Jörðin brann undir fótum danska forsætisráðherrans en hann fann slökkvitækið

Staða Lars Løkke Rasmus­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, sem for­maður Venstre var talin afar veik fyrir helgi. Nú virð­ist hann, að öllum lík­indum, hafa slegið vopnin úr höndum þeirra sem farnir voru að gjóa augum á for­manns­stól­inn.

Ofan­greinda fyr­ir­sögn frétta­skýr­ing­arp­istils gat að líta í einu dönsku dag­blað­anna síð­degis í gær, laug­ar­dag. Pistill­inn fjall­aði um erf­iða stöðu danska for­sæt­is­ráð­herr­ans sem hefur stýrt afar veikri minni­hluta­stjórn sem tók við völdum eftir þing­kosn­ing­arnar 2015. Venstre, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans, hefur ein­ungis 34 full­trúa á danska þing­inu, Fol­ket­inget, en þar sitja 179 þing­menn. Stuðn­ings­flokkar stjórn­ar­innar, sem eru þrír, í bláu blokk­inni svo­nefndu eiga sam­an­lagt 56 full­trúa á þingi þannig að sam­tals ræður bláa blokkin yfir 90 full­trúum, sem sé einum fleiri en stjórn­ar­and­staðan. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, einn stuðn­ings­flokk­anna hefur 37 þing­menn, er stærri en stjórn­ar­flokk­ur­inn sjálfur. Þetta var það vega­nesti sem Lars Løkke Rasmus­sen lagði upp með að loknum kosn­ingum sem fram fóru 18. júní í fyrra.

Róðurinn hefur reynst þungur

Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra sagði í setn­ing­ar­ræðu sinni í þing­inu haustið 2015 að fram undan væri erfið sjó­ferð, þar sem leggj­ast þyrfti fast á árarnar. Þótt ráð­herr­ann hafi tekið svona til orða hefur hann kannski ekki rennt grun í að and­byr­inn yrði jafn mik­ill og komið hefur á dag­inn. For­ystu­menn stuðn­ings­flokk­anna þriggja hafa lagt mikla áherslu á að ná fram kosn­inga­lof­orðum sínum, vit­andi að Lars Løkke á fárra kosta völ vilji hann sitja áfram í for­sæt­is­ráð­herra­stólnum. Bæði Lars Løkke og for­ystu­menn stuðn­ings­flokk­anna vita að eins og vind­arnir blása um þessar mundir eru sára­litlar líkur á að stjórnin sæti áfram ef kosið yrði á næst­unni. Þar kemur margt til. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn myndi, sam­kvæmt könn­unum, missa nær þriðj­ung fylgis síns, slíkt kall­ast afhroð. For­ystu­maður flokks­ins á Evr­ópu­þing­inu, Morten Messerschmidt, varð upp­vís að mis­notkun á styrkjum Evr­ópu­sam­bands­ins til kynn­ingar og fræðslu­starf­semi. Þing­mað­ur­inn, sem tal­inn hefur verið ein helsta von­ar­stjarna Danska þjóð­ar­flokks­ins er kom­inn í ótíma­bundið veik­inda­leyfi eftir að hafa marg­sinnis orðið upp­vís að lygum og rang­færslum varð­andi styrk­ina. Styrkja­málið hefur skaðað Danska þjóð­ar­flokk­inn og veldur mestu um þetta mikla fylgis­tap. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn er einnig tal­inn bera höf­uð­á­byrgð á nið­ur­stöðum þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í des­em­ber í fyrra. Sú nið­ur­staða varð til þess að Danir verða nú að reyna að semja um aðild að Evr­ópu­lög­regl­unni, Europol, einu mik­il­væg­asta vopni ESB í bar­átt­unni við glæpa­menn. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn hafði nán­ast lofað kjós­endum að „það yrði ekk­ert mál“ að semja um áfram­hald­andi aðild að Europol en nú er komið á dag­inn að slíkt var fjarri öllum sanni.

Hátekjuskatturinn

Annað sem valdið hefur minni­hluta­stjórn Lars Løkke miklum erf­ið­leikum er ófrá­víkj­an­leg krafa Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins, Liberal Alliance, um lækkun hátekju­skatts. Þessa kröfu getur Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, frekar en stjórn­ar­flokk­ur­inn Venstre, ekki fall­ist á og það er nákvæm­lega þessi krafa sem hæg­lega gæti orðið til þess að fella stjórn­ina. Fyrir tveim dögum (18. nóv.) tókst stjórn­inni að ganga frá fjár­lögum næsta árs en krafan um lækkun hátekju­skatts­ins hangir enn yfir stjórn­inni „eins og fal­l­öxi yfir hálsi dauða­dæmds afbrota­manns“ eins og eitt dönsku blað­anna komst að orði. Og miðað við síend­ur­teknar yfir­lýs­ingar for­manns Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins fellur öxin ef stjórnin verður ekki við kröfu flokks­ins. Nema eitt­hvað nýtt komi til. Og hvað gæti það nú verið? Ja, til dæmis ráð­herra­stólar, þeir hafa oft freistað og boð um slíkt iðu­lega orðið til þess að ágrein­ings­mál og kröfur víkja. Og það var einmitt slíkt boð sem kom fram á flokks­þingi Venstre í Herning.

Bauð tveimur flokkum stjórnaraðild og ráðherrastóla

Í ræðu sinni við upp­haf flokks­þings­ins í Herning í gær­morgun (laug­ar­dag) til­kynnti Lars Løkke að hann hefði rætt við Anders Samu­el­sen for­mann Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins og Sören Pape Poulsen for­mann Íhalds­flokks­ins um að flokk­arnir tveir tækju þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Þeir hefðu báðir tekið vel í það og við­ræður hefj­ast á morgun (mánu­dag 21. nóv). Þessir tveir flokkar ráða yfir 19 þing­mönnum sem bæt­ast við 34 þing­menn Venstre þannig að ef flokk­arnir tveir ganga inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið er staðan á þing­inu breytt. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn sem mætt hefur, eins og áður sagði, mætt miklum mót­byr, hefur ekki mik­inn áhuga á kosn­ingum á næst­unni. Þótt Lars Løkke hafi ekki boðið flokknum að ganga inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið styður Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn áfram stjórn­ina.

Undiralda í flokknum

Lands­þing Venstre fer fram, eins og áður sagði nú um helg­ina (19. – 20.nóv). Þótt út á við hafi flokks­menn, ráð­herrar þar með­taldir, staðið þétt að baki for­sæt­is­ráð­herra hafa margir velt fyrir sér fram­tíð hans sem for­manns flokks­ins. Ef Lars Løkke hefði neyðst til að boða til kosn­inga á næst­unni eru flestir stjórn­mála­skýrendur sam­mála um að for­manns­ferli hans hefði þar með lokið. Á flokks­þingi Venstre sum­arið 2014 (þá var flokk­ur­inn í stjórn­ar­and­stöðu) mun­aði minnstu að kosið yrði milli Lars Løkke og Krist­i­ans Jensen vara­for­manns og núver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Þá hafði Lars Løkke lent í miklum mót­byr vegna óreiðu í pen­inga­málum (nær­buxna­málið svo­kall­aða) og fram­tíð hans sem flokks­for­manns í mik­illi óvissu. Ekkert varð þó af for­manns­kosn­ing­unni, eftir tveggja manna tal í kjall­ara fund­ar­húss­ins í Herning, til­kynnti Kristian Jensen að hann byði sig ekki fram til for­mennsku og lýsti yfir stuðn­ingi við Lars Løkke. Margir úr hópi stuðn­ings­manna Krist­i­ans Jensen voru ósáttir við að hann skyldi ekki láta til skarar skríða. Aldrei hefur gróið um heilt milli þeirra tveggja og sá klofn­ingur sem kom í ljós á flokks­þing­inu 2014 er enn til staðar.

Skyndilega er allt breytt

Fyrir flokks­þingið nú um helg­ina voru margir af for­ystu­mönnum Venstre farnir að „kanna landið“allt eins og það er kallað. Staða Lars Løkke talin afar veik og for­manns­slagur í upp­sigl­ingu. For­manns­slagur þar sem nokkrir væru kall­aðir en eng­inn útval­inn, eng­inn aug­ljós arf­taki. En nú hefur Lars Løkke að lík­indum slegið vopnin úr höndum þeirra sem farnir voru að gjóa augum á for­manns­stól­inn.

p.p1 {margin: 0.0px 0.0px 0.0px 0.0px; font: 16.0px 'Trebuchet MS'; -webkit-text-stroke: #000000} span.s1 {font-kern­ing: none}

Tilboðið um þátt­töku í rík­is­stjórn­inni er lík­lega alltof freist­andi til að Anders Samu­el­sen og Frjáls­ræð­is­banda­lagið standi fast við kröf­una um lækkun hátekju­skatts­ins. Íhalds­flokk­ur­inn sem mjög hefur átt í vök að verj­ast grípur að lík­indum tæki­færið og von­ast til að rík­is­stjórn­ar­þátt­taka hefji flokk­inn til vegs og virð­ingar á nýjan leik. Lars Lökke Rasmus­sen fann slökkvi­tækið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár