Öll vinna bönnuð í vakt- og lyfjaherbergi á Landspítalanum

Vinnu­eft­ir­litið hefur brugð­ist við slæmum aðstæðum á ákveðnum stöðum á Land­spít­al­anum.

Í eft­ir­lits­heim­sókn starfs­manna Vinnu­eft­ir­lits­ins á lungna­deild A6 í Land­spít­al­anum að Fossvogi þann 29. jan­úar 2018 fund­ust m.a. raka­skemmdir og megn fúkka­lykt í vakther­bergi merktu 618 og lyfja­her­bergi merkt 626.

Öll vinna hefur verið bönnuð á fyrr­nefndum stöðum, sam­kvæmt ákvörðun eft­ir­lits­ins þar um. „Af fram­an­greindum ástæðum var öll vinna bönnuð í her­bergj­unum þar sem líf og heil­brigði starfs­manna var tal­inn hætta búinn, uns búið er að gera úrbætur. Þrátt fyrir bannið getur Land­spít­al­inn unnið að úrbótum,“ segir í til­kynn­ingu á vef Vinnu­eft­ir­lits­ins.

Reglu­lega á und­an­förnum árum, hafa komið upp til­vik á Land­spít­al­anum að raka­skemmdir hafa hamlað og komið í veg fyrir vinnu. Húsnæði er ónýtt á ýmsum svæðum, vegna raka­skemmda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár