Samkeppniseftirlitið telur vísbendingar um yfirráð Samherja yfir Síldarvinnslunni

Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins eru veru­leg tengsl milli stórra hlut­hafa í Síld­ar­vinnsl­unni. Þrír af fimm stjórn­ar­mönnum í Síld­ar­vinnsl­unni eru skip­aðir af eða tengdir þeim eig­endum. Um er að ræða Samherja og Kjálka­nes.

Í lok febr­úar birti Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákvörðun vegna sam­runa dótt­ur­fé­lags Síld­ar­vinnsl­unnar og útgerð­ar­fé­lags­ins Bergs. Þótt eft­ir­litið hafi ekki gert athuga­semd við þann sam­runa eftir skoðun sína á honum leynd­ust þó frétt­næm­ari tíð­indi í ákvörð­un­inni. Tíðindi sem sneru að stærstu eig­endum Síld­ar­vinnsl­unnar, félags sem til stendur að skrá á hluta­bréfa­markað eftir nokkra mán­uði.

Stærstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Samherji og félagið Kjálka­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­linga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Grenivík. Þar er meðal ann­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­son, sem var þar til fyrir skemmstu annar for­stjóri Samherja, og systk­ini hans.

Samherji á 44,6 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni. Auk þess á Kald­bak­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­sent hlut í öðru félagi, Eign­ar­halds­fé­lag­inu Snæfugli, sem á 5,3 pró­­sent hlut í Síld­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólfur.

Næst stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er síðan áður­nefnt Kjálka­nes með 34 pró­sent eign­ar­hlut. Auk þess á Síld­ar­vinnslan 0,92 pró­sent í sjálfri sér.

Þessir aðilar sem taldir eru upp hér að ofan; Samherji, Kjálka­nes, félag sem Samherji og einn eig­andi Kjálka­nes eiga í og eigin hlutir Síld­ar­vinnsl­unnar eiga sam­an­lagt tæp­lega 85 pró­sent hlut í útgerð­ar­fyr­ir­tæk­inu.

Nýtt frummat

Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem birt var 25. febr­úar, sagði meðan ann­ars: „Það er frum­mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að til staðar séu vís­bend­ingar um yfir­ráð Samherja eða sam­eig­in­leg yfir­ráð Samherja og tengdra félaga yfir Síld­ar­vinnsl­unni og að þær vís­bend­ingar hafi styrkst frá því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið fjall­aði um slík mögu­leg yfir­ráð í ákvörðun nr. 10/2013.“

Að mati eft­ir­lits­ins eru veru­leg tengsl milli stórra hlut­hafa í Síld­ar­vinnsl­unni og þá eru þrír af fimm stjórn­ar­mönnum í Síld­ar­vinnsl­unni skip­aðir af eða tengdir Samherja og Kjálka­nesi. Einn þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, sem er stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið bendir líka á að umrædd fyr­ir­tæki hafi átt við­var­andi við­skipti við Síld­ar­vinnsl­una. Svo segir: „Þá hafa verið birt opin­ber­lega gögn sem gefa til kynna að Samherji hafi í eigin gögnum kynnt Síld­ar­vinnsl­una sem upp­sjáv­ar­hluta sam­stæðu Samherja.“

Þar er vísað í upp­lýs­ingar sem komu fram í glæru­kynn­ingum Samherja, sem voru hluti af þeim gögnum sem Wikileaks birti á net­inu í nóv­em­ber 2019 og voru ræki­lega merktar trún­að­ar­mál. Í glæru­kynn­ing­unum má skýrt sjá að erlendis er Síld­ar­vinnslan kynnt sem upp­sjáv­ar­hluti Sam­herj­a­sam­stæð­unar, þrátt fyrir að á Íslandi hafi því ætið verið haldið fram að Samherji og Síld­ar­vinnslan séu ekki tengdir aðila.

Auk fram­an­greinds hafi umræddir aðilar, í sumum til­vikum ásamt öðrum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum, átt með sér sam­starf við nýsmíði skipa erlendis, fryst­ingu sjáv­ar­afla og löndun mak­rílafla sem veiddur var utan fisk­veiði­lög­sögu Íslands og Ice-Fresh Seafood ehf., dótt­ur­fé­lag Samherja, hefur haft milli­göngu í sölu­málum fyrir Síld­ar­vinnsl­una.

Vísbendingar um yfirráð

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að allt ofan­greint gefi vís­bend­ingar um að stofn­ast hafi til yfir­ráða í Síld­ar­vinnsl­unni umfram það sem sam­runa­að­ilar hafa gert grein fyrir í sam­runa­til­kynn­ingu.

Það tekur hins vegar ekki end­an­lega afstöðu til þess hvort yfir­ráðin séu til staðar í ákvörð­un­inni sem birt var í febr­úar, heldur muni eft­ir­litið á síð­ari stigum taka afstöðu til þess hvort og þá með hvaða hætti beri að rann­saka nánar mögu­leg yfir­ráð og sam­starf hlut­að­eig­andi fyr­ir­tækja. Í slíkri rann­sókn fælist eftir atvikum athugun á því hvort til­kynna hefði átt um víð­tæk­ari sam­runa hlut­að­eig­andi fyr­ir­tækja. „Áður en ákvörðun verður tekin um þetta mun Sam­keppn­is­eft­ir­litið óska frek­ari upp­lýs­inga og sjón­ar­miða, m.a. frá við­kom­andi aðilum og öðrum stjórn­völdum á þessu sviði.“

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stendur sú vinna yfir.

Spurðu hvort aðilar væru tengdir

Ráðist Sam­keppn­is­eft­ir­litið í rann­sókn á því hvort sam­eig­in­leg yfir­ráð tengdra aðila hafi skap­ast yfir Síld­ar­vinnsl­unni þá yrði það ekki í fyrsta skiptið sem það hefur gerst.

Fiski­stofa réðst árið 2009 í frum­kvæð­is­rann­sókn á því hvort Gjögur/Kjálka­nes og Samherji ættu að telj­ast tengdir aðilar og færu með raun­veru­leg yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni. Sú rann­sókn skil­aði þeirri nið­ur­stöðu, sam­kvæmt stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á Fiski­stofu, að erfitt væri að sýna fram á „óbein yfir­ráð aðila yfir afla­hlut­deildum miðað við núgild­andi lög og færa rök fyrir því hvenær tveir eða fleiri aðilar skuli telj­ast tengdir[...]Fiski­stofa hafi af þeim sökum ekki sinnt virku eft­ir­liti með tengslum fyr­ir­tækja sam­kvæmt ákvæð­inu.“

Í stjórn­sýslu­út­tek­inni, sem birt var snemma árs í fyrra, var bent á að Fiski­stofa væri ein­fald­lega ekki að kanna hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deildum væri í sam­ræmi við lög. Þ.e. að eft­ir­lits­að­il­inn með því að eng­inn hópur tengdra aðila ætti meira en tólf pró­sent af heild­ar­afla væri ekki að sinna því eft­ir­liti í sam­ræmi við lög. Fram að þeim tíma hafði eft­ir­litið farið fram með þeim hætti að starfs­menn frá Fiski­stofu fóru tvisvar á ári og spurðu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin um hversu miklum kvóta þau og tengdir aðilar héldu á. Samkvæmt skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar var um tvö dags­verk að ræða á ári. „Fiski­stofa treystir nán­ast alfarið á til­kynn­ing­ar­skyldu fyr­ir­tækja við eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda,“ sagði í skýrsl­unni.

Allt að fimmtungur alls úthlutaðs kvóta

Komist Sam­keppn­is­eft­ir­litið að því að Samherji og Kjálka­nes séu tengdir aðilar, og að þeir hafi sam­eig­in­leg yfir­ráð yfir Síld­ar­vinnsl­unni, þá getur það haft afleið­ingar fyrir þessa aðila.

Sam­herji Ísland ehf., félag að öllu leyti í eigu Sam­herja hf, er með næst mesta afla­hlut­­­­­deild í íslenskri efna­hags­lög­­­­sögu allra sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækja á Íslandi, eða 7,02 pró­­­­­sent. ­Út­­­­­­­­­gerð­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­­­­­ar, sem er líka í 100 pró­­­­­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­­­­fé­lag, sem það sama gildir um, heldur á 0,64 pró­­­­­­­­­sent hans.

Sam­an­lagt er þessi blokk Sam­herja og Síld­­ar­vinnsl­unnar með að minnsta kosti 17,5 pró­­­­­sent afla­hlut­­­­­deild. Gjögur, í eigu sömu aðilar og eiga Kjálka­nes, heldur svo á 2,29 pró­sent af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum.

Ef sá kvóti er talin með ofan­­greindu er ljóst að rétt undir fimmt­ungur (19,79 pró­­sent) af öllum úthlut­uðum afla­heim­ildum lands­ins eru á höndum fyr­ir­tækja sem eru að ein­hverju leyti í eigu þeirra tveggja manna sem sátu saman í for­stjóra­stólum Sam­herja, þangað til að Björgólfur ákvað að hætta fyrr á þessu ári.

Við blasir að þessi hlut­deild af kvóta er langt yfir þeim tólf pró­sentum sem lands­lög segja til um að tengdir aðilar megi halda á hverju sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kauphöll

Mest lesið undanfarið ár