Hefur vísað ellefu málum til viðbótar til Mannréttindadómstólsins

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður manns sem vann mál sitt fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu í gær­morgun, hefur vísað málum ell­efu ann­arra skjól­stæð­inga sinna til dóm­stóls­ins á sama grunni. Einn þeirra er í afplánun sem stendur.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son. Mynd: Bára Huld Beck

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður hefur þegar vísað 11 öðrum málum skjól­stæð­inga sinna til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Málin eiga það sam­eig­in­legt að ein­hver þeirra fjög­urra dóm­ara sem skip­aðir voru með ólög­mætum hætti í Lands­rétt dæmdi í þeim.

[links]Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans skipt­ast málin nokkuð jafnt á milli dóm­ar­anna fjög­urra.

Málin, tíu saka­mál og eitt einka­mál, hafa öll verið mót­tekin hjá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum og dóm­ur­inn er búinn að skrifa Vil­hjálmi vegna þeirra. Þá hafa þau öll hlotið máls­númer. Einn skjól­stæð­ingur Vil­hjálms sem um ræðir hefur þegar lokið afplánun og annar er í afplánun sem stendur.

Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í máli sem Vil­hjálmur rak fyrir hönd enn eins skjól­stæð­ings síns vegna ólög­mætrar skip­unar dóm­ara við Lands­rétt féll í gær­morgun.

Það mál sner­ist um að Arn­fríður Ein­ars­dóttir, einn þeirra fjög­urra dóm­ara sem Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra gerði til­lögu um að skipa í Lands­rétt í and­stöðu við nið­ur­stöðu hæf­is­nefndar, væri ólög­lega skipuð og þar með væri það brot á mann­rétt­indum skjól­stæð­ings Vil­hjálms að hún felldi dóm yfir honum. Umræddur skjól­stæð­ingur hlaut 17 mán­aða fang­els­is­dóm fyrir marg­vís­leg brot.

[adspot]Í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins var fall­ist á það dóm­ar­arnir væru ólög­lega skip­aðir og gætu þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, þar sem ólög­lega skip­aðir dóm­arar gætu ekki tryggt rétt­láta máls­með­ferð. Ferlið sem beitt var við skipun dóm­ar­anna við Lands­rétt hafi orðið „til þess að valda skaða á því trausti sem dóm­stóll í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi þarf að vekja hjá almenn­ingi og braut í bága við það grund­vall­ar­at­riði að dóm­stóll sé lög­legur, eina af meg­in­reglum rétt­ar­rík­is­ins.“

Mikil óvissa til staðar

Í dómnum segir að Sigríður hafi brotið gegn lands­lögum með því að gera breyt­ingar á lista yfir þá 15 dóm­ara sem skip­aðir voru án þess að rök­styðja þær með við­un­andi hætti þrátt fyrir að hafa fengið ráð­gjöf sér­fræð­inga um að hverjar afleið­ingar ákvörð­unar hennar gætu orðið. Sigríður fjar­lægði, líkt og áður sagði, ólög­lega fjóra umsækj­endur sem hæf­is­nefnd hafði lagt til að yrðu skip­aðir og setti fjóra aðra í stað­inn.

Í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins var einnig vikið að því að afgreiðsla Alþingis á skipun dóm­ar­anna hefði brugð­ist, en kosið var um skipun þeirra allra í einu í stað þess að kosið yrði um skipan hvers og eins.

Nið­ur­staðan leiðir af sér að starf­semi Lands­réttar er í full­komnu upp­námi. Strax í gær­morgun var tekin ákvörðun um fresta öllum málum sem dóm­ar­arnir fjórir sem voru skip­aðir með ólög­mætum hætti; Arn­­­­­fríður Ein­­­­­ar­s­dótt­ir, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, Ásmundur Helga­­­­­son og Jón Finn­­­­­björns­­­­­son, áttu að koma að í þess­ari viku. Síðar um dag­inn ákváðu dóm­arar við Lands­rétt að eng­inn þeirra myndi kveða upp dóma í þess­ari viku. Starf­semi milli­dóms­stigs­ins er því í algjöru upp­námi.

Lögmenn sem Kjarninn hefur rætt við segja borð­leggj­andi að taka þurfi upp öll mál sem dóm­ar­arnir fjórir hafa komið að sem óskað verður eftir end­ur­upp­töku á. Þá sé einnig vand­séð, og í raun ómögu­legt, að þeir geti setið áfram í rétt­inum. Það þurfi að skipa nýja dóm­ara í þeirra stað.

Dóms­mála­ráðu­neytið hefur enn sem komið er ekki slegið á þá óvissu sem er til staðar með því að skýra hvernig brugð­ist verði við stöð­unni sem upp er komin. Á meðan að svo er geta lög­menn þeirra sem telja á sér brotið með dómum ólög­lega skip­aðra dóm­ara lítið gert annað en að vísa málum þeirra til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins á sömu for­sendum og sá sem vann mál sitt fyrir honum í gær.

Ferlið allt mun að öllum lík­indum einnig verða íslenska rík­inu dýrt í pen­ingum talið. Þeir fjórir sem teknir voru af list­anum hafa fengið eða munu fá miska- og/eða skaða­bætur, dóm­ar­arnir fjórir sem skip­aðir voru án þess að hafa verið taldir á meðal 15 hæf­ustu eiga lík­ast til háa skaða­bóta­kröfu á ríkið verði þeir að víkja og kostn­aður við end­ur­upp­töku mála sem þeir hafa komið að gæti orðið umtals­verður. Þá er ótalin allur máls­kostn­aður sem fallið hefur til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár