Mynd: BHM

Óróinn kokkaður upp inni á skrifstofu SA

„Sú hætta er raun­veru­lega fyrir hendi að ungt fólk finni ekk­ert að gera eftir nám. Við getum þá siglt inn í aðstæður sem eru svip­aðar og í sunn­an­verðri Evrópu þar sem atvinnu­leysi ungs fólks er gríð­ar­legt.“ Þetta segir Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir.

Sú hætta er raun­veru­lega fyrir hendi að ungt fólk finni ekk­ert að gera eftir nám. Við getum þá siglt inn í aðstæður sem eru svip­aðar og í sunn­an­verðri Evrópu þar sem atvinnu­leysi ungs fólks er gríð­ar­legt. Þetta má ekki ger­ast hér. Við getum ekki boðið nýjum kyn­slóðum upp á það að þau komi út úr sinni skóla­göngu og að ekk­ert sé í boði.“

Þetta segir Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður Banda­lags háskóla­manna (BHM), en hún hefur miklar áhyggjur af unga fólk­inu sem er í háskóla og þeim sem koma út á vinnu­markað við aðstæð­urnar sem eru uppi í dag.

Lausnin liggur í því, að hennar mati, að horfa til lengri tíma og ákveða hvernig atvinnu­upp­bygg­ing eigi að vera hér á landi. „Við höfum langa reynslu af nátt­úru­auð­linda­nýt­ingu og hún er að sjálf­sögðu ástæða þess að við getum búið í þessu landi. Við eigum orku­lindir og fisk í sjónum og svo er upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar ein útgáfa af auð­linda­nýt­ingu. Næstum allir ferða­menn sem koma til Íslands segj­ast gera það vegna þess að þeir vilja sjá nátt­úr­una og þetta stór­kost­lega land.

En nátt­úru­auð­linda­nýt­ingin getur hrunið í einu vet­fangi eins og dæmin sanna. Þess vegna er nauð­syn­legt að byggja atvinnu­lífið líka á stoðum sem ekki er hægt að kippa undan okkur sí svona. Það er ekk­ert nýtt í því og engin geim­vís­indi. Það snýst um rann­sóknir, hug­vit, þekk­ingu, nýsköpun, nýjar útflutn­ings­greinar og svo fram­vegis,“ segir hún.

Þórunn vonar að Íslend­ingar verði færir um það að byggja upp fjöl­breytt atvinnu­líf sem gefi af sér sjálf­bæran hag­vöxt og vel­ferð, og góð störf fyrir. „Við þurfum að horfa til langs tíma. Það krefst upp­stokk­unar og nýrrar hugs­unar en ég er von­góð um að við getum gert þetta,“ segir hún.

Hópurinn í harkinu

Stjórn­völd hafa brugð­ist við ástand­inu með nokkrum aðgerða­pökkum – sem vissu­lega hafa verið umdeildir. Þegar Þórunn er spurð út í aðgerð­irnar þá segir hún að margt hafi verið vel gert. „Það má virða stjórn­völdum það til vor­kunnar að það er erfitt að bregð­ast við í óstöð­ugu ástandi og sumt heppn­ast og annað ekki. En við höfðum gert okkur von um að gripið yrði til víð­tæk­ari aðgerða en hefur verið gert og við fundum til­finn­an­lega fyrir því að það vant­aði að koma sér­stak­lega til móts við lista­fólk.“

Um miðjan októ­ber dró til tíð­inda en þá kynnti rík­is­stjórnin stuðn­ings­að­gerðir fyrir lista­menn sem orðið hafa fyrir tekju­falli vegna far­ald­urs­ins. Aðgerð­irnar miða að því að bæta stöðu starf­andi lista­manna og menn­ing­ar­tengdra fyr­ir­tækja en liður í þeim eru tekju­falls­styrkir sem ein­yrkjar og smærri rekstr­ar­að­ilar munu geta sótt um. Ráðgert er að slíkur stuðn­ingur geti sam­tals numið rúmum 14 millj­örðum króna. Til­lög­urnar er nú til afgreiðslu á Alþingi.

Fyrir hvað erum við að lifa ef ekki fyrir menn­ingu og listir?
Þórunn telur það nauðsynlegt að koma beint til móts við listafólk á vinnumarkaði.
Þórunn telur það nauð­syn­legt að koma beint til móts við lista­fólk á vinnu­mark­aði.

„Innan BHM eru leik­arar, hljóm­list­ar­menn, tón­list­ar­menn og sviðs­lista­fólk og við höfum varið drjúgum tíma í það að vekja athygli ráð­herra á því að það þyrfti að koma sér­stak­lega til móts við þennan hóp. Þetta er hóp­ur­inn sem er í hark­inu, sjálf­stætt starf­andi eða í blönd­uðu starfi,“ segir hún en Þórunn telur nauð­syn­legt að koma beint til móts við þetta fólk á vinnu­mark­aði eins og annað.

„Það eru for­dæmi fyrir svona aðgerðum í nágranna­löndum okkar, á Norð­ur­lönd­unum, í Þýska­landi og Bret­landi. Þetta er ekki aðeins hluti að því að koma til móts við fólk í hark­inu heldur líka nauð­syn­leg aðgerð til að við­halda menn­ingar- og lista­starf­semi í land­inu og fleyta henni í gegnum þetta skrítna tíma­bil.

Ég er ein­læg­lega þeirra skoð­unar að í því felist mikil lífs­gæði fyrir okkur öll því fyrir hvað erum við að lifa ef ekki fyrir menn­ingu og listir?“ spyr hún.

Allt í húfi

Þórunn bendir á að auð­vitað sé ástandið einnig erfitt innan ann­arra hópa í BHM. Með­al­launin þar eru á bil­inu sjö til átta hund­ruð þús­und og verði gríð­ar­legt tekju­fall ef fólk missi starfið sitt. „Á þetta höfum við margoft bent og tel ég að með því að lengja tekju­teng­ingu atvinnu­leys­is­bóta um þrjá mán­uði sé verið að koma til móts við ábend­ingar okkar og ann­arra.

Miklum fjár­munum hefur verið varið úr rík­is­sjóði í lok­un­ar­styrki, hluta­bætur og annað sem hefur gagn­ast fyr­ir­tækjun, stofn­unum og launa­fólk. Við höfum fullan skiln­ing á því að verið sé að reyna að koma til móts við ólíkar þarfir.“

BHM hefur bent á góða stöðu rík­is­sjóðs sem geri Íslend­ingum kleift að mæta krepp­unni með skulda­söfnun. „Við verðum að gera það sem sam­fé­lag – því þessi kreppa er ekki eins og hinar, svo maður end­ur­taki þá klisju, og það er allt í húfi.“

Þórunn nefnir í þessu sam­bandi atvinnu­leysis­töl­urnar fyrir sept­em­ber en fjöldi háskóla­mennt­aðra á atvinnu­leys­is­skrá hefur auk­ist um 43 pró­sent frá því far­ald­ur­inn skall á en almenna aukn­ingin er 31 pró­sent.

Hún segir að sam­an­burður við árið 2009 sem flestum sé í fersku minni gefi skýra mynd af ástand­inu. „Í sept­em­ber árið 2009 voru háskóla­mennt­aðir 15 pró­sent af heild­ar­fjölda atvinnu­lausra. Í sept­em­ber 2020 eru þeir 27 pró­sent af heild­ar­fjöld­anum.“

Kreppa dregur fram mikilvægi hinnar opinberu þjónustu

Þórunn bendir enn fremur á að þessi kreppa sé kynjuð. „Fleiri konur eru að missa vinn­una. Það er líka aug­ljóst að staða inn­flytj­enda er mjög erfið enda eru þeir stærsti hóp­ur­inn á atvinnu­leys­is­skrá. Þá liggur fyrir að innan opin­bera geirans, hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum sem reka heil­brigðis- og mennta­kerfið í land­inu, fer fram nið­ur­skurður og fækkun starfa í formi skipu­lags­breyt­inga.

Það er nauð­syn­legt að taka ekki augun af því hversu mik­il­vægt það er að halda úti góðri opin­berri þjón­ustu – ekki síst opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu. Henni er einmitt haldið uppi af fjöl­mörgum kvenna­stéttum. Það sama má segja um mennta­kerfið en sem betur fer höfum við getað hlíft börnum og ung­lingum mest­megnis við sam­komu­banni.“ segir hún.

Þannig dragi þessi kreppa fram „mik­il­vægi allra sem eru í fram­línu­störfum, hvort sem það er heil­brigð­is­starfs­fólk, stræt­is­vagna­bíl­stjórar eða aðrir. Að því leyti finnst mér hún varpa mjög skýru ljósi á það hvað skiptir máli í sam­fé­lagi sem við rekum saman og þurfum að eiga saman.“

Ef hægt sé að tala um ein­hverja góð­kynja afurð af þess­ari kreppu þá sé það þessi stað­reynd.

Það er nauð­syn­legt að taka ekki augun af því hversu mik­il­vægt það er að halda úti góðri opin­berri þjón­ustu – ekki síst opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu.
Þórunn segist sannfærð um að Íslendingar verði að breyta um áherslu í atvinnumálum.
Þórunn seg­ist sann­færð um að Íslend­ingar verði að breyta um áherslu í atvinnu­málum.

Hlutverk þeirra að halda stjórnvöldum við efnið

En munu gildi í íslensku sam­fé­lagi breyt­ast við þetta ástand, að mati Þórunnar? „Já, ég er von­góð um það en það er með þetta eins og annað að ekk­ert af þessu er sjálf­sagt. Það er hlut­verk okkar, til dæmis hjá Banda­lagi háskóla­manna, að halda stjórn­völdum við efnið. Það er mik­il­vægt að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins sinni því vel.

Einnig er mik­il­vægt að við töpum ekki tæki­færum sem geta legið í þess­ari kreppu. Kannski finnst ein­hverjum það svo­lítið djarft að tala með þeim hætti en við þurfum til dæmis að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og upp­fylla Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Það er mik­il­vægt fyrir okkur öll, ekki síst fyrir launa­fólk.“

„Það er svo auð­velt að tapa þræð­inum þegar kemur að lofts­lags­breyt­ingum, sér­stak­lega þegar fólk fer í skyndiredd­ing­arnar og hugsar ekki til langs tíma: Hvar viljum við vera eftir 10 ár og hvernig ætlum við að kom­ast þangað? Við verðum að skapa góðan grund­völl fyrir nýjar atvinnu­greinar og nýsköpun, bæði á einka­mark­aði og hjá hinu opin­bera.“

Þórunn seg­ist sann­færð um að Íslend­ingar verði að breyta um áherslu í atvinnu­málum. „Það er sam­starfs­verk­efni stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins. Við vitum að efl­ing alls kyns sjóða skilar árangri en við van­metum það hvað íslenskt atvinnu­líf er fábreytt. Við þurfum miklu meiri fjöl­breytni,“ segir hún.

Ættum ekki að lenda á sama stað og eftir hrunið 2008

Þórunn seg­ist sjá mik­inn mun á þess­ari kreppu og hrun­inu 2008. „Þessi kreppa er allt öðru­vísi. Það eru allt aðrar ástæður fyrir henni og aðstæður aðrar í sam­fé­lag­inu líka. Skulda­staða rík­is­sjóðs er mikið betri núna. Það erf­ið­asta við krepp­una eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins var hvaða áhrif það hafði á eigna- og skulda­stöðu heim­il­anna. En ef hér tekst að halda verð­bólgu í skefjum og nýta stöðu rík­is­sjóðs og vara­forða Seðla­bank­ans með skyn­sam­legum hætti þá ættum við ekki að lenda á sama stað,“ telur hún.

Þá bendir hún enn fremur á að nú séu Íslend­ingar hins vegar í atvinnu­leysiskreppu en þó atvinnu­leysi hafi rokið upp eftir hrun þá hafði það farið til­tölu­lega fljótt niður aftur.

„Svo byrj­aði vöxtur sem stóð yfir í sex til sjö ár. Sá vöxtur kom hjólum atvinnu­lífs­ins aftur af stað. Nú berum við fullan þunga atvinnu­leys­is­ins og að því leyti eru aðstæður okkur svip­aðar þeim sem önnur Evr­ópu­ríki þekkja.

Haga þarf að jaðarsettu hópunum

Margir halda því fram að tæki­færi felist í kreppu. Telur Þórunn að nú sé tími til að gera kerf­is­breyt­ingar?

„Kerf­is­breyt­ingar og ekki kerf­is­breyt­ingar,“ segir hún. „Ég velti fyrir mér hvort þess þurfi. Jú, það þarf að gera nauð­syn­legar umbætur, t.d. á almanna­trygg­inga­kerf­inu. Fyrst og síð­ast þarf að standa vörð um kjör og rétt­indi launa­fólks og síðan að byggja undir atvinnu­sköpun og nýjar atvinnu­greinar þannig að við komumst klakk­laust í gegnum þessa kreppu.“

Gæta þurfi þess að eng­inn verði skil­inn eftir, lág­launa­hópar eða jað­ar­settir hópar. „Það er stóra verk­efnið fyrir okkur öll. Jað­ar­setn­ing hefur alvar­legar félags­legar afleið­ingar sem við viljum ekki sjá og það er stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins að koma í veg fyrir það. En gleymum því ekki að margir græða pen­inga í þess­ari kreppu.

Hún bendir á að sumar atvinnu­greinar mali þannig gull í þessu ástandi. „Á end­anum verðum við að sjá til þess að allir njóti þess ábata.“

„Hagkerfið verður að vera miklu fjölbreyttara. Við þurfum á fleiri atvinnugreinum að halda,“ segir Þórunn.
„Hag­kerfið verður að vera miklu fjöl­breytt­ara. Við þurfum á fleiri atvinnu­greinum að halda,“ segir Þórunn.

Hætta á því að öryrkjar verði skildir eftir eina ferðina enn

Þórunn segir að Íslend­ingar eigi góð kerfi á borð við atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið og almanna­trygg­inga­kerfið. „Það er vissu­lega ekki óum­deilt og þar er mikil hætta á því að öryrkjar verði skildir eftir eina ferð­ina enn við fjár­laga­gerð næsta árs. Fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið virkar og verður enn betra þegar það verður komið í 12 mán­uði og jafna skipt­ingu milli for­eldra. Við skulum ekki fara í að brjóta það sem virkar en það sem skiptir máli er að gæð­unum sé skipt með rétt­látum hætti á milli lands­manna.“

„Við erum pínu­lítið hag­kerfi, opið og auð­linda­drifið, sem byggir á útflutn­ingi. En svo ég ítreki það enn og aftur að hag­kerfið verður að vera miklu fjöl­breytt­ara. Við þurfum á fleiri atvinnu­greinum að halda.“

Lífskjarasamningurinn „eins og spennitreyja“

Kjara­bar­átta og umræða um hana hefur verið að herð­ast und­an­farin ár en Þórunn væntir þess ekki að harkan verði ekki með sama hætti í vetur. Hún segir að næstum öll aðild­ar­fé­lög BHM séu búin að semja við ríkið og ganga frá samn­ingum við sveit­ar­fé­lögin. „Við erum einnig með almennan kjara­samn­ing við Samtök atvinnu­lífs­ins þar sem tryggð eru rétt­indi en ekki kveðið á um launa­töflur. Allir kjara­samn­ingar sem aðild­ar­fé­lög BHM hafa gert síð­ast­liðið eitt og hálft ár hafa verið gerðir innan ramma lífs­kjara­samn­ings­ins. Hann virkar eins og spenni­treyja. En það var samið til langs tíma á íslenskan mæli­kvarða eða til þriggja ára að minnsta kosti. Það var samið um krónu­tölu­hækk­anir en það eru ódýr­ustu kaup­hækk­anir sem atvinnu­rek­endur geta fengið. Og þær tryggja þeim sem eru með lægstu launin mestar hækk­anir.“

Innan þessa ramma þurftu síðan aðild­ar­fé­lög BHM að ná nið­ur­stöðu. „Það var erfitt en það tókst og það var ekki vegna þess að verið væri að semja um miklar launa­hækk­anir heldur vegna þess að verið var að semja um mögu­lega stytt­ingu vinnu­vik­unnar og breytt vakta­vinnu­kerfi. Þegar við lítum til baka verða það lík­lega mestu tíð­indin í þess­ari samn­ingslotu.“

Hún seg­ist von­ast til þess að stytt­ing vinnu­vik­unnar hafi góð áhrif á líf fólks. „Ég vona að hún verði ekki til þess að konur fari fyrr heim til þess að sinna heim­il­is­rekstri og börnum í meira mæli en þær gera nú þegar, nóg er nú samt. Ég vona að hún verði til þess að jafna ábyrgð karla og kvenna á heim­il­is­rekstri og í barna­upp­eldi. Ég ég vona ekki síður að hún verði til þess að minnka álag á fólki og gefa því fleiri gæða­stundir fyrir sjálft sig og með fjöl­skyld­unni. Það veitir ekki af.“

Ekki viss um að samningum hefði verið sagt upp í atkvæðagreiðslu SA

Varðandi óróa á vinnu­mark­aði þá seg­ist Þórunn ekki sjá fyrir sér að hann verði mik­ill í vetur, þótt það sé vissu­lega ekki úti­lokað.

„Nema kannski sá órói sem er kokk­aður upp inni á skrif­stofu hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins. Þetta „sku­espil“ sem farið var í í sept­em­ber með hót­unum um upp­sögn að segja upp lífs­kjara­samn­ings­ins var nátt­úru­lega engu lagi líkt. SA náði með því 25 millj­örðum króna út úr rík­is­kass­anum en ég er ekki viss um að samn­ingum hefði verið sagt upp í atkvæða­greiðslu. Mér finnst það meira að segja ólík­legt.“

Hún segir það vera skrítið ástand þegar það séu vinnu­veit­endur sem ruggi bátnum en ekki launa­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár