Frakkar og Bretar berjast enn um fiskinn í Ermarsundi

Enn er ósætti á milli Frakk­lands og Bret­lands vegna fisk­veiða í breskri land­helgi eftir Brexit. Á föstu­dag­inn reyndu franskir sjó­menn reyndu að loka fyrir vöru­flutn­inga á milli land­anna tveggja til að krefj­ast úthlut­unar fleiri fisk­veiði­leyfa.

Franskur fiskveiðibátur lokar á skipaumferð um Calais í Frakklandi.
Franskur fisk­veiði­bátur lokar á skipa­um­ferð um Calais í Frakk­landi. Mynd: EPA

Franskir sjó­menn reyndu að loka fyrir skipa­um­ferð til Bret­lands um franskar hafnir og bíla­um­ferð við Ermar­sunds­göngin á föstu­dag­inn í mót­mæla­skyni við fyr­ir­komu­lag fisk­veiða í Ermar­sundi eftir útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta kemur fram á frétta­síðu Reuters.

Málið hefur leitt til mik­illar spennu á milli land­anna tveggja í ár, en bæði löndin hafa sent skip frá land­helg­is­gæslu sinni til að fylgj­ast með þróun mála á svæð­inu.

Samkvæmt sam­komu­lagi á milli Bret­lands og Frakk­lands um fisk­veiðar eftir Brexit eiga Bretar að gefa sjó­mönnum frá aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins leyfi til fisk­veiða í sinni land­helgi. Um 1.700 slík leyfi hafa verið gefin út, en sam­kvæmt frönskum yfir­völdum er það ekki nóg, enn vanti 150 leyfi. Bretar segj­ast hins vegar fylgja núver­andi samn­ingum í einu og öllu, leyfum hafi ein­ungis verið neitað til þeirra sjó­manna sem hafa ekki til­skilda papp­íra til að sækja um þau.

„Munum eyðileggja partýið“

Á morgni föstu­dags hindr­uðu franskir sjó­menn för bresks vöru­flutn­inga­skips sem var á leið­inni til eyj­ar­innar Jersey, sem er á bresku yfir­ráða­svæði. Einnig settu þeir upp vega­tálma við franska enda Ermar­sunds­gangn­anna og lok­uðu fyrir umferð við höfn­ina í Calais.

Sjó­menn­irnir vilja sjá breyt­ingar á fyr­ir­komu­lag­inu fyrir 10. des­em­ber, svo að hægt verði að bjarga jól­unum í Bret­landi. „Ef við sjáum engar breyt­ingar...trúðu mér, þá munu Eng­lend­ing­arnir ekki halda upp á töfr­andi jól, við munum eyði­leggja partýið,“ segir einn þeirra í við­tali við Reuters.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár