„Gagnast millitekjuhópum álíka vel og tekjuhærri hópum“

Þor­steinn Víglunds­son svarar umsögn Íbúða­lána­sjóðs á nýjum lögum um skatt­frjálsan sér­eigna­sparnað.

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, segir ný lög um skatt­frjálsan sér­eigna­sparnað til fyrstu íbúða­kaupa gagn­ast milli­tekju­hópum álíka vel og tekju­hærri hópum á Facebook- síðu sinni í dag. 

Um mán­að­ar­mótin tóku í gildi ný lög þar sem ein­stak­lingum er heim­ilt að nota 500 þús­und krónur af sér­eigna­sparn­aði sínum skatt­frjálst til kaupa á fyrstu íbúð, árlega í allt að tíu ár.

Á blaða­manna­fundi Íbúða­lána­sjóðs var fjallað um nýju lög­gjöf­ina og hún sögð gagn­ast best tekju­háum ein­stak­lingum. Greint er frá þessu á vef Vísis, en þar segir Una Jóns­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Íbúða­lána­sjóði, úrræðið vera tekju­tengt og að ein­stak­lingur þurfi að hafa um 690 þús­und krónur á mán­uði í laun til að full­nýta úrræðið.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni svarar Þor­steinn gagn­rýni íbúða­lána­sjóðs um að verið sé að hygla hátekju­hópum. Þor­steinn segir með­al­laun ein­stak­lings árið 2015 nema um 612 þús­und krónum á mán­uði, en búist er við því að með­al­laun árs­ins 2017 verði um 719 þús­und krónur sé tekið mið af launa­þróun. Miðað við þró­un­ina segir Þor­steinn úrræðið gagn­ast milli­tekju­hópum álíka vel og tekju­hærri hópum.

Enn fremur bendir hann á að með úrræð­inu sé verið að auð­velda öllum tekju­hópum fjár­fest­ingu í hús­næði og að önnur úrræði komi sér­stak­lega til hjálpar lág- og milli­tekju­hópum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár