Mörg bílastæði á borgarlandi ranglega merkt sem einkastæði undir viðskiptavini

Fjölmörg bíla­stæði sem standa á borg­ar­landi við Ármúla, Síðumúla og Grens­ás­veg eru merkt sem einka­stæði versl­ana. „Versl­anir hafa ekki leyfi til að merkja sér stæði á borg­ar­landi,“ segir í svari frá Reykja­vík­ur­borg, sem hyggst skoða málið nánar.

Úr Ármúla. Öll stæði framan við húsin sem standa hér á vinstri hönd eru á borgarlandi og því er ekki heimilt að merkja þau sérstaklega sem einkastæði fyrir viðskiptavini verslana.
Úr Ármúla. Öll stæði framan við húsin sem standa hér á vinstri hönd eru á borg­ar­landi og því er ekki heim­ilt að merkja þau sér­stak­lega sem einka­stæði fyrir við­skipta­vini versl­ana. Mynd: Google Street View

Bíla­stæða­mál fyrir utan versl­anir í Ármúla urðu að áhuga­verðu frétta­máli fyrir skemmstu, er Morg­un­blaðið sagði frá raunum versl­un­ar­eig­enda við göt­una sem höfðu lent í því dag eftir dag að sá mikli fjöldi fólks sem var á leið í sýna­töku vegna kór­ónu­veirunnar í húsa­kynnum heilsu­gæsl­unnar á Suð­ur­lands­braut 34 legði öku­tækjum sínum beint fyrir framan versl­anir þeirra.

„Fólk keyr­ir bara eins og það vill og legg­ur þar sem það vill,“ sagði einn versl­un­ar­eig­andi í stuttu sam­tali við blaðið 6. jan­úar og minnt­ist á að málið hefði verið rætt í sam­fé­lags­miðla­hópi versl­un­ar­eig­enda í Ármúl­anum, sem væru orðnir lang­þreyttir á þessu ástandi.

Bíla­stæðin sem versl­un­ar­eig­and­inn kvart­aði yfir að væru upp­tekin eru beint fyrir framan Ármúla 42 og eru kyrfi­lega merkt sem einka­stæði húss­ins – ein­ungis fyrir við­skipta­vini í Ármúla 42. Í sam­tali við Kjarnann sagði þessi sami versl­un­ar­eig­andi að hún teldi að versl­un­ar­rým­inu fylgdu bíla­stæðin við göt­una, það væru jú slík skilti á hús­inu.

Raunin er hins vegar sú, sam­kvæmt athugun Kjarnans í borg­ar­vefsjá og svörum Reykja­vík­ur­borg við fyr­ir­spurnum, að umrædd stæði – og fleiri sem standa fyrir framan atvinnu­hús­næði á þessum slóðum í Reykja­vík – eru á borg­ar­landi og eiga að vera öllum aðgengi­leg.

Hús­eig­endur eða rekstr­ar­að­ilar hafa þannig enga heim­ild til að slá eign sinni á þau.

Í Ármúla á þetta við um bíla­stæði með­fram allri þess­ari hlið göt­unnar frá Vegmúla niður að Grens­ás­vegi. Nánar til­tekið eru bíla­stæðin fyrir framan húsa­röð­ina sem nær frá húsi númer 16 til húss númer 44 á borg­ar­landi.

Þrátt fyrir það sést, þegar ferð­ast er eftir göt­unni í götu­sýn á vef Já.is eða á Google Maps, að skilti eru víða sjá­an­leg á húsum eða í gluggum versl­ana – og tjá veg­far­endum að um sé að ræða einka­stæði.

„Aukagatan“ í Ármúla er inni á lóðum

Hinum megin við Ármúlann, í húsa­röð­inni sem nær frá húsi 15 niður til húss frá Vegmúla niður að Grens­ás­vegi, eru bíla­stæðin við göt­una hins vegar inni á lóðum húsa, og einnig sú „auka­gata“ sem liggur með­fram göt­unni. Ofar í Ármúl­anum, eða frá húsi númer 1 til húss númer 13, eru bíla­stæði beggja megin við göt­una einnig öll inni á lóðum.

Á þessum svæðum geta hús­eig­endur því merkt sér einka­stæði alveg eins og þeim lystir, bíla­stæðin við göt­una eru inni á þeirra lóðum.

Eftirlitsdeild muni væntanlega gera könnun

Samkvæmt svörum frá Reykja­vík­ur­borg til Kjarnans hafa fyr­ir­tæki ekki leyfi til þess að sér­merkja sér bíla­stæði sem eru á borg­ar­landi, heldur eiga slík stæði að vera aðgengi­leg öllum.

Upp­lýs­inga­full­trúi hjá borg­inni sem kann­aði málið seg­ist ekki þekkja til neinna samn­inga um annað, nema í tengslum við bíla­stæði fyrir fatlað fólk.

Svarinu frá Reykja­vík­ur­borg fylgdu þær upp­lýs­ingar að eft­ir­lits­deild hjá borg­inni myndi vænt­an­lega taka þetta mál fyrir, gera könnun og fylgja mál­inu eftir núna á fyrri hluta árs­ins.

Síðumúli svipaður og Ármúli

Samkvæmt laus­legri athugun Kjarnans eru aðstæður í Síðumúla svip­aðar og í Ármúl­anum. Öðru megin göt­unnar eru nær öll bíla­stæði sem standa við göt­una á borg­ar­landi, nánar til­tekið í húsa­röðn­inni frá húsi númer 11 og niður að húsi númer 39 sem stendur við horn Síðumúla og Fells­múla.

„Aukagatan“ við hlið göt­unnar í Síðu­múl­anum er þannig nær öll á borg­ar­landi og bíla­stæðin innan því lang­flest á landi Reykja­vík­ur­borgar, sem þýðir að stæðin eiga að vera aðgengi­leg öllum.

Þrátt fyrir það eru víða á hús­veggjum skilti þar sem því er jafn­vel hótað að ef aðrir en þeir sem eigi erindi í húsin eigi á hættu að öku­tæki þeirra verði dregin í burtu.

Skilti af þess­ari gerð eru meðal ann­ars á hús­inu hér að ofan, sem er númer 23 við Síðumúla. Það hýsir auk ann­ars skrif­stofur og fund­ar­sal Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Vestari „aukagatan“ á Grensásvegi er borgarland

Á Grens­ás­vegi á milli Miklu­brautar og Suð­ur­lands­brautar eru „auka­götur“ undir bíla­stæði beggja megin göt­unnar, en ein­ungis gatan sem er vestan megin Grens­ás­vegar, á milli húsa 8 til 16, er á borg­ar­landi.

Þar hafa fyr­ir­tæki því í reynd enga heim­ild til þess að merkja sér bíla­stæði fyrir við­skipta­vini fyrir utan dyrnar.

Er mynda­vél­ar­bíll Google ók um göt­una í júlí árið 2013 voru þó skilti á nær hverju húsi.

Skeifa, Kringla, Borgartún, Fiskislóð

Blaða­maður kann­aði hvernig stöðu þess­ara mála væri háttað á fleiri helstu þjón­ustu- og versl­un­ar­svæðum Reykja­vík­ur­borgar.

Nið­ur­staðan af þeirri laus­legu könnun í borg­ar­vefsjá var sú að bíla­stæði sem merkt eru einka­stæði eru sjaldn­ast á borg­ar­landi á öðrum svæðum – nema auð­vitað í mið­borg­inni, þar sem stæði á borg­ar­landi eru gjald­skyld.

Í Skeif­unni virð­ist hvert eitt og ein­asta bíla­stæði vera innan lóð­ar­marka og hið sama á við í Borg­ar­túni og í Kringl­unni, en á þessum þremur svæðum eru sam­an­lagt þús­undir ókeypis bíla­stæða.

Í versl­unar- og þjón­ustu­kjarn­anum við Fiski­slóð gegnt Granda­garði eru all­nokkur fyr­ir­tæki með sér­merkt bíla­stæði.

Þau stæði eru inni á lóðum umræddra húsa, eins og sjá má hér að neðan.

Bílastæði við Suðurlandsbraut að hluta á borgarlandi

Við þessa yfir­ferð á bíla­stæða­málum við atvinnu­hús­næði í Reykja­vík má svo bæta að bíla­stæðin framan við atvinnu­hús­næði á Suð­ur­lands­braut, allt frá húsi númer 4 og niður að húsi 32, eru að umtals­verðu leyti á borg­ar­landi, eins og sjá má dæmi um hér að neðan.

Nánar til­tekið á þetta við um allar lóðir sem eru á milli Hilton-hót­els­ins og Orku­reits­ins svo­kall­aða.

Mörg þess­ara bíla­stæða munu vænt­an­lega víkja á næstu árum, sam­fara því að götu­mynd­inni verður breytt með til­komu Borg­ar­línu.

Samkvæmt fram­settum til­lögum í frum­draga­skýrslu Borg­ar­línu er áætlað að það borg­ar­land sem nú fer undir bíla­stæði við Suð­ur­lands­braut verði nýtt undir hjóla- og göngu­stíga sem liggja eiga með­fram Suð­ur­lands­braut­inni.

Það er óháð því hvort akreinar undir bíla­um­ferð á Suð­ur­lands­braut verði ein eða tvær í hvora átt­ina, eins og sjá má á skýr­ing­ar­mynd­inni hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár