Óttast faraldur í einu fátækasta landi heims

Saga yngsta ríkis heims er blóði drifin. Það er vart hægt að tala um inn­viði, svo bág­borið er ástandið. Og nú hefur fólk í flótta­manna­búðum greinst með COVID-19 og ótt­ast er um fram­haldið.

Heilbrigðiskerfið í Suður-Súdan er vægast sagt bágborið.
Heil­brigð­is­kerfið í Suður-Súdan er væg­ast sagt bág­borið. Mynd: Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna

Fyrstu til­felli COVID-19 hafa verið stað­fest í troð­fullum flótta­manna­búðum í Suður-Súdan. Sam­ein­uðu þjóð­irnar ótt­ast að allt geti farið á versta veg í þessu yngsta ríki heims sem er síst allra í stakk búið til að takast á við far­ald­ur­inn.

Tvö fyrstu smitin greindust í búð­unum, sem eru skammt frá höf­uð­borg­inni Juba, hjá fólki á þrí­tugs­aldri. Líkt og víð­ast hvar í Afríku hafa fá sýni verið tekin en 174 stað­fest smit hafa verið greind. Rann­sókn­ar­stofur í land­inu geta aðeins greint um 500 sýni á viku.

Tæplega 200 þús­und manns njóta verndar Sam­ein­uðu þjóð­anna í búðum vítt og breytt um Suður-Súdan. Ríkið lýsti yfir sjálf­stæði frá Súdan árið 2011 og innan tveggja ára hafði þar brot­ist út blóðug borg­ara­styrj­öld, ein sú óhugn­an­leg­asta sem sögur fara af. Ítrekað hefur verið reynt að semja um frið og leggja niður vopn og undir það nýjasta var skrifað í fyrra. Djúp efna­hag­skreppa hefur fylgt stríð­inu og hung­ursneyð ríkir víða. Grunn­inn­viðir eru í molum og við þessar aðstæður er ómögu­legt að sinna sjúkum af völdum far­ald­urs COVID-19.

Mann­úð­ar­sam­tök og stofn­anir hafa lengi ótt­ast hvað muni ger­ast ef kór­ónu­veiran fer að breið­ast hratt út meðal fátæk­ustu þjóða heims og þá sér­stak­lega í flótta­manna­búðum þar sem aðstæður eru oft svaka­legar. Ein áskor­unin fellst í því að koma hlífð­ar­fatn­aði, lyfja­birgðum og heil­brigð­is­starfs­fólki til þess­ara við­kvæm­ustu svæða heims­ins.

Sýna­tökur hafa ekki farið fram í miklum mæli í flótta­manna­búðum. Í flestum þeirra hafa engar slíkar farið fram að því er fram kemur í frétt banda­rísku AP-frétta­stof­unnar.

Hjálp­ar­starfs­menn í Suður-Súdan segja fáar leiðir færar til að sinna sjúkum ef far­ald­ur­inn nær þar fót­festu. Heil­brigð­is­kerfið byggir nær ein­göngu á utan­að­kom­andi aðstoð ýmissa frjálsra félaga­sam­taka. Aðeins er hægt að ein­angra sjúka á einum spít­ala. Þar voru rúmin 24 en hefur nú verið fjölgað í átta­tíu. Aðeins átján af þeim sem eru með stað­fest smit hafa þó farið þangað í ein­angrun.

Í síð­ustu viku ákváðu stjórn­völd í Suður-Súdan að slaka á aðgerðum sínum til að hefta útbreiðsl­una. Barir, veit­inga­hús og mark­aðir hafa síðan þá verið opn­aðir að nýju. Samtök lækna í land­inu telja þetta veru­legt áhyggju­efni þar sem smitum fari fjölg­andi.

Það veldur ekki síst áhyggjum að þeir sem greinst hafa með veiruna neita að aðstoða yfir­völd við smitrakn­ingu. Lækn­ir­inn Joseph Wamala, for­stöðu­maður Alþjóð­legu heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, WHO, í Suður-Súdan, segir að með þessu stefni fólk sinni nán­ustu fjöl­skyldu í hættu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár