Stjórnarandstaðan vill 30 milljarða króna innspýtingu til viðbótar

Fimm flokkar stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa náð saman um til­lögur sem miða að auk­inni inn­spýt­ingu vegna bar­átt­unnar við kór­ónu­veiruna. Stjórn­ar­and­staðan seg­ist hafa unnið að því að mynda þverpóli­tíska sam­stöðu, en rík­is­stjórnin hafi ekki sýnt vilja til þess.

Úr þingsal.
Úr þing­sal. Mynd: Bára Huld Beck

Allir fimm flokk­arnir sem sitja í stjórn­ar­and­stöðu: Mið­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ingin, Píratar, Viðreisn og Flokkur fólks­ins, hafa lagt fram sam­eig­in­legar til­lögur um efna­hags­að­gerðir til við­bótar þeim sem rík­is­stjórnin hefur þegar lagt fram og kynnt. Flokk­arnir fimm eru sam­mála um að til­lögur rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur gangi of skammt þegar kemur að því að auka opin­bera fjár­fest­ingu, styðja við nýsköpun og styrkja vel­ferð­ar­kerfið vegna yfir­stand­andi bar­áttu við afleið­ingar útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Samtals eiga til­lögur stjórn­ar­and­stöð­unnar að kosta 30 millj­arða króna ef þær yrðu að veru­leika. Lagt er til að níu millj­örðum til við­bótar verði beint inn í tækni, sprota- og skap­andi verk­efni, við­bót­ar­fjár­fest­ingar í vega­kerf­inu verði upp á níu millj­arða króna, tæpum fimm millj­örðum verði varið í fjár­fest­ingar í hjúkr­un­ar­heim­ilum og öðrum fast­eignum hins opin­bera, og rúmum sjö millj­örðum króna verði varið til vel­ferð­ar­mála.

[adspot]Í til­kynn­ingu vegna þessa segja full­trúar flokk­anna fimm að þeir muni áfram sem áður styðja aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar sem miði í rétta átt, þótt brýnt sé að meira verði gert. „Full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar hafa unnið ötul­lega og af heil­indum að því að ná þverpóli­tískri sam­stöðu innan Alþingis um nauð­syn­legar aðgerðir til við­spyrnu fyrir íslenskt efna­hags­líf vegna útbreiðslu Kór­óna­veirunnar. Var sú vinna unnin í trausti þess að vilji væri til slíkrar sam­stöðu og sam­vinnu af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar. Því miður reynd­ist svo ekki vera. Sú nið­ur­staða olli von­brigðum, sér­stak­lega í ljósi ítrek­aðra yfir­lýs­inga rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um breytt vinnu­brögð. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir standa því saman að breyt­ing­ar­til­lögu með þeim verk­efnum og stuðn­ingi sem þeir telja nauð­syn­leg og ekki náð­ust í gegn í vinnu þings­ins í lið­inni viku. Mik­il­vægt er að missa ekki sjónar af tak­mark­inu um vernd og upp­bygg­ingu íslensks atvinnu­lífs.“

Tillögur stjórnarandstöðunnar eins og þær eru settar fram:

1. Nýsköpun og sprotafyrirtæki: 9,1 milljarður kr.

Stjórn­ar­and­staðan leggur m.a. áherslu á nýsköpun, rann­sóknir og skap­andi greinar. Þá skiptir máli að aðgerðir stjórn­valda nái til beggja kynja. Hækka á þak á end­ur­greiðslum rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar (1,5 makr) en það mun flytja fjöl­mörg verk­efni til lands­ins. Setja á 1 millj­arð kr. í Tækni­þró­un­ar­sjóð sem myndi næstum tvö­falda þennan lyk­il­sjóð. Annar millj­arður fer í Rann­sókn­ar­sjóð og Inn­viða­sjóð. Þá mun hálfur millj­arður renna til menn­ingar, íþrótta og lista þar sem veru­legt tekju­tap hefur orðið vegna far­ald­urs­ins. Keilir og Miðstöð Símennt­unar á Suð­ur­nesjum fá 100 mkr. og Lofts­lags­sjóður, þar með talið skóg­rækt, fá hálfan millj­arð kr. Þá munu fram­lög til rann­sókna og nýsköp­unar í land­búnað (s.s. græn­met­is­rækt) fá hálfan millj­arð. Þá leggur stjórn­ar­and­staðan til tíma­bundna nið­ur­fell­ingu eða lækkun trygg­ing­ar­gjalds upp á 4 millj­arða kr. fyrir fyr­ir­tæki með 7 eða færri starfs­menn.

2. Vegaframkvæmdir og viðhald: 9 milljarðar kr.

Lagt er til að ráð­ist verði í mann­afls­frekar fram­kvæmdir sem hægt er að ráð­ast í á þessu ári. Verður Vega­gerð­inni falið að meta hvaða verk­efni (5 makr) gætu bæst við en þar má nefna t.d. flýt­ingu á fram­kvæmdum við Reykja­nes­braut, Suð­ur­lands­veg og Vest­ur­lands­veg sé þess kostur. Þá er lagt til að 3 makr verði ráð­ist í við­hald og tengi­vegi vega­kerf­is­ins þar sem Vega­gerð­inni verði falið að meta brýn­ustu verk­efnin í hverjum lands­hluta. Millj­arði kr. verður varið í flýt­ingu fram­kvæmda vegna skipu­lags­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í göngu- og hjóla­stíga.

3. Fasteignir og aðrar fjárfestingar: 4,6 milljarðar kr.

Ráðist verður í átak í upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­heim­ila á Suð­vest­ur­horni lands­ins fyrir 2 millj­arða kr. Einnig verða opnuð ný rými sem nú þegar eru til en vantar rekstr­ar­fjár­magn upp á 1 millj­arð kr. Þetta mun leysa bráða­vanda, fjölga störfum og létta álagi af sjúkra­stofn­unum lands­ins. Ráðist verði í önnur minni verk­efni sem eru start­hol­unum og má þar nefna stuðn­ing við fram­kvæmdir sveit­ar­fé­laga t.d. sem varðar frá­veitu­mál (300 mkr), 300 mkr. í sókn­ar­á­ætlun lands­hluta, fram­kvæmdir við flug­hlað á Akureyri og á Egils­staða­flug­velli (300 mkr), 100 mkr í flug­stöð­ina á Akureyri, 200 mkr. í Tækni­skól­ann, end­ur­gerð sögu­legra inn­rétt­inga Bessa­staða­kirkju (100 mkr), við­halds­verk­efni við Hóla í Hjalta­dal (100 mkr.), fram­kvæmdir við íþrótta­hús VMA (100 mkr), og Húsasafn Þjóð­minja­safns­ins (100 mkr.).

4. Velferðarmál: 7,3 milljarður kr.

Vegna ótrú­legs álags er lagt til að greidd verði sér­stök 200.000 kr. ein­greiðsla til þess starfs­fólks í heil­brigðis- og félags­þjón­ustu sem hefur unnið við umönnun Covid smit­aðra sjúk­linga. Samhliða þess­ari greiðslu er sér­stak­lega hvatt til að rík­is­valdið gangi frá kjara­samn­ingum við þær heil­brigð­is­stéttir sem ósamið er við. Þá er lagt til aukið fram­lag til vaxta- og hús­næð­is­bóta til að mæta fyr­ir­sjá­an­legri kaup­mátt­ar­skerð­ingu (3 makr.) en það nær til tekju­lágra ein­stak­linga. Stjórn­ar­and­staðan leggur til að eldri borg­arar fái sam­bæri­lega ein­greiðslu og öryrkjar fá, upp á 20.000 kr. Framlög við­fyr­ir­sjá­an­legan kostnað heil­brigð­is­kerfis vegna far­ald­urs­ins verða aukin um millj­arð kr og 200 mkr. verða lagðar til að fjölgun NPA samn­inga. Loks verða 200 mkr. lagðar til við SÁÁ m.a. vegna minnk­andi sjálfa­fla­fjár í kjöl­far far­ald­urs­ins og 100 mkr. renna til auk­ins stuðn­ings til fjöl­skyldna lang­veikra barna sem hafa orðið fyrir tals­verðu tekju­tapi vegna far­ald­urs­ins.

Heild­ar­töl­urnar í súlu­rit­inu hér að neðan byggja á útreikn­ingum Deloitte á umfangi aðgerða í nokkrum nágranna­löndum Íslands með til­liti til lands­fram­leiðslu. Löndin nota ólíkar skil­grein­ingar á umfangi aðgerða en í til­viki Íslands er gerður grein­ar­munur á eðli aðgerð­anna. Dökkbláa súlan sýnir nýtt fram­lag rík­is­ins, heið­bláa súlan sýnir áður boð­aðar aðgerðir (hluta­starfa­leið og fjár­fest­inga­á­form) og sú ljós­bláa hugs­an­legar lán­veit­ingar bank­anna, tíma­bundna frestun skatt­greiðslna, úttekt sér­eigna­sparn­aðar o.fl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár