„Keyrt á sama fólkinu sem fær aldrei frídag“

Í nýrri skýrslu Rann­sókna­mið­stöðvar ferða­mála um aðstæður erlends starfs­fólks í ferða­þjón­ustu kemur margt var­huga­vert fram, m.a. að fólk þurfi að vinna margar vikur í röð og að viku­legur frí­dagur hafi ekki verið virtur.

Algeng­ustu brot í ferða­þjón­ustu eru að fólk sé að fá van­greidd laun miðað við ákvæði kjara­samn­inga um skipu­lag vakta og álags­greiðslna í vakta­vinnu eða skipt­ingu launa í dag­vinnu og eft­ir­vinnu. Þetta kemur fram í skýrslu Rann­sókna­mið­stöðvar ferða­mála.

Höfundar skýrsl­unnar tóku við­töl við starfs­fólk stétt­ar­fé­laga utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og einnig við erlent starfs­fólk í ferða­þjón­ustu víða um landið.

Talað var um jafn­að­ar­laun og tví­skiptar vaktir sem sér­stakt vanda­mál í ferða­þjón­ustu, sem fæli í sér brot á kjara­samn­ingum.

Þá segir í skýrsl­unni að starfs­fólk sé látið vinna á tví­skiptum vöktum á álags­tímum að morgni eða í hádegi, fara síðan í nokkra tíma pásu án launa og mæta aftur til vinnu í kringum kvöld­mat, þar sem það henti starf­sem­inni. Í einu við­tali var sagt að sumir atvinnu­rek­endur segðu að erlent starfs­fólk vildi nýta þennan tíma um miðjan dag í að skoða landið:

„Helstu mál snúa oft að vaktavinnu, þessar tvískiptu vaktir sem að við samþykkjum ekki. Þá er kannski verið að setja fólk á vakt tíu til tvö og aftur frá sex til tíu. Eru að skipuleggja þetta svona og láta fólkið stimpla sig út. Borga ekki á milli. Skýringar atvinnurekenda eru oft: „Fólkið vill þetta. Langar svo mikið að skoða sig um.“ Er bara svo kjánalegt. Svo er fólk ekki einu sinni með bíl.“

„Sulla saman dagvinnu og vaktavinnu“

[links]Fyrir utan tví­skiptar vaktir voru til­tekin önnur dæmi í skýrsl­unni um ann­marka á skipu­lagi vakta, auk þess sem að útreikn­ingur á vakta­á­lagi virt­ist vefj­ast fyrir mörgum, þ.e. 33 pró­sent álag á kvöldin, 45 pró­sent álag um nætur og helgar og 90 pró­sent stór­há­tíða­á­lag. Einnig væru sumir atvinnu­rek­endur að „sulla saman dag­vinnu og vakta­vinnu“, til dæmis með því að greiða dag­vinnu á milli klukkan sjö og átta á morgn­ana hjá vakta­vinnu­fólki sem ætti að vera með 45 pró­sent álag á þeim tíma.

Starfs­fólk ætti einnig rétt á að fá vak­taplan með ákveðnum fyr­ir­vara þar sem fram kæmi bæði upp­haf og endir vakta, sem greitt væri fyrir. Það skipu­lag þyrfti líka að virða reglur um hvíld­ar­tíma og yfir­vinnu­greiðslur.

Greiðsla jafn­að­ar­launa, í stað þess að skilja á milli launa fyrir dag­vinnu og yfir­vinnu eins og kjara­samn­ingar kveða á um, kom oft upp sem vanda­mál í við­töl­unum, að því er fram kemur í skýrsl­unni. Var það bæði tengt við til­raunir atvinnu­rek­enda til að ein­falda launa­út­reikn­inga og sem leið til að halda niðri launa­kostn­aði:

„Þumalputtareglan er sú að ef að fyrirtækið býður upp á jafnaðarlaun þá er það vegna þess að þeir eru að halda niðri launakostnaði […].Það er þægilegra að reikna það út.“

Þegar greitt sé jafn­að­ar­kaup búi atvinnu­rek­and­inn til sinn eigin taxta sem sé hærri en dag­vinnu­laun, en langt undir yfir­vinnu­taxta. Greitt sé eftir þessum heima­til­búna taxta, óháð heild­ar­vinnu­tíma yfir mán­uð­inn og hvenær sól­ar­hrings­ins vinnan er unnin. Þegar starfs­fólk er farið að vinna eitt­hvað að ráði yfir 173 tíma á mán­uði sé það yfir­leitt að fá und­ir­borgað „svo vinna menn ekki undir 173 tíma heldur 250-60 tíma á mán­uði alltaf á sama kaup­inu þá eru þeir komnir í mínus“.

Sami við­mæl­andi taldi meiri til­hneig­ingu til að ráða erlent starfs­fólk sem stopp­aði stutt við á háanna­tíma í ferða­þjón­ustu á jafn­að­ar­kaup, á meðan aðrir nefndu að íslensk ung­menni væru oft fljót að sam­þykkja jafn­að­ar­kaup. Í báðum til­vikum væri starfs­fólkið ekki að kynna sér kjara­samn­inga vel áður en tekið væri til­boði um jafn­að­ar­kaup.

Lenska að vera alltaf undirmönnuð

Í skýrsl­unni kemur enn fremur fram að í ofan­greindum dæmum sé vísað til óhóf­legs vinnu­tíma og séu brot á reglum um 11 tíma hvíld­ar­tíma og frí­daga meðal mála sem oft teng­ist ferða­þjón­ust­unni í frá­sögnum við­mæl­end­unum. Brot á rétti fólks til að fá styttri eða lengri frí hafi meðal ann­ars verið rakið til und­ir­mönn­unar:

„Ég held að það sé ein lenska og ekki síst í ferðaþjónustunni og það er að vera alltaf undirmönnuð. Að spara þar. En það segir bara að þeir sem eftir eru að þeir þurfi að hlaupa hraðar og vinna lengur.“

Það væri keyrt á sama fólk­inu sem aldrei fengi frí­dag:

„Við erum búin að fá mörg dæmi um að fólk þurfi að vinna margar vikur í röð og það er ekki verið að virða þennan vikulega frídag eða sameina tvo hálfsmánaðarlega, sem er í kjarasamningi.“

Neitað um sumarfrí

Eitt dæmið var um par sem bjó á gisti­heim­ili og þurfti að vera til taks allan sól­ar­hring­inn að þjón­usta gesti. Þau fengu aldrei frí­dag, en skruppu frá í nokkra daga eftir fjóra mán­uði og þá var það dregið af kaup­inu þeirra. Í við­tali við eft­ir­lits­full­trúa sem fór um víð­feðmt svæði, Vest­firð­ina og suður í Hval­fjörð, var talað um að algengt væri að staðan væri þannig í smærri og afskekkt­ari gisti­húsum að fólk væri á föstum mán­að­ar­launum með óskil­greindan vinnu­tíma og kæm­ist aldrei í frí „og sumir segja bara að þeir séu að vinna ein­hverja 16, 17 tíma á sól­ar­hring og fá aldrei frí. Komast ekki burt af því þeir eru út í rass­gati og hafa ekki aðgang að bíl og svo fá þeir bara ein­hver föst mán­að­ar­laun.“

Annað dæmi var nefnt um und­ir­mann­aða bíla­leigu þar sem eig­in­maður konu af erlendum upp­runa bað um aðstoð verka­lýðs­fé­lags­ins þegar að henni var neitað um sum­ar­frí:

„Hún er ekki að fá vikulegan frídag. Hún er bara látin vinna sjö daga vikunnar, alltaf. Hún var að biðja um sumarfrí, þá fékk hún það ekki.“

Vandamál tengd fríum

Yfir lág­anna­tíma í ferða­þjón­ustu á sumum svæðum var talað um ann­ars konar vanda­mál tengt fríum heils­árs­starfs­fólks. Þá væri starfs­fólki sagt að það ætti að taka launa­laust leyfi í des­em­ber og fram í jan­úar á meðan stað­ur­inn er lok­aður. Þar sem þeim er ekki sagt upp ættu þau ekki rétt á atvinnu­leys­is­bótum í gegnum Vinnu­mála­stofnun. Þau misstu einnig áunnin rétt­indi um greiðslu fyrir marga rauða daga á þessum tíma:

„Þetta er mjög algengt, bara sagt við erlenda starfsmenn „Nú verðið þið að taka ykkur frí, það er ekkert að gera í desember fram að 20. janúar … Þá tekur fyrirtækið af þeim rauðu dagana í leiðinni, sem eru náttúrlega áunnin réttindi eftir mánaðarstarf. Þá er verið að hlunnfara fólkið um þessa rauðu daga. Oft eru jólin þannig að það eru frídagar í einhverja 5-6 daga.“

Í skýrsl­unni segir að í núgild­andi ferða­þjón­ustu­samn­ing hafi komið bókun sem leið­rétti þetta. Þar sé kveðið á um að starfs­fólk sem hefur áunnið sér þau rétt­indi eigi að fá greitt dag­vinnu­kaup fyrir rauða daga um jól og ára­mót, þó að það sé ekki í vinnu á þessum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár