Ætla að fjölga leikskólaplássum um 750 til 800 á næstu árum

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík hefur sam­þykkt aðgerða­á­ætlun í leik­skóla­málum. Til stendur að bæta starfs­um­hverfi í leik­skól­unum og brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla.

Dagur B. Eggertsson kynnir aðgerðir í leikskólamálum í Ráðhúsinu.
Dagur B. Egg­erts­son kynnir aðgerðir í leik­skóla­málum í Ráð­hús­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Reykja­vík­ur­borg ætlar að fjölga ung­barna­deildum um helm­ing næsta haust, fjölga leik­skóla­plássum um 750 til 800, byggja fimm til sex nýja leik­skóla á næstu árum og brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla. Þetta mun kosta 632 millj­ónir á þessu ári og 1.100 millj­ónir árið 2019 sem munu fara í fjár­fest­ingar og rekstur. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi þar sem Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri kynnti aðgerða­á­ætlun í leik­skóla­málum.

Í til­kynn­ingu frá borg­inni kemur fram að áætl­unin geri ráð fyrir að sjö nýjum ung­barna­deildum verði komið upp næsta haust auk þess sem fimm til sex nýir leik­skólar verði byggðir á næstu árum. Þá verði gripið til marg­vís­legra aðgerða til að bæta aðstöðu á leik­skólum og vinnu­um­hverfi leik­skóla­kenn­ara og ann­ars starfs­fólks. Tillögur um upp­bygg­ingu leik­skól­anna byggi á vinnu starfs­hóps um verk­efnið að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla, sem borg­ar­stjóri skip­aði vorið 2016.

Ungbarnadeildum fjölgar

Til stendur að börn frá 16 mán­aða aldri byrji að kom­ast inn á ung­barna­deildir næst­kom­andi haust. Á fund­inum kom fram að mark­miðið sé að innan sex ára geti öll tólf mán­aða börn kom­ist inn á leik­skóla.

Næsta haust verður ráð­ist í næsta áfanga með opnun sjö ung­barna­deilda til við­bótar við leik­skóla í Vesturbæ, Graf­ar­vogi, Graf­ar­holti og Hlíða­hverfi. Þar með verða ung­barna­deildir starf­andi í öllum borg­ar­hlutum.

Þessum ung­barna­deildum verður heim­ilt að hefja inn­töku barna yngri en 18 mán­aða og er miðað við að í haust hefj­ist inn­taka barna á ung­barna­deildir sem fædd eru í maí 2017, þ.e. barna sem verða 16 mán­aða og eldri í sept­em­ber.

Plássum fjölgar um 110 til 126 á næstu 7 mánuðum

Lagt er til að opn­aðar verða nýjar leik­skóla­deildir við leik­skóla í þeim hverfum þar sem eft­ir­spurn eftir leik­skóla­plássum er mest. Gert er ráð fyrir að þær leik­skóla­deildir verði meðal ann­ars í Selja­hverfi, Háaleiti, Fossvogi, Laug­ar­dal og Graf­ar­holti. Þær aðgerðir munu fjölga leik­skóla­plássum um 110 til 126 á næstu sjö mán­uðum.

Á næstu tveimur árum verður plássum fjölgað enn frekar með við­bygg­ingum og end­ur­bótum á hús­næði. „En við þurfum að bæta við okkur nokkrum tugum starfs­manna við þessa upp­bygg­ingu,“ segir Dagur. Hann segir jafn­framt að það sé við­var­andi verk­efnið að halda í gott starfs­fólk en að vel hafi gengið í vetur, þrátt fyrir allt. Reykja­vík­ur­borg sé búin að ráða um 100 ein­stak­linga inn á leik­skól­ana.

Auglýsa störf fyrir ungt fólk

Aðgerð­irnar sem kynntar voru í borg­ar­ráði í morgun fela enn fremur í sér að gripið er til marg­vís­legra aðgerða til að bæta vinnu­um­hverfi á leik­skólum borg­ar­innar, segir í til­kynn­ingu frá borg­inni. Þær byggi á til­lögum starfs­hóps skóla- og frí­stunda­ráðs um nýliðun og bætt vinnu­um­hverfi leik­skóla­kenn­ara sem skil­aði nið­ur­stöðum í síð­ustu viku. Þar sé meðal ann­ars lögð áhersla á aukið rými barna, fjölgun starfs­fólks á elstu deildum, auk­inn und­ir­bún­ings­tíma, fjölgun leik­skóla­kenn­ara og ann­ars fag­fólks, fjár­magn til heilsu­efl­ingar og liðs­heild­ar­vinnu, aðgerðir til að efla mót­töku nýliða meðal ann­ars með leið­sagn­ar­kenn­urum og hand­leiðslu, ímynd­ar­vinnu og kynn­ingu á störfum á leik­skólum.

Loks var sam­þykkt í borg­ar­ráði í dag til­laga um að aug­lýst verði 60 sum­ar­störf á leik­skólum fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á námi í kennslu- og upp­eld­is­fræðum. Mark­miðið er, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, að kveikja áhuga ungs fólks á því að starfa á leik­skólum og leggja stund á nám í leik­skóla­kenn­ara­fræðum. Dagur segir að Reykja­vík­ur­borg hafi ekki aug­lýst slík sum­ar­störf í nokkur ár en nú fái leik­skólar tæki­færi til að ráða ungt fólk í tíu vikur sem eru for­vitin og vilji prófa að vinna á leik­skóla.

Fram kom á blaða­manna­fund­inum að eins og staðan er í dag þá vanti að fylla í 20 stöðu­gildi á leik­skólum í borg­inni. Nú sé nauð­syn­legt að lokka fólk inn á leik­skól­ana, til dæmis með því að bæta starfs­um­hverfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár