Faðir forsætisráðherra ábyrgðist dæmdan barnaníðing

Benedikt Sveins­son biðst afsök­unar í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í dag.

Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var einn þeirra sem skrif­uðu undir með­mæla­bréf með upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar.

Hjalti fékk fimm og hálfs árs fang­els­is­dóm árið 2004 fyrir gróf og ítrekuð kyn­ferð­is­brot gegn stjúp­dóttur sinni. Brotin voru framin meðan stúlkan var fimm til sautján ára gömul.

Benedikt stað­festir þetta í yfir­lýs­ingu.

[adspot]

Yfir­lýs­ingin er eft­ir­far­andi.

Í ljósi alls þess sem fram hefur komið að und­an­förnu vil ég biðja þá sem um sárt eiga að binda vegna máls Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, afsök­unar á því að hafa ljáð honum atbeina við umsókn um upp­reist æru.

Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma tengdur kunn­ingja­fólki okkar hjóna frá skóla­árum. Hann hefur í nokkur skipti leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst vegna fjár­hags­mála eða í tengslum við atvinnu­leit. Engin önnur tengsl hafa verið á milli okkar.

Á síð­asta ári leit­aði Hjalti til mín um með­mæli vegna upp­reistar æru. Hann kom til mín með bréf, til­búið til und­ir­rit­unar. Ég skrif­aði undir bréfið og hef ekki vitað af mál­inu síðan, fyrr en það kom til opin­berrar umfjöll­unar nú í sumar. Ég ræddi ekki með­mæla­bréfið við nokkurn mann, hvorki í stjórn­kerf­inu né ann­ars staðar, og hef aldrei verið spurður frekar út í málið. Allur aðdrag­andi og umbún­aður máls­ins var sá að verið væri að ganga frá forms­at­riði fyrir umsókn til stjórn­sýsl­unnar.

Ég hef aldrei litið svo á að upp­reist æru væri annað en laga­legt úrræði fyrir dæmda brota­menn til að öðl­ast að nýju til­tekin borg­ara­leg rétt­indi. Sá hugur bjó ekki að baki að rétta stöðu Hjalta gagn­vart fórn­ar­lambi hans. Hjalta hef ég sagt að horfast í augu við gjörðir sínar og iðr­ast þeirra.

Það sem átti hér að vera lítið góð­verk við dæmdan mann hefur snú­ist upp í fram­hald harm­leiks brota­þola. Á því biðst ég enn og aftur afsök­unar.

Gögn verða birt

Dóms­mála­ráðu­neyt­inu hefur verið gert, með úrskurði Úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­ing­ar­mál - eftir að frétta­stofa RÚV kærði þangað neitun ráðu­neyt­is­ins um að afhenda gögn - að birta upp­lýs­ingar um þá sem votta ábyrga hegðun. Til stendur að birta upp­lýs­ingar um votta þeirra sem hafa fengið upp­reista æru, allt frá 1995, að því er ráðu­neytið hefur stað­fest.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár