Mynd: Bára Huld Beck

Ekki útópískur draumur að allt fólk verði metið að verðleikum

Kjarninn hitti full­trúa bæði atvinnu­lífs og launa­fólks og fékk sýn þeirra á stöðu mála. Næst í röð­inni er Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar.

Staðan er bara þessi: Við erum með fólk sem hefur sann­ar­lega svitnað fyrir hag­vöxt­inn, svitnað fyrir góð­ærið og á ekki nokkurn skap­aðan hlut. Á ekki þús­und krónur inni á banka­reikn­ingum sínum þegar atvinnu­leysið kemur. Þetta veldur mér gríð­ar­legu hug­ar­angri og ef stjórn­völd fara ekki að taka sig á og við­ur­kenna þessa bláköldu stað­reynd, að það getur eng­inn kom­ist af á svona lágum fjár­hæðum, og bregð­ast við þá sé ég bara fyrir mér hræði­lega hluti.“

Þetta segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, þegar hún er spurð út í þá stöðu sem upp er komin í íslensku sam­fé­lagi.

Þá spyr hún hvort sam­fé­lagið sé til­búið til þess að sætta sig við það að byrð­arnar séu lagðar á fólkið sem hefur ekk­ert til saka unnið. „Ég held ekki. Ég held að við viljum ekki svo­leiðis sam­fé­lag,“ segir hún.

Þakkar baráttu þeirra sem á undan komu

Sólveig Anna spyr enn fremur hvort nú ekki sé kjörið tæki­færi fyrir stjórn­völd að sýna póli­tíska og sið­ferði­lega getu og for­ystu til að leysa það vanda­mál sem liggur mest á að leysa; að tryggja það að fólk hafi nóg á milli hand­anna til þess að sjá fyrir sér og sínum. Hún segir að fram­tíðin muni ráð­ast af því hvernig Íslend­ingar muni tækla það ástand sem nú er uppi.

„Á tímum sem þessum þakka ég mjög fyrir bar­áttu þeirra sem á undan okkur fóru í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og verka­lýðs­bar­átt­unni. Ég horfi til baka á síð­ustu öld og þær stór­kost­legu fórnir sem fólk færði og þá ótrú­legu bar­áttu sem var háð,“ segir hún.

Þá telur Sólveig Anna það vera mik­il­vægt að búa í landi þar sem að þegar högg­bylgjan fer í gegnum hið kap­ít­al­íska kerfi og vinnu­aflið byrjar að hrist­ast af skrímsl­inu þá sé sann­ar­lega eitt­hvað sem taki á móti því. Að fólk lendi ekki marg­brotið á göt­unni.

Hún seg­ist jafn­framt vera þakk­lát fyrir það á stundum sem þessum að á Íslandi sé stór verka­lýðs­hreyf­ing sem í krafti stærðar sinnar – og þess gríð­ar­mikla fjölda sem innan hennar er – getur kraf­ist þess að hafa aðkomu að aðgerðum stjórn­valda. Þær aðgerðir sem gagn­ast hafa vinn­andi fólki núna í þess­ari COVID-kreppu séu aðgerðir sem hreyf­ingin hafi lagt áherslu á og með því að stíga fram sterk náð að keyra í gegn.

Á tímum sem þessum þakka ég mjög fyrir bar­áttu þeirra sem á undan okkur fóru í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og verka­lýðs­bar­átt­unni.
Sólveig Anna
Sólveig Anna

Nú er tækifæri til að sýna að erlent vinnuafl sé „sannarlega ekki bara eitthvað einnota drasl“

Sólveig Anna rifjar upp að þús­undir karla og kvenna hafi verið hvattir til að flytj­ast hingað til lands á góð­ær­is­tím­anum til þess að starfa í ferða­manna­iðn­að­inum. Nú sé staðan önnur og mun gríð­ar­legur fjöldi aðflutts fólks verða atvinnu­laus. Af þessu hafi hún miklar áhyggjur. „Við búum í hag­kerfi sem er knúið áfram með því að leyfa eig­endum fjár­magns­ins og atvinnu­tækj­anna að fara sínu fram með stuðn­ingi rík­is­sjóðs,“ segir hún og bætir því við að Íslend­ingar þurfi að við­ur­kenna að ýmis­legt mis­jafnt hafi gerst í ferða­manna­brans­anum, sam­an­ber nýlega skýrslu um aðstæður erlends vinnu­afls í ferða­þjón­ust­unni.

Nú hafi stjórn­völd og þeir sem hagn­ast hafa á vinnu þessa fólks tæki­færi til að sýna að það sé mik­ils metið og „sann­ar­lega ekki bara eitt­hvað einnota drasl sem hægt er að kasta í ruslið um leið og það hentar íslensku hag­kerfi – heldur að það muni fá til baka það sem það á inni hjá rík­is­sjóði og þessu sam­fé­lagi í hækkun bóta, atvinnu­skap­andi verk­efnum og í því að hér verði brugð­ist við þessu ástandi með upp­byggi­legum og skyn­sömum hætti með þarfir vinn­andi fólks í fyr­ir­rúmi.“

Hún segir að ef vinn­andi fólk á Íslandi nái að setja fram kröfur sínar með nægi­lega skýrum og ein­beittum hætti í algjörri sam­stöðu þá hafi stjórn­völd ekki mikið um annað að ræða en að fall­ast á kröf­urnar. Það sé lyk­il­at­riðið.

Verkalýðshreyfingin „hreyfiafl fyrir breytingar sem við þurfum að sjá“

Varðandi sam­stöðu innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar þá segir Sólveig Anna að hún viti hund­rað pró­sent hvert hlut­verk Eflingar sé og hvert hlut­verk hennar sjálfrar sé. „Ég veit það að við erum algjör­lega sam­einuð í því verk­efni, það er að berj­ast fyrir rétt­indum verka- og lág­launa­fólks í þessu landi og láta aldrei deigan síga í þeirri bar­áttu. Sökum stærðar félags­ins innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar þá nátt­úru­lega höfum við mjög mikið vægi.“

Verka­lýðs­hreyf­ingin, og þá sér­stak­lega Alþýðu­sam­band Íslands, var gagn­rýnd tölu­vert eftir hrun fyrir að vinna of náið með stjórn­völdum og atvinnu­líf­inu en mikil end­ur­nýjun hefur átt sér stað innan hreyf­ing­ar­innar á und­an­förnum miss­erum. Aðspurð út í þessa end­ur­nýjun segir Sólveig Anna að hún upp­lifi ekki með­virkni hjá for­seta ASÍ, Drífu Snædal, með stjórn­völdum.

„Ég upp­lifi miklu frekar ríku­legan vilja til þess að hlusta á fólkið inn í hreyf­ing­unni til þess að finna lausnir og miðla málum. En þó ekki ein­ungis til að vera aðhald á aðgerðir stjórn­valda heldur einnig hreyfi­afl fyrir breyt­ingar sem við þurfum að sjá,“ segir hún.

„Fuck you! Ég er meira virði“

Þrátt fyrir að verka­lýðs­hreyf­ingin sé sterk um þessar mundir þá bendir Sólveig Anna á að þau glími við það risa­vaxna verk­efni að hreyf­ingin sé að koma undan löngu tíma­bili þar sem her­ská stétta­bar­átta hafi ekki verið í boði. „Það eina sem í boði var fyrir hreyf­ing­una og fyrir fólk var að starfa eftir ein­hverjum mark­miðum um stöð­ug­leika og þjóð­ar­sátt. Þá var bara búið að reikna fyr­ir­fram út að skúr­ing­ar­kerl­ingin ætti bara alltaf að fá lang­minnst og að leik­skóla­kerl­ingin ætti alltaf líka að fá minnst, alveg sama hvað. Og þá skipti engu máli hvort það var góð­æri eða hvort það var kreppa; þessir útreikn­ingar breytt­ust aldrei,“ bendir hún á.

Nú sé stórt og mikið verk­efni að kom­ast aftur á þann stað að fólk segi bara: „Fuck you! Ég er meira virði og ekki vegna þess að ég sé búin að fara í gegnum eitt­hvað sjálf­styrk­ing­ar­nám­skeið heldur vegna þess að ég er meira virði sem vinnu­afl í þessu kerfi og þess vegna ætla ég að fá meira.“

Augnablik sem þessi geta verið hættuleg – en einnig borið með sér von

Efna­hags­þreng­ing­arnar voru byrj­aðar fyrir far­ald­ur­inn en dýpk­uðu óvænt og með miklum látum fyrr á þessu ári í kjöl­far sótt­varna­að­gerða hér og ann­ars staðar í heim­inum. „Allt í einu á sér stað þetta ótrú­lega augna­blik þegar hin kap­ít­al­íska mask­ína stöðvast – ekki vegna verk­falla vinnu­aflsins eða neins slíks heldur vegna eins­konar nátt­úru­ham­fara. Og af því að við búum í þessu stétt­skipta arð­ráns­sam­fé­lagi þá skýr­ast stétta­lín­urnar og stétta­skipt­ingin um leið. Afhjúp­unin hefur þar af leið­andi verið mjög mikil, bæði á Íslandi og í öllum heim­inum.

Við höfum séð ákveðnar and­stæður skerp­ast. Þá sjáum við ann­ars vegar vinnu­aflið algjör­lega bjarg­ar­laust, með ekk­ert á milli hand­anna, og svo hins vegar auð­stétt­ina algjör­lega örvænt­ing­ar­fulla í því að reyna að finna ein­hverjar leiðir til að láta við­skiptin fara aftur af stað.“

Svona augna­blik geta verið mjög hættu­leg, að mati Sól­veigar Önnu. „En þau geta líka borið með sér mikla von um breyt­ingar, þannig að ég leyfi sjálfri mér þegar ég horfi yfir sviðið að vera líka bjart­sýn.“

Ótrúlegt að framganga SA orsaki ekki meira uppnám

Eitt stærsta áhyggju­efni hennar varðar Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) og veg­ferð þeirra í aðkomu að kjara­bar­áttu á Íslandi. „Allt fólk sem er sæmi­lega viti borið með sæmi­lega fún­ker­andi sið­ferð­is­átta­vita hlýtur að vera í áfalli yfir hvernig Samtök atvinnu­lífs­ins vinna. Við erum með þennan risa­stóra aðila á vinnu­mark­aði sem fer fram með svo sví­virði­legum hætti að mér finnst bara ótrú­legt að það orsaki ekki meira upp­nám í sam­fé­lag­inu.“

Hún segir að aðilar innan sam­bands­ins brjóti mark­visst lög sem gilda á Íslandi, en þar á hún meðal ann­ars við vinnu­lög­gjöf­ina frá árinu 1938 og „þetta gera þau vegna þess að þau segja að þessi lög­gjöf sé úrelt. Þetta er mjög áhuga­vert og til marks um mjög van­þroskaða lýð­ræð­isum­ræðu að þetta skuli ekki vekja meiri athygli. Er það þá þannig núna að tals­maður atvinnu­rek­enda, Halldór Benjamín, líti svo á að hann megi bók­staf­lega velja og hafna lögum sem hann lifir eftir? Þetta er ótrú­legur staður til að vera á,“ segir hún.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, sagði í júlí síð­ast­liðnum að sam­tökin stæðu með Icelandair að ákvörðun um að slíta við­ræðum við Flug­freyju­fé­lag Íslands og leita annað en sam­tökin fóru með samn­ings­rétt fyrir hönd Icelandair. Hann sagði að sú leið sem farin var væri lög­leg en að ef Flug­freyju­fé­lag Íslands sætti sig ekki við hana gæti það farið fyrir dóm­stóla með málið. „Við getum sagt að íslensk vinnu­lög­gjöf er að mörgu leyti úr sér gengin og fyrir löngu kom­inn tími til að end­ur­skoða hana, ekki bara að hluta eða í heild. Það getur verið að þessi deila komi til álita þar,“ sagði hann við RÚV í júlí.

Hann sagði enn fremur í við­tali við Kjarnann í byrjun sept­em­ber að hann neit­aði að horfa á vinnu­mark­að­inn sem stríðs­völl. Sólveig Anna hefur margt um Halldór Benjamín og Samtök atvinnu­lífs­ins að segja en hún bendir á að SA séu núna í hönd­unum á „mjög lít­illi klíku Sjálf­stæð­is­flokks­ins“ og sé þetta í raun sam­band ungra Sjálf­stæð­is­manna fyrir ein­hverjum ára­tug síðan. „Og þetta er sama klíka og hefur hreiðrað um sig inn í Icelandair og tengslin þarna á milli eru nátt­úru­lega með ólík­indum. Hug­mynda­fræðin sem þetta fólk lifir eftir er þessi grimmi­lega nýfrjáls­hyggja mennta­skóla­ræðu­klúbbs­ins. Það er ekki hug­mynda­fræði sem maður sér sem góða til þess að byggja sam­fé­lags­lega nálgun á,“ áréttar hún.

Tilbúin að skoða það að fara í allsherjar sniðgöngu á Samtökum atvinnulífsins

Samtök atvinnu­lífs­ins njóta þess­arar stöðu sem þau hafa sem mik­il­vægur aðili á vinnu­mark­aði vegna þess að verka­lýðs­hreyf­ingin hefur ákveðið að við­ur­kenna að sam­tökin hafi lög­mæti, að sögn Sól­veigar Önnu. „Í lög­gjöf­inni er aftur á móti talað mjög almennt. Þar er talað um sam­tök atvinnu­rek­enda – með litlu s-i – en þar er ekki minnst á Samtök atvinnu­lífs­ins.“

Hún segir að fram­ganga Samtaka atvinnu­lífs­ins í mál­efnum Icelandair sýni það með mjög skýrum hætti að þau líti svo á að íslensk lög­saga nái ekki yfir sam­tökin. „Og þau ráð­leggja og standa með fyr­ir­tæki sem ákveður að brjóta lög. Þau líta svo á að lög­gjöfin sé úrelt og þá ákveða strák­arnir auð­vitað að það megi breyta lög­unum upp á sitt eins­dæmi.“

Sólveig Anna segir að fyrst Samtök atvinnu­lífs­ins hagi sér með þessum hætti þá geti verka­lýðs­hreyf­ingin gert slíkt hið sama. „Ef þetta á að vera svona þá getum við bara sagst ætla að semja við ein­stök fyr­ir­tæki eða við ein­hver önnur sam­tök en Samtök atvinnu­lífs­ins. Við skulum líka átta okkur á því að það eru bara fáir atvinnu­rek­endur innan Samtaka atvinnu­lífs­ins. Ég get líka sent frá mér – og stjórn Eflingar – ein­hliða yfir­lýs­ingu um hverjir kaup­taxt­arnir eigi að vera fyrir aðgang að vinnu­afli fólks.“

Hún telur að bar­áttu­vilji íslensks verka­fólks sé mik­ill á þessum tímum og að Efling, undir hennar for­ystu, sé til­búin að skoða það að fara í alls­herjar snið­göngu á Samtökum atvinnu­lífs­ins. „Ef menn halda að þeir geti farið fram með þessum hætti og að því verði bara tekið þá er það ekki svo. Ég er mjög til­búin að fara í þá veg­ferð að sýna þeim fram á það,“ segir hún.

Ef þetta á að vera svona þá getum við bara sagst ætla að semja við ein­stök fyr­ir­tæki eða við ein­hver önnur sam­tök en Samtök atvinnu­lífs­ins.
Sólveig Anna
Sólveig Anna

Hefur engan tíma til að taka þátt í þessu leikriti

Þá bendir Sólveig Anna enn fremur á að á sama tíma og fram­kvæmda­stjóri SA segir að vinnu­mark­að­ur­inn sé ekki víg­völlur þá standi hann fyrir þessum árásum á rétt­indi vinn­andi fólks en hún telur að aðgerðir Icelandair séu skýrt brot á vinnu­lög­gjöf­inni. „Þessi maður dirf­ist að halda því fram að hann neiti að sjá atvinnu­mark­að­inn og kjara­samn­ings­við­ræður sem víg­völl. Hann er í algjöru stétta­stríði. Hann er til­bú­inn til þess að brjóta lög og koma í veg fyrir að stjórn­völd geti upp­fyllt sín lof­orð og hann er til­bú­inn til þess að stíga inn í kjara­deilu sem hann á ekk­ert með að stíga inn í eins og í kjara­deil­unni okkar við borg­ina.“

Hún seg­ist ekki hafa neinn tíma til þess að taka þátt í þessu leik­riti, þar sem fólk segir eitt­hvað og gerir síðan eitt­hvað allt annað. „Ég nenni því ekki og hef ekki tíma fyrir þetta. Og ég full­yrði að verka- og lág­launa­fólk hefur enga þol­in­mæði fyrir þessu og hefur engan tíma fyrir þetta heldur. Ég veit satt að segja ekki hvað ég get sagt meira um þessi orð, þetta er gjör­sam­lega frá­leitt.“

Í stétta­stríði gengur á ýmsu og segir Sólveig Anna að þau sem standa í bar­átt­unni séu búin að vera í stans­lausri vinnu síð­ustu tvö ár, þar sem þau hafi staðið í hverjum slagnum á fætur öðrum – og almennt hafi þeim gengið ansi vel. „Ég og vara­for­maður og stjórn Eflingar stöndum mjög þétt saman. Ég verð for­maður þessa félags næstu tvö árin og ég tel mig hafa félags­menn okkar með mér. Við munum fara út í þetta stríð með okkar ein­beitta bar­áttu­vilja og okkar ein­beittu trú á það að ekki aðeins eigi verka- og lág­launa­fólk á Íslandi rétt á stærri sneið af kök­unni heldur eigi verka- og lág­launa­fólk algjöran rétt á því að engar ákvarð­anir séu teknar hér á landi án aðkomu þess – og án þess að þeirra hags­munir séu hafðir í fyr­ir­rúmi. Við munum ekki gef­ast upp.“

Stríðið hófst í árdaga hins kapítalíska kerfis

Þessi veg­ferð verka- og lág­launa­fólks er hafin á Íslandi og það er eng­inn enda­punktur í sjón­máli – þau munu halda áfram, að hennar sögn. „Við erum í hatrömmum stétta­á­tökum og það erum ekki við sem hófum þetta stríð. Það hófst í árdaga hins kap­ít­al­íska kerfis. Vinnu­aflið hefur alltaf þurft að berj­ast fyrir öllu og það er bara staðan. Við búum í sam­fé­lagi sem vissu­lega nýtur góðs af bar­áttu þeirra sem á undan okkur komu en við búum líka í sam­fé­lagi þar sem Samtök atvinnu­lífs­ins, full­trúar auð­stétt­ar­innar, telja að það eigi að taka burt frá okkur ákveðin rétt­indi – á sama tíma og við erum að takast á við atvinnu­leysi, sam­ræmda lág­launa­stefnu, lík­am­leg og and­leg veik­indi kvenna sem hafa þrælað sér út á þessum vinnu­mark­aði, fátækt hjá börnum og umönn­un­ar­kerfi sem er van­fjár­magnað.

Þetta er ástandið sem við erum að takast á við, þetta er sá veru­leiki sem við höfum lifað og starfað inn í. Þetta er okkar heimur og við vitum að við höfum verið beitt mis­rétti, við vitum að virði okkar í þessu sam­fé­lagi er óend­an­legt og við vitum að við höfum ekki einu sinni fengið brota­brot af því sem við rétti­lega eigum heimt­ingu á. Við vitum að vinna okkar hefur knúið áfram þessa gróðama­sk­ínu sem þessi ferða­bransi hefur verið og aftur: Við höfum ekki séð nema smott­erí af þessu – og við höfum þurft að vinna okkur til húðar í algjör­lega óboð­legum aðstæðum. Við höfum þurft að þola launa­þjófnað, mis­beit­ingu og svo fram­vegis, og ef ein­hver heldur að við séum til­búin að slá af kröfum okkar til að sætta okkur við það að brauð­mylsnan sem er látin falla til okkar sé mygluð og vond þá þarf fólk aðeins að athuga hvort jarð­teng­ingin sé ekki orðin full léleg.“

„Líf einnar manneskju er meira virði en allur auður hins auðugasta samanlagður“

Eftir hrunið 2008 hafði fólk ákveðnar vænt­ingar um breytt gild­is­mat og hefur sama orð­ræða látið á sér kræla í COVID-19 far­aldr­inum. Er Sólveig Anna bjart­sýn að hægt sé að breyta ákveðnum hugs­ana­gangi í og eftir svona ástand?

„Grunn­ur­inn í allri minni hug­mynda­fræði er trúin á rétt­læt­is­kennd hverrar mann­eskju og mann­helgi,“ svarar hún og vitnar í Che Guevara, frægan bylt­ing­ar­sinna sem barð­ist fyrir rétt­indum fólks í Suður-Ameríku um miðja 20. öld­ina, en hann sagði að líf einnar mann­eskju væri meira virði en allur auður hins auð­ug­asta sam­an­lagður. Hún seg­ist trúa þessum orðum á hverjum ein­asta degi.

„Þetta hvetur mig ávallt áfram en auð­vitað er ég orðin lífs­reynd kona. Ég er 45 ára gömul og tók þátt í hinni svoköll­uðu bús­á­halda­bylt­ingu – og í miklum aktí­visma í kjöl­far hennar. Ég var ein af þeim sem trúði því að eitt­hvað raun­veru­lega myndi breyt­ast. Eða rétt­ara sagt að við gætum raun­veru­lega breytt ein­hverju því ég veit að ekk­ert breyt­ist nema það séu nógu margir sem séu sam­ein­aðir í að láta það ger­ast. Ég trúi ekki á sigur vilj­ans, ég trúi á sigur sam­stöð­unnar. En það fór eins og það fór,“ segir hún.

Erum öll fangar í þessu kerfi

Sólveig Anna seg­ist vona að alþýða ver­aldar muni ekki taka því þegj­andi og hljóða­laust ef allar hörm­ung­arnar verði aftur settar á axlir hennar.

„Ég bind miklar og raun­veru­legar vonir við það að rétt­læt­is­kennd fólks og vit­neskja hverrar mann­eskju um eigið mik­il­vægi geti haft mjög mikið að segja. En ég veit líka að ef kap­ít­alist­arnir halda áfram á sinni for­hertu og harðsvír­uðu leið og ef frjáls­lynt lýð­ræði áttar sig ekki á því að það hefur algjör­lega brugð­ist vinn­andi fólki, flótta­fólki og jað­ar­settu fólki og öllu fólki sem á ekki pen­ing og völd þá endum við aftur á þeim stað sem byggður er í þessu kerfi. Þá sitjum við áfram uppi með ein­hvers konar fas­isma, þessa járn­gjörð utan um grotn­andi tunnu kap­ít­al­ism­ans – og það er bara mjög raun­veru­legt að slíkt geti gerst.“

Hún segir að við munum aldrei losna við stétta­á­tök í þessu kerfi. „Við erum öll fangar í þessu kerfi og mann­eskjan sem ætlar að reyna að hrista sig lausa nátt­úru­lega fattar að hlekkirnir sem binda hana niðri eru ekki bara per­sónu­legir hlekkir sem hægt er að losa með því að verða svaka­lega „woke“. Hún áttar sig fljótt á því að ekki sé hægt að brjóta hina efn­is­legu hlekki með fram­taki ein­stak­lings­ins. Þú nærð aldrei að brjóta þá nema í fjölda­sam­stöðu með öðru fólki.“

Ekki flókið að leysa þessi verkefni

Varðandi fram­tíð­ar­sýn Sól­veigar Önnu þá segir hún að vilji sjá sam­fé­lag þar sem sam­skipti á milli fólks byggi raun­veru­lega á sann­girni og rétt­læti þar sem hver mann­eskja vaknar inn í dag­inn vit­andi það að hún fari út í sam­fé­lagið til þess að starfa hlið við hlið með félögum sínum á sínum vinnu­stað og sínu umhverfi til þess að ná fram ein­hverju sam­eig­in­legu mark­miði – og þar sem hver mann­eskja getur lagst til svefns á kvöldin vit­andi það að hún hafi ekki arð­rænt eða kúgað. Hún viti að hún býr í sam­fé­lagið þar sem vinn­andi fólk vill standa saman.

„Það er vissu­lega langur vegur að þessu mark­miði. En ég vil og trúi því samt að mann­eskjan sem vinnur til dæmis í umönn­un­ar­störfum verði loks­ins metin að verð­leikum. Að starfs­fólkið á hjúkr­un­ar­heim­il­unum og leik­skól­unum fái loks­ins þá umbun frá sam­fé­lag­inu sem það á skilið. Ég vil sam­fé­lag þar sem við raun­veru­lega getum stytt vinnu­vik­una og þar sem ungt fjöl­skyldu­fólk getur notið sam­vista hvert við annað og afkvæmi sín. Þar sem mann­eskja sem hefur unnið erf­ið­is­vinnu sé ekki búin á því þegar hún kemur heim eftir vinnu­dag­inn og er ekki byrjuð að missa heils­una um fimm­tugt eins og stað­reyndin er núna.“

Hún segir að þetta séu ekki flókin verk­efni að leysa. „Svo þegar fólk stillir því þannig upp – þessi eitr­aða nýfrjáls­hyggju­hugsun um enda­lok sög­unnar, að við séum bara bundin inn í þetta kerfi – þá bendi ég fólki á að horfa stutt til baka. Við þurfum ekki að horfa mörg hund­ruð ár aftur í tím­ann, við skulum bara horfa aftur á síð­ustu öld þar sem fólk sem átti ekk­ert, bók­staf­lega átti ekki neitt, náði með bar­áttu­vilja sínum og sam­stöðu að fá verka­manna­bú­staði og að fá mennta­kerfi þar sem öll börn áttu rétt á því að kom­ast í skóla og læra að lesa og reikna. Þar sem fólk átti rétt á lækn­is­þjón­ustu og þar sem vinnu­vikan fór úr því að vera bara hvað sem vinnu­veit­and­anum datt til hugar hverju sinni í það að vera lög­bundin – þar sem búið var að við­ur­kenna að það mætti ekki nota manns­lík­amann eins og ein­hverja vél þangað til hann brotnar. Þar sem barna­þræl­dómur, sem tíðk­að­ist, var upp­rættur.“

Við erum öll fangar í þessu kerfi og mann­eskjan sem ætlar að reyna að hrista sig lausa nátt­úru­lega fattar að hlekkirnir sem binda hana niðri eru ekki bara per­sónu­legir hlekkir sem hægt er að losa með því að verða svaka­lega „woke“.
Sólveig Anna á samstöðufundi með hótelstarfsmönnum árið 2019.
Sólveig Anna á sam­stöðu­fundi með hót­el­starfs­mönnum árið 2019.

Búin að sætta okkur við brenglaða sýn á samfélagið

Þessum stóru breyt­ingum náði verka­fólk fram á til­tölu­lega skömmum tíma. „Við erum með drauma sem eru ein­göngu útópískir vegna þess að við erum komin á svo klikk­aðan stað. Við erum búin að sætta okkur við svo ótrú­lega brenglaða sýn. En þessir draumar eru bara alls ekki útópískir. Hvernig getur það verið útópískt að sjá fyrir sér sam­fé­lag þar sem allt fólk er metið að verð­leikum? Þar sem fólk upp­sker það sem það þarf og leggur til eftir getu?“ spyr Sólveig Anna.

Hún segir að fólk á Íslandi hafi nú tæki­færi til að sýna hvers það er megn­ugt. „Þetta sam­fé­lag er vell­auð­ugt með inn­viði sem þrátt fyrir árásir nýfrjáls­hyggj­unnar eru þó sterkir miðað við ann­ars staðar í ver­öld­inni. Við skulum ekki gera sjálfum okkur það og þeim sem á eftir okkur koma að þetta tíma­bil verði skammar­blettur í íslenskri sögu. Að horft verði til baka og hægt verði að sjá að fólk hafi verið yfir­gefið þegar það þurfti mest á stuðn­ingi að halda. Gerum það ekki.

Ef Ísland – þetta auð­uga sam­fé­lag – getur ekki leyst þessi vanda­mál eða sam­ein­ast um að hafna þessum ómann­úð­legu leik­reglum um arð­rán kerf­is­ins, hver getur það þá?“ spyr hún jafn­framt.

Konur hafa þurft að þola ógeðslegt orðbragð

Sólveig Anna bendir að end­ingu á að ýmsir hópar í sam­fé­lag­inu hafi þurft að „þola mesta skít­inn“ und­an­farin ár. Þetta eigi við um til dæmis ljós­mæður, hjúkr­un­ar­konur, flug­freyjur og félags­menn Eflingar – og þá sér­stak­lega stóru kvenna­stétt­irnar. „Þessir hópar, þrátt fyrir að vera ólíkir, eru með konur í for­svari fyrir sig í bar­átt­unni og hafa þær þurft að þola ógeðs­legt orð­bragð og hegðun af hálfu karla. Á sama tíma hefur þessi frjáls­lyndi femín­ismi sem hér hefur verið stund­aður ekki getað eða viljað taka þátt í þess­ari bar­áttu. Hann er algjör­lega á hlið­ar­lín­unni þarna.“

Henni finnst mik­il­vægt að velta þessum þáttum fyrir sér og þeim tví­skinn­ungi sem birt­ist í meg­in­straums femín­ism­anum. Hún segir að sleggjan sé tekin upp um leið og vinn­andi konur láta í sér heyra og byrjað að berja. Þær séu kall­aðar geð­veikar og klikk­aðar en þær séu ein­ungis að berj­ast fyrir því að fá menntun sína metna að verð­leikum, að taka ekki á sig launa­skerð­ingu eða að krefj­ast þess að fá sér­staka kjara­leið­rétt­ingu vegna þess að þær hafa þurft að þjást sem lægst laun­aða fólkið á vinnu­mark­að­inum. „Svo eru þær kall­aðar óvinir Íslands og þær hæddar og smán­aðar í leið­urum stóru blað­anna – í leið­urum Frétta­blaðs­ins og Morg­un­blaðs­ins og í nafn­lausum óhróðri Við­skipta­blaðs­ins.“

Sólveig Anna bendir á að verka- og lág­launa­fólk hafi þurft að ganga í gegnum mjög margt á síð­ustu árum og að það hafi reynt mikið á. „Margir færðu per­sónu­legar fórnir, bæði for­ystan og fólkið sem var í verk­föll­unum. Það er ekki auð­velt að vera í 6 vikna verk­falli eins og við gerðum hjá borg­inni, og lesa um það í blöð­unum að þú sért fífl og hálf­viti – og geð­biluð tussa. En fólkið gefst ekki upp, það heldur áfram. Það nær ákveðnum áfanga­sigrum og það er ekk­ert betra en að hafa farið í gegnum stóran slag, þar sem mikið var lagt undir, og að geta gengið frá samn­inga­borð­inu í góðri og mik­illi sam­stöðu með félög­unum. Þetta er allt eitt­hvað sem við búum að. Við hljótum að horfa á bar­átt­una okkar síð­asta vetur og sjá að þetta gátum við með ein­beittri sam­stöðu.

Þannig að Halldór Benjamín getur haldið áfram að mæta og skipa fyrir en það eru bara allir hættir að hlusta,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár