Fleiri sifjaspellsmál á landsbyggðinni

Meiri­hluti þeirra sifja­spells­mála sem komu á borð Stíga­móta í fyrra áttu sér stað utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Meira en helm­ingi fleiri búa þó á höf­uð­borg­ar­svæð­inu heldur en á lands­byggð­inni.

Flest sifjaspellsmál sem Stígamót fékk í fyrra gerðust utan höfuðborgarsvæðisins.
Flest sifja­spells­mál sem Stígamót fékk í fyrra gerð­ust utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meiri­hluti sifja­spells­mála sem kom á borð Stíga­móta í fyrra áttu sér stað utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Fimmt­ungur mál­anna gerð­ist í Reykja­vík, 19 pró­sent ann­ars staðar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rúm­lega helm­ingur á lands­byggð­inni. 

Í nýj­ustu árs­skýrslu Stíga­móta sem birt var fyrr í vik­unni eru öll kyn­ferð­is­brot flokkuð eftir eðli, eins og hefur verið gert árin á undan. 136 sifja­spells­mál voru til­kynnt til sam­tak­anna í fyrra og þau voru 111 árið 2014.

Innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru flest málin í Reykja­vík, 28, og næst­flest í Kópavogi, 11. Það er hlut­falls­lega í sam­ræmi við íbúa­fjölda á þessum stöðum. Einungis eitt sifja­spells­mál var framið á Sel­tjarn­ar­nesi.

Anna Þóra Krist­ins­dóttir, hjá Stíga­mótum, segir töl­urnar vissu­lega athygl­is­verðar. Starfs­fólk Stíga­móta hóf að greina töl­urnar eftir lands­hlutum árið 2014, en þá var hlut­fall sifja­spells­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 42,3 pró­sent, á meðan það er 39,7 pró­sent.

Utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins gerð­ust flest brotin á norð­ur­landi, en þau voru 18.

„Þetta er for­vitni­legt. Mögu­legar skýr­ingar á mun­inum eru að við erum með reglu­leg við­töl á Egil­stöðum og Pat­reks­firði og erum því þannig að ná til fólks sem býr utan höfu­borg­ar­svæðis,” segir hún. „Við erum líka með síma og Skype-við­töl við fólk sem býr utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem. Svo eru sumir sem keyra til Reykja­víkur til að fá við­töl en búa utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.”

Mikilvægt að halda greiningunni áfram

Anna Þóra segir mik­il­vægt að hafa í huga að erfitt sé að alhæfa út frá töl­unum og nauð­syn­legt að halda áfram grein­ing­unni á kom­andi árum til að sjá hvort mynstrið haldi áfram.

„Einnig er mik­il­vægt að taka fram að þegar stað­irnir eru ekki flokk­aðir saman heldur sund­ur­lið­aðir eins og í töfl­unni hér að ofan þá eru flestir sem segja að sifja­spellið hafi átt sér stað í Reykja­vík sem er í sam­ræmi við það að flestir sem leita til okkar búa í Reykja­vík,” segir hún.

Langflest mál gerast á heimili

Séu stað­setn­ingar brot­anna skoð­aðar þá sést að fjórð­ungur brot­anna gerð­ist á sam­eig­in­legu heim­ili þol­anda og ofbeld­is­manns­ins, sem þýðir þá að við­kom­andi var annað hvort for­eldri, stjúp­for­eldri eða systk­ini. Sifja­spells­mál eiga sér oft­ast stað á heim­ili ofbeld­is­manns­ins, á heim­ili þess sem er beittur ofbeld­inu eða á sam­eig­in­legu heim­ili, sam­tals í um 72 pró­sent til­fella. Þetta eru svipuð hlut­föll og und­an­farin ár. Heimilin er langoft­ast vett­vangur þess­ara glæpa. Vinir eða vin­konur eru yfir­leitt þeir sem þolendur segja frá ofbeld­inu, en yfir helm­ingur þolenda seg­ist hafa sagt þeim frá því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár