. Vottun á ákveðnum bólu­setn­ingum er vissu­lega ekki ný af nál­inni. Til að ferð­ast til ýmissa landa, m.a. Afr­íku­ríkja þar sem hita­belt­is­sjúk­dómar eru land­lægir, þurfa ferða­langar að geta fram­vísað bólu­setn­ing­ar­skír­teinum. En þegar verið er að bólu­setja við þekktum sjúk­dómum á borð við gulu­sótt og tauga­veiki er vitað hversu lengi vörnin end­ist. Og þar stendur einn stærsti hníf­ur­inn í kúnni þegar bólu­efni gegn COVID-19 er ann­ars vegar eins og að undan var rakið.

Engu að síður hafa fréttir af komu bólu­efnis vakið vænt­ingar og vonir um að fleira muni fylgja en aðeins vörn gegn veirunni. Að bólu­setn­ingu muni fylgja þau for­rétt­indi – sem áður þóttu sjálf­sögð – að geta ferð­ast um heim­inn og verið meðal fólks hvar og hvenær sem er.

Atvinnu­lífið er auð­vitað mjög áfram um að slíkt gagn hljót­ist einnig af bólu­setn­ing­unum. Að fólk fari einmitt að ferð­ast, að hjól ferða­þjón­ust­unnar um víða ver­öld fari að snú­ast af krafti á ný.

Þó að almenn bólu­setn­ing sé ekki enn hafin í Banda­ríkj­unum, svo dæmi sé tekið, eru tvö smá­forrit sem votta eiga ónæmi fólks gegn kór­ónu­veirunni, komin til sög­unnar. Prófanir á öðru eru þegar hafnar og hitt er handan við hornið. Nokkur banda­rísk flug­fé­lög hafa þegar ákveðið að prófa þau, bæði í inn­an­lands­flugi og milli­landa­flugi.

Annað þeirra kall­ast CommonPass og hefur verið prófað frá því í októ­ber hjá flug­fé­lög­unum United Airlines og Cathay Pacific milli New York og London, Singapúr og Hong Kong. Í ein­földu máli þá birt­ist strik­a­merki í snjall­tæki fólks sem fyr­ir­tæki geta skannað til að fá stað­fest­ingu á að við­kom­andi hafi fengið bólu­setn­ingu.

Forgangsmál

Alþjóða­sam­band flug­fé­laga, IATA, er einnig að þróa app í sama til­gangi. Í app­inu verður hægt að nálg­ast ýmsar heilsu­fars­upp­lýs­ingar, s.s. um sýna­tökur og bólu­setn­ingar.

„Helsta for­gangs­málið er að fá fólk til að ferð­ast með öruggum hætti á ný,“ sagði í til­kynn­ingu frá IATA vegna máls­ins. Aðal­at­riðið er að ferða­langar geti fram­vísað vott­orði um ónæmi svo að þeir þurfi ekki að fara í sótt­kví eða ein­angrun í þeim löndum sem þeir ferð­ast til eða eftir að hafa heim­sótt ákveðin lönd.

En ýmsir sér­fræð­ingar hafa bent á að bólu­setn­ing­ar­vega­bréf séu ekki „ónæmis vega­bréf, þ.e. vegna þess að ekki er vitað hversu lengi vörn bólu­efn­is­ins gegn veirunni varir, sé aðeins hægt að votta ónæmi fólks til skamms tíma.

Aftur til framtíðar

Flestir þrá þá ver­öld sem var að geta farið um frjálsir ferða sinna án grímu og án þess að þurfa að halda tveggja metra fjar­lægð frá næsta manni. Bólu­setn­ing­ar­vott­orð myndu ekki aðeins gagn­ast flug­fé­lögum heldur líka veit­inga­stöðum, börum og í hvers konar menn­ing­ar­starf­semi. En þá þarf vissan að vera fyrir hendi. Vissan um að sá sem fram­vísar slíku vott­orði sé ónæmur og einnig að hann geti ekki smitað aðra. Fari fyr­ir­tæki og þjón­ustu­að­ilar þá leið að krefj­ast vott­orðs um bólu­setn­ingu vakna svo einnig sið­ferð­is­legar spurn­ingar: Á að skipta fólki í hópa eftir því hvort það hefur fengið bólu­setn­ingu eða ekki? Á að veita þeim sem fá slíka bólu­setn­ingu, hafa t.d. aðgang að bólu­efni, ákveðin for­rétt­indi umfram aðra?

Nadhim Zahawi, yfir­maður bólu­setn­inga hjá breskum stjórn­völdum, segir að mögu­lega muni barir, veit­inga­hús og þeir sem fyrir menn­ing­ar­starf­semi standa, byrja að biðja við­skipta­vini um sönnun þess að þeir hafi verið bólu­settir gegn COVID-19. Hins vegar hafa bresk stjórn­völd ekki uppi neinar áætl­anir á þessum tíma­punkti um að gefa út sér­stök bólu­setn­ing­ar­vega­bréf.

Alan Joyce, for­stjóri ástr­alska flug­fé­lags­ins Qantas Airways seg­ist eiga von á því að félagið muni biðja flug­far­þega um að sýna fram á bólu­setn­ingu í milli­landa­flugi. Þá hafa áströlsk stjórn­völd sagt að svo geti farið að þau biðji ferða­menn um að sýna vott­orð um bólu­setn­ingu við kom­una til lands­ins.

Vottorð heil­brigð­is­yf­ir­valda í ýmsum löndum sem gefin eru fólki sem fengið hefur COVID-19 og þar með myndað mótefni gegn veirunni, eru í dag ekki tekin gild alþjóð­lega og meira að segja veita þau hand­höfum oft engar sér­stakar und­an­þágur frá tak­mörk­unum á sam­komum og fjar­lægð­ar­mörkum svo dæmi séu tekin.

Í grein í nýlegu hefti vís­inda­blaðs­ins Lancet er talað fyrir ónæm­is­vott­orðum eða vega­bréfum og rík­is­stjórnir heims­ins hvattar til þess að taka upp ein­hvers konar kerfi á alþjóða­vísu hvað þetta varðar.

„Einu rökin fyrir því að beita rík­is­valdi sem tak­marka frelsi fólks er þegar hætta er á að öðrum stafi hætta af því,“ segir Julian Savulescu, yfir­maður sið­fræði­stofn­unar Oxford-háskóla, sem er einn af höf­undum grein­ar­innar. „Þegar hættan af því að fólk ógni heilsu ann­arra ætti ekki að hefta frelsi þess.“

Nicole Hassoun, pró­fessor í heim­speki við Bing­hamton-háskóla í New York-ríki vill fara var­legar og segir: „Það eru ekki nægar sann­anir enn fyrir hendi til að full­yrða að ónæm­is­vega­bréf séu góð hug­mynd.“

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) hefur varað við útgáfu ónæm­is­vott­orða. Það gerði hún þegar í apríl og hefur ítrekað þau skila­boð síð­ustu vikur þó að nokk­urs mis­ræmis gæti í mál­flutn­ingi starfs­manna hennar. Frá því í haust hefur WHO verið að fylgj­ast með og taka þátt í þróun raf­rænna bólu­efn­is­vott­orða í Eist­landi. Verk­efn­is­stjóri hjá WHO sagði nýverið að stofn­unin væri að fylgj­ast náið með tækni­þróun á þessu sviði og hvernig nýta mætti raf­ræn heil­brigð­is­vott­orð meðal aðild­ar­ríkja stofn­un­ar­innar. Á sama tíma ítrek­aði svo annar starfs­maður að WHO mælti ekki með útgáfu ónæm­is­vott­orða. Að var­úð­ar­orð sem gefin voru út í apríl í þessum efnum stæðu enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár