Þrír starfsmenn Alþingis smitaðir af COVID-19

Þrír starfs­menn Alþingis hafa nú greinst með kór­ónu­veirusmit, en tveir greindust í dag til við­bótar við einn sem greind­ist fyrr í vik­unni. Fram kemur á vef þings­ins að nokkrir þing­menn séu í sjálf­skip­aðri sótt­kví.

Þrír starfs­menn skrif­stofu Alþingis eru nú smit­aðir af COVID-19, en tveir voru greindir með smit í dag. Á þriðju­dag greind­ist einn starfs­maður þings­ins með smit og höfðu þessir starfs­menn verð í sótt­kví síðan þá, vegna sam­skipta við þann sem fyrst greind­ist.

[links]

Allir starfs­menn­irnir þrír hafa starfs­stöð í Skúla­húsi við Kirkju­stræti og eftir því sem best er vitað er ekki smit að finna í fleiri starfs­stöðvum þings­ins, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Alþingis.

Annað starfs­fólk hefur ekki verið sett í sótt­kví af smitrakn­ing­arteymi Almanna­varna í fram­haldi af þessu smiti, en þeim sem hafa verið í sam­skiptum við starfs­menn­ina hefur verið greint frá stöð­unni.

[adspot]

Fram kemur á vef þings­ins að nokkrir þing­menn og starfs­fólk þings­ins séu í sjálf­skip­aðri sótt­kví eða smit­vari vegna aðstæðna, ýmist af per­sónu­legum heilsu­fars­á­stæðum eða vegna heilsu ein­hvers nákom­ins.

Fyrr í vik­unni hafði Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, greint frá því að hann væri kom­inn í sjálf­skip­aða sótt­kví eftir að hafa fengið mann á heim­ili sitt á mið­viku­dag í síð­ustu viku sem síðar greind­ist með veiruna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár