Síldarvinnslan borgaði 4,9 milljarða króna fyrir útgerðina Berg og kvótann hennar

Síld­ar­vinnslan verður skráð á markað síðar í þessum mán­uði. Þeir sem selja, aðal­lega Samherji og Kjálka­nes, munu að óbreyttu fá nálægt 30 millj­örðum króna fyrir það sem selt verður. Verð­mætasta bók­færða eign Síld­ar­vinnsl­unnar er kvóti upp á 29 millj­arða.

Í októ­ber 2020 var greint frá því að útgerð­ar­fé­lagið Bergur-Huginn, að öllu leyti í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar, hefði keypt útgerð­ar­fé­lagið Berg ehf. í Vest­manna­eyjum. Við þau kaup flutt­ust 0,36 pró­sent af heild­ar­kvóta yfir­stand­andi fisk­veiði­árs yfir til Bergs-Hugins. Þegar kaupin voru opin­beruð var ekki sagt frá því hvert kaup­verðið var. Í árs­reikn­ingi Síld­ar­vinnsl­unnar, sem birtur hefur verið á heima­síðu félags­ins í aðdrag­anda skrán­ingar hennar á íslenskan hluta­bréfa­markað, er kaup­verðið hins vegar til­greint. Það var tæpir 4,9 millj­arðar króna.

Þar er einnig greint frá því að Síld­ar­vinnslan hafi gengið frá kaupum á 12,4 pró­sent hlut í útgerð­inni Runólfi Hall­freðs­syni ehf. í byrjun apr­íl­mán­aðar 2021 og er það félag nú að öllu leyti í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar. Kaup­verðið er ekki gefið upp.

Verð­mætasta eign Síld­ar­vinnsl­unnar eru afla­heim­ildir sem hún hefur til ráð­stöf­unar. Síld­ar­vinnslan hélt sjálf beint á 5,34 pró­sent alls úthlut­aðs kvóta á Íslandi í sept­em­ber í fyrra. Þær afla­heim­ildir eru metnar á 121 milljón dali í árs­reikn­ingi sam­stæð­unnar

Þær sem eru í eru metna á 227,1 milljón dala í árs­reikn­ingi sam­stæð­unnar, eða 28,8 millj­arða króna.

Til við­bótar heldur Bergur-Huginn á 1,68 pró­sent af heild­ar­kvóta sem hefur verið úthlutað og Runólfur Hall­freðs­son heldur á 0,65 pró­sent. Sam­an­lagt heldur Síld­ar­vinnslu­sam­stæðan því á 7,67 pró­sent af úthlut­uðum fisk­veiði­heim­ildum.

Mögulega tengdir aðilar halda á 19 prósent af kvótanum

Hlut­hafar Síld­ar­vinnsl­unnar eru sem stendur 281 tals­ins en tíu stærstu hlut­hafar félags­ins fara með tæp­lega 99 pró­sent hluta­fjár í félag­inu. Þar af fara þrír eig­endur: Samherji (44,64 pró­sent), Kjálka­nes (34,23 pró­sent) og Eign­ar­halds­fé­lagið Snæfugl (5,29 pró­sent) með 84,16 pró­sent eign­ar­hlut.

[adspot]Á meðal stærstu eig­enda Samherja er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, og Kjálka­nes er í eigu Björg­ólfs Jóhanns­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Samherja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­skyldu­böndum. Samherji á svo 15 pró­sent hlut í Snæfugli og Björgólfur á fimm pró­sent.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í byrjun apríl að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sé þeirrar skoð­unar að veru­leg tengsl séu milli þess­ara þriggja stóru hlut­hafa í Síld­ar­vinnsl­unni. Þrír af fimm stjórn­ar­mönnum sam­stæð­unnar eru skip­aðir af þessum tveimur félögum eða eru tengdir eig­endum þeirra. Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eru því vís­bend­ingar um yfir­ráð Samherja yfir Síld­ar­vinnsl­unni.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja, er með næst mesta afla­hlut­­deild í íslenskri efna­hags­lög­sögu allra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,3 pró­­sent. ­Út­­­gerð­­­­­­ar­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,7 pró­­­­­­sent kvót­ans.

Gjögur, í eigu sömu aðilar og eiga Kjálka­nes, heldur svo á 2,30 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum.

Sam­an­lagt heldur þessi blokk, að þeim afla­heim­ildum sem Síld­ar­vinnslan hefur yfir­ráð yfir, því á tæp­lega 19 pró­sent af úthlut­uðum afla­heim­ildum á Íslandi.

Það er langt yfir þeim tólf pró­sentum sem lands­lög segja til um að tengdir aðilar megi halda á hverju sinni.

Metið á næstum 100 milljarða

Fyrir dyrum er skrán­ing Síld­ar­vinnsl­unnar á hluta­bréfa­markað. Almennt hluta­fjár­út­boð í félag­inu mun fara fram dag­anna 10. til 12. maí næst­kom­andi og þar stendur til að selja 26 til 29 pró­sent hlut í félag­inu.

[links]Í útboð­inu verður miðað við að heild­ar­virði Síld­ar­vinnsl­unnar sé á bil­inu 93,5 til 99 millj­arðar króna, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarninn hefur fengið hjá aðilum sem hafa séð kynn­ingar á útboð­inu.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í febr­úar að búast mætti við því að mark­aðsvirði Síld­ar­vinnsl­unnar yrði í kringum 100 millj­arða króna.

Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Síld­ar­vinnslan er skráð á mark­aði. Hún var skráð í Kauphöll um ára­tuga­skeið frá 1994 til 2004. En félagið er tölu­vert öðru­vísi, og mun stærra, nú en það var þá.

Ef útboðs­gengið mun á end­anum verða í efri mörkum, og miða við að heild­ar­virði Síld­ar­vinnsl­unnar sé 99 millj­arðar króna, eru þeir hlut­hafar sem selja hluti að fara að fá 28,7 millj­arða króna í sinn hlut fyrir það hlutafé sem þeir selja.

Búist er við að Samherji og Kjálka­nes muni selja mest af því sem selt verður, jafn­vel allt. Líf­eyr­is­sjóðir eru taldir lík­leg­astir til að kaupa stærstan hluta þess sem selt verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár