Viðkvæmir hópar Íslendinga erlendis hvattir til að koma heim

Íslend­ingar yfir 60 ára sem glíma við und­ir­liggj­andi sjúk­dóm, eru fjarri fjöl­skyldu og vinum eða eiga ekki rétt á heil­brigð­is­þjón­ustu þar sem þeir dvelja eru á meðal þeirra sem hvattir eru til að koma heim til Íslands.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­völd biðla til Íslend­inga erlendis, sem tvö af fjórum eft­ir­far­andi atriðum eiga við, að íhuga heim­ferð til Íslands. Atriðin þrjú eru að vera yfir 60 ára gam­all, vera með und­ir­liggj­andi sjúk­dóm, vera fjarri vinum og fjöl­skyldu eða eiga ekki rétt á heil­brigð­is­þjón­ustu í land­inu þar sem við­kom­andi dvelst eða heil­brigð­is­kerfið þar annar ekki álag­inu.

[links]Hvatn­ing­unni er beint sér­stak­lega til Íslend­inga sem annað hvort eru á ferða­lagi erlendis eða dvelj­ast þar tíma­bundið og eiga rétt á heil­brigð­is­þjón­ustu á Íslandi.

Í til­kynn­ingu á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að sér­stök athygli sé vakin á því að fólk sem sýnir sjúk­dóms­ein­kenni gæti átt á hættu að vera synjað um inn­ritun í flug og því er óráð­legt að bíða of lengi. „Sótt­varna­læknir hefur meðal ann­ars skil­greint Spán sem svæði með mikla smitá­hættu og búast má við að álag verði tals­vert á heil­brigð­is­kerfið þar í landi. Íslend­ingar sem koma frá Spáni skulu fara í sótt­kví í fjórtán daga eftir heim­komu. Þetta tekur til allra hluta Spánar, þ.m.t. Kanarí­eyja (Gran Canaria ,Tenerife og aðrar eyjar).“

Verið að sækja Íslendinga til Tenerife og Kanarí

Þetta er önnur form­lega hvatn­ingin sem íslensk stjórn­völd senda til Íslend­inga sem eru á ferða­lagi erlendis til að flýta heim­för. Sú fyrri, sem var almenn og ekki beint að ákveðnum hópum var send á laug­ar­dag. Í henni var haft eftir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra að víða ættu Íslend­ingar á hættu að verða inn­lyksa eða lenda í sótt­kví við erf­iðar aðstæð­ur. „Ekki er víst hvaða aðgang og rétt­indi Íslend­ingar munu hafa að heil­brigð­is­þjón­ustu auk þess sem heil­brigð­is­kerfi í mörgum ríkjum anna ekki álagi[...]Í því ljósi höfum við ákveðið að ráða Íslend­ingum gegn ferða­lögum erlendis og þeim sem eru á ferða­lagi erlendis að íhuga að snúa heim fyrr en ella.“

[adspot]Ljóst er að erf­ið­ara verður með hverjum deg­inum að koma sér á milli landa, enda bæði þorri Evrópu og Banda­ríkin búin að loka landa­mærum sínum og setja á ferða­bann. Fyrir vikið hafa flest flug­fé­lög dregið veru­lega úr fram­boði sínu og búist er við því að far­þega­flug á svæð­unum muni leggj­ast að stóru leyti af í nán­ustu fram­tíð.

Á ferða­þjón­ustu­frétta­vefnum Túrista er greint frá því að ferða­skrif­stofan Úrval-Útsýn sé að senda þrjár þotur til Spánar í dag þriðju­dag til að sækja far­þega sem eiga pant­aða heim­ferð til Íslands á næstu dögum. Tvær þotur fara til Tenerife og ein til Las Palmas á Kanarí.

Þar er haft eftir Þórunni Reyn­is­dóttur, for­stjóra Úrval-Útsýn, að farið heim kosti þá sem eiga bókað far með Úrval-Útsýn ekki neitt auka­lega. Sama gildi um far­þega syst­ur­fyr­ir­tækja ferða­skrif­stof­unnar, Plús­ferða og Sum­ar­ferða.

Mögulega verða þó laus sæti fyrir fleiri far­þega frá Tenerife og þau verða þá til seld á heima­síðu Úrval-Útsýn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár