Árið 2022 var brösótt á íslenskum hlutabréfamarkaði. Alls hækkuðu bréf í níu félögum sem skráð eru á Aðalmarkað en lækkuðu í 14 félögum. Mest hækkuðu bréf í Origo, alls um 37,5 prósent, en þá hækkun má rekja til þess að félagið seldi tæplega 40 prósent eignarhlut sinn í Tempo á um 28,5 milljarða króna í október. Tæpum tveimur mánuðum síðar, þann 1. desember, voru 25 milljarðar króna greiddir út til hluthafa Origo vegna sölunnar og hlutafé samhliða lækkað um 68 prósent.
Útgerðarfélögin tvö sem skráð eru á markað, Síldarvinnslan (19,8 prósent hækkun) og Brim (16 prósent hækkun) hækkuðu næst mest á síðasta ári. Alvotech, sem rauk upp í virði eftir færslu yfir á Aðalmarkaðinn í desember og er nú verðmætasta félagið í Kauphöll Íslands, jók virði sitt um 13,8 prósent frá skráningu fyrr á árinu 2022. Virði Alvotech er nú um 423 milljarðar króna eftir mikla hækkun í frekar litlum viðskiptum í gær.
[adspot]Bréf í Iceland Seafood International lækkuðu mest allra á Aðalmarkaði, eða um 59,1 prósent í fyrra. Virði félagsins fór úr tæplega 40 milljörðum króna í um 16,5 milljarða króna á einu ári. Þar á eftir kom Marel, sem árum saman var stærsta félagið í íslensku Kauphöllinni þar til Alvotech tók við þeirri stöðu í desember, sem lækkaði um 43,9 prósent. Í upphafi ársins 2022 var virði Marel 663,5 milljarðar króna. Við lok viðskipta á mánudag var virðið komið niður í tæplega 367 milljarða króna. Því hefur virði bréfa í Marel lækkað um næstum 300 milljarða króna á einu ári. Bréf í Kviku banka lækkuðu um 29,1 prósent í fyrra og bréf í Arion banka, sem tvöfaldaðist í virði á árinu 2021, lækkuðu um 21,3 prósent á síðasta ári.
Eina nýskráða félagið á Aðalmarkaði sem lækkaði á síðasta ári var Nova, sem lækkaði um 15,9 prósent frá skráningu. Auk Nova og Alvotech var Ölgerðin, sem hækkaði um 10,4 prósent, skráð á Aðalmarkað og Arnaroq Minerals, sem hækkaði um 29,8 prósent, skráð á First North.
Fjöldi einstaklinga sem á bréf hefur þrefaldast
Heilt yfir eru nú 30 félög á Aðalmarkaði og First North. Sameiginlegt markaðsvirði allra skráðra hlutabréfa var í árslok 2.545 milljarðar króna, samanborið við 2.556 milljarða króna lok árs 2021. Sú lækkun, ellefu milljarðar króna, er einungis 0,4 prósent. Þá á hins vegar eftir að taka tillit til áðurnefndra nýskráninga, en samanlagt markaðsvirði þeirra fjögurra félaga var um 450 milljarðar króna við lok markaða á mánudag. Því lækkaði virði þeirra félaga sem voru skráð á markaði í upphafi árs um rúmlega 460 milljarða króna á síðasta ári. Úrvalsvísitalan lækkaði alls um 27 prósent og Heildarvísitalan um 17 prósent, en tólf prósent að teknu tilliti til arðgreiðslna.
[adspot]Í samantekt Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kauphöllina, vegna síðasta árs kemur fram að fjöldi einstaklinga sem á hlutabréf hafi meira en þrefaldast á þremur árum. „Stærstu tímamótin urðu í september þegar vísitölufyrirtækið FTSE Russell hækkaði Ísland um gæðaflokk í flokk nýmarkaða og í kjölfarið komu nýir erlendir aðilar að hlutabréfamarkaðnum. Þetta setur íslenska markaðinn á annan stall, er viðurkenning á auknum gæðum og eykur trúverðugleika.“
Aðstæður á heimsvísu knúðu fram verðlækkanir eins og víðast hvar annarsstaðar, Markaðsvirði er þó nánast það sama í lok árs 2021 þar sem nýskráningar vógu á móti lækkunum. Þá var meðalvelta á dag svipuð og árið á undan, en fjöldi viðskipta jókst um 15% sem rekja má að nokkru leyti til bæði einstaklinga og erlendra fjárfesta. Þrátt fyrir áframhaldandi óvissu á mörkuðum eru góðir hlutir að gerast. Áhugi á skráningum hefur aldrei verið meiri og við eygjum aukna þátttöku erlendra fjárfesta og einstaklinga.“
Velta með hlutabréf dróst lítillega saman, fór úr 1.071 milljarði króna 2021 í 1.051 milljarð króna í fyrra. Það er samdráttur upp á tvö prósent. Vert er að taka fram að veltan árið á undan var sú mesta sem verið hafði frá bankahruni og hún jókst um 77 prósent milli 2020 og 2021.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir