Mynd: Bára Huld Beck

Mótun samfélagsins þarf að vera á forsendum fólksins sjálfs – en ekki fjármagnsins

Kjarninn hitti full­trúa bæði atvinnu­lífs og launa­fólks og fékk sýn þeirra á stöðu mála. Næstur í röð­inni er Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands.

Fólkið í land­inu þarf að hafa meira um það að segja hvernig sam­fé­lagið á að mót­ast áfram. Það á að vera á for­sendum þess hvernig við rekum þetta sam­fé­lag – en ekki fjár­magns­ins. Við þurfum að taka höndum saman í því að vinna áfram á þeim for­sendum.“

Þetta segir Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands og 1. vara­for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), varð­andi það hvernig hann sér fyrir sér að Íslend­ingar kom­ist út úr þeim efna­hags­legu erf­ið­leikum sem þeir standa frammi fyrir núna í kjöl­far heilsu­vár­innar.

Aðgerðir stjórn­valda hafa komið í nokkrum aðgerða­pökkum og segir Kristján Þórður að honum hafi lit­ist vel á margt sem rík­is­stjórnin hafi gert til að stemma stigu við ástand­inu. „Sér­stak­lega í tengslum við kjara­samn­inga sem voru gerðir fyrir ári síðan. Það er margt í þessu sem skiptir okkar fólk miklu máli – en auð­vitað er það líka alltaf þannig að maður er ekki sáttur við allt sem er gert. En svona heilt yfir þá eru þarna atriði sem skipta veru­legu máli.“

Hann tekur nokkur dæmi um það sem hann telur hafa verið vel gert en meðal þess er breyt­ing á tekju­skatts­kerf­inu. „Það var mjög mik­il­vægt skref fyrir okkar fólk, sem og leng­ing á fæð­ing­ar­or­lofi.“ Hann nefnir sér­stak­lega verk­efnið „Allir vinna“ en hann segir að það hafi reynst félags­mönnum hans gríð­ar­lega vel. Verk­efnið gengur út á það að hækka end­ur­greiðslu­hlut­fallið á virð­is­auka­skatti á vinnu við við­halds­verk­efni íbúð­ar­hús­næðis og í bif­reiða­geir­anum en það var fram­lengt út næsta ár.

„Þetta verk­efni skiptir gríð­ar­lega miklu máli fyrir okkar félags­menn. Þetta hefur ýtt undir fleiri verk­efni í okkar greinum. Við höfum séð að fólk hefur verið mjög dug­legt í nýta sér þetta og sinnt til dæmis við­haldi á bílum. Fólk hefur einnig verið mjög dug­legt að fara í fram­kvæmdir heima fyrir og fara í við­halds­fram­kvæmdir á eigin hús­næði. Þetta klár­lega ýtir undir það að verk­efna­staðan sé nokkuð góð í dag,“ segir hann.

Mikilvægt að fólk geti tekið þátt í samfélaginu – þrátt fyrir tekjumissi

Eins og áður segir telur Kristján Þórður að heilt yfir hafi aðgerðir stjórn­valda reynst ágæt­lega. Þó áréttar hann að nauð­syn­legt sé að taka á þáttum sem snúa að fólk­inu sjálfu. Þar tekur hann sem dæmi atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð og atvinnu­leys­is­bætur.

„Við höfum kallað eftir því að þarna verði gripið inn í: Að bætur verði hækk­aðar, sem og tekju­tengdar atvinnu­leys­is­bætur. Við teljum að það sé rétta leiðin til að takast á við svona ástand, eins og það sem við erum að upp­lifa núna, til þess að koma í veg fyrir enn meiri sam­drátt í hag­kerf­inu. Þá skiptir það sköpum að þrátt fyrir atvinnu­missi þá geti fólk samt sem áður tekið þátt í sam­fé­lag­inu með nokkurn veg­inn eðli­legum hætti.

Því við vitum alveg að þegar þú missir atvinn­una þá í fyrsta lagi lækkar þú alltaf í tekjum niður í 70 pró­sent af því sem þú hafðir. Í öðru lagi er þakið á tekju­tengdu atvinnu­leys­is­bót­unum það lágt að fólk, eins og innan okkar raða, er að með­al­tali að falla um 40 til 50 pró­sent í tekjum. Það er auð­vitað aug­ljóst að ef þú verður fyrir slíku tekju­tapi þá muntu þurfa að draga saman í öllu sem þú gerir.“

Gríðarlegar fjárhæðir farið til fyrirtækjanna

Það sem veldur Krist­jáni Þórði aftur á móti áhyggjum varð­andi fram­tíð­ina er hvernig ríkið hefur for­gangs­raðað þeim fjár­munum sem það hefur veitt út í rekstur fyr­ir­tækja. „Þetta eru gríð­ar­legar fjár­hæðir sem hafa farið út í fyr­ir­tækin í formi stuðn­ings­greiðslna ein­hvers konar og hvernig þessu hefur verið útdeilt veit maður nátt­úru­lega ekki nákvæm­lega en það sem hefði þurft að vera mjög skýrt er með hvaða hætti þessum fjár­munum er dreift.“

Hann segir að Íslend­ingar verði að horfast í augu við það að þeir fjár­munir sem ríkið útdeilir muni hjálpa til við að tryggja störf áfram. „Það er auð­vitað lyk­il­þáttur í þessu að fjölga störfum við þessar aðstæður. Þess vegna hef ég skiln­ing á því að þessar aðgerðir séu mjög góðar en við munum síðan þurfa að sækja fjár­muni til þess að end­ur­greiða rík­inu. Þá horfi ég til þess að hvernig fyr­ir­tæki muni geta staðið að því. Og auð­vitað munu meiri umsvif hjálpa til.“

Stjórn­völd tóku þá ákvörðun núna í sept­em­ber að lækka trygg­inga­gjaldið um 0,25 pró­sent. Kristján Þórður bendir á að gjaldið sé notað til þess að greiða ann­ars vegar fæð­ing­ar­or­lof og hins vegar atvinnu­leys­is­bætur. „Þetta er tíma­bundin ráð­stöfun en í kjöl­far þess verðum við að gera okkur grein fyrir því að það þarf að auka fjár­muni inn í kerfið. Við getum ekki dreg­ist saman á þessum tveimur liðum alla­vega. Þannig er ljóst að fyr­ir­tækin munu þurfa að koma til baka með þessa fjár­muni,“ segir hann.

Við höfum kallað eftir því að þarna verði gripið inn í: Að bætur verði hækk­aðar, sem og tekju­tengdar atvinnu­leys­is­bætur.
Kristján Þórður segir að
Kristján Þórður segir að

Ekki svo svartsýnn þrátt fyrir erfiðan vetur framundan

Kristján Þórður seg­ist ekki vera svo svart­sýnn varð­andi ástandið þrátt fyrir að vissu­lega verði vet­ur­inn framundan erf­iður. Hann seg­ist jafn­framt vera hræddur um að verið sé að mála mun dekkri mynd af stöð­unni en þörf sé á. „Við sáum það að þegar full­trúar atvinnu­rek­enda reyndu að mála upp eins dökka mynd og mögu­legt væri. Allt slíkt tal hefur síðan gríð­ar­lega slæm áhrif í umhverfi sínu.“

Þrátt fyrir ákveðna bjart­sýni hjá Krist­jáni Þórði þá er hann með­vit­aður um áhrif far­ald­urs­ins, sér­stak­lega á ákveðnar greinar. „Við munum sjá það að í ferða­þjón­ust­unni verður sam­drátt­ur­inn gríð­ar­legur. Miðað við það hvernig veiran er að þró­ast núna þá eru ekki miklar líkur á því að þetta ástand gangi hratt niður. Það sem mun skipta miklu máli er hvenær okkur tekst að fá bólu­efni við veirunni og þegar það ger­ist mun staðan breyt­ast veru­lega.“

Hann bendir enn fremur á að margir félags­menn þeirra í Raf­iðn­að­ar­sam­band­inu starfi í við­burða­geir­anum, þ.e. í sviðs­listum. „Þar er staðan alveg skelfi­leg – það er sára­lítið í gangi þar. Sumir hópar eru í mjög vondri stöðu en aðrir enn í mjög góðri.“

Hann segir þó að ef Íslend­ingum tekst að draga úr þess­ari bylgju núna þá ætti vet­ur­inn að geta orðið þol­an­legur. „Ég veit að það er ekki sjálf­gefið að þetta verði þægi­legur eða auð­veldur vetur en með því að grípa til þeirra aðgerða sem við höfum verið að tala um – eins og þetta með atvinnu­leys­is­bætur og að ríkið styðji vel við fólkið – þá ætti okkur að geta tek­ist að kom­ast sæmi­lega í gegnum þetta.“

Þarf að bæta sameiginlega sýn til framtíðar

Verka­lýðs­for­ystan hefur gengið í gegnum miklar breyt­ingar á und­an­förnum miss­erum og árum. Kristján Þórður segir að hóp­arnir innan hreyf­ing­ar­innar séu ólíkir og hags­mun­irnir enn fremur. Hann segir að stundum hefði sam­staðan mátt vera meiri milli fylk­inga í þeirri bar­áttu sem hreyf­ingin hefur beitt sér fyrir. Sam­staðan hafi þó verið þétt að und­an­förnu en betur má ef duga skal. Þannig þurfi að bæta sam­eig­in­lega sýn inn í fram­tíð­ina.

„Við þurfum að fara svo­lítið inn á við og ræða þessa hluti. Heilt yfir finnst mér sam­staðan und­an­farið hafa verið mikil innan hreyf­ing­ar­innar en auð­vitað þurfum við að sætta mis­mun­andi sjón­ar­mið í því sem við erum að gera. Máttur hreyf­ing­ar­innar er samt gríð­ar­lega mik­ill þegar við stöndum saman.“

Samtök atvinnulífsins hafa stigið út fyrir öll velsæmismörk

Forysta verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hefur ekki verið ófeimin við að gagn­rýna Samtök atvinnu­lífs­ins á und­an­förnum miss­erum og hafa þessar fylk­ingar tek­ist harka­lega á að und­an­förnu. Þegar Kristján Þórður er spurður út í kjara­bar­áttu á Íslandi þá segir hann að hún sé að herð­ast gríð­ar­lega.

„Ef við horfum nokkur ár aftur í tím­ann – segjum ára­tug – þá var vissu­lega tek­ist á um mál­efni og var það ekki þannig að það hefði verið auð­velt að gera kjara­samn­inga eða semja um bætt kjör. En hins vegar var ákveð­inn skiln­ingur á því innan Samtaka atvinnu­lífs­ins að það þyrfti að eiga góð sam­skipti og eiga sam­talið um þau mál­efni sem skipta máli. Það var ákveð­inn skiln­ingur á því hvernig hlut­irnir þyrftu að ganga fyrir sig en það er í raun gjör­breytt í dag.

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa stigið út fyrir öll vel­sæm­is­mörk í sam­skiptum og það er auð­vitað að hluta til að koma fram í þeirri stöðu sem hefur verið uppi núna að und­an­förnu þar sem þeir segja að ekk­ert sam­tal hafi orðið um þessi við­brögð við kjara­samn­ingum. Það er hins vegar ekki rétt hjá þeim. Það er þannig að ef þú vilt fara í sam­talið þá verður þú að gera það á heild­stæðum nótum. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa kallað eftir sam­tali á þeirra for­sendum og ef þú ferð inn í sam­tal ein­göngu á for­sendum ann­ars aðil­ans þá skilar það aldrei neinni jákvæðri nið­ur­stöðu fyrir heild­ina,“ segir hann.

Ávísun á slæm samskipti

Kristján Þórður tekur undir orð margra innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að harkan sé að aukast til muna. „Þegar við sjáum dæmi um að fyr­ir­tæki brjóta á starfs­fólki þá virð­ast þau oft og tíðum ganga eins langt og mögu­legt er til þess að athuga hversu langt þau kom­ast. Ég hef stað­fest­ingu fyrir því hjá nokkrum fyr­ir­tækjum að Samtök atvinnu­lífs­ins hafi ráð­lagt fyr­ir­tækjum að ganga lengra en kjara­samn­ingar leyfa. „Sjáðu hversu langt þú kemst,“ er sagt.

Bara það að full­trúi fyr­ir­tækj­anna sé að ráð­leggja þeim að ganga í raun gegn kjara­samn­ingum, sem þeir hafa sjálfir skrifað undir, er auð­vitað ávísun á slæm sam­skipti. Það er þessi þáttur sem veldur því að í dag er ekk­ert traust á milli sam­tak­anna eða sára­lítið – og sam­skiptin verða því erfið við þessar aðstæður,“ segir hann.

Þá seg­ist Kristján Þórður hafa miklar áhyggjur af því að fram­koma Samtaka atvinnu­lífs­ins valdi því að það verði meiri harka í sam­skiptum og erf­ið­ara að ná sam­komu­lagi um atriði sem skipta máli. „Ef þú getur ekki treyst því að samn­ingur sem þú gerir standi þá auð­vitað gerir þú ekki samn­ing.“

Bara það að full­trúi fyr­ir­tækj­anna sé að ráð­leggja þeim að ganga í raun gegn kjara­samn­ingum, sem þeir hafa sjálfir skrifað undir, er auð­vitað ávísun á slæm sam­skipti.
Kristján Þórður
Kristján Þórður

Ef fyrirtæki brýtur gegn starfsmann þá á viðkomandi að fá það bætt

Eitt atriði sem verka­lýðs­for­ystan hefur lagt mikla áherslu á en ekki fengið í gegn við gerð lífs­kjara­samn­ing­anna er að fá breyt­ingu á starfs­kjara­lögum. Það er að félags­menn geti sótt févíti þegar brjótið er á þeim. „Það var til þess að gera ákveð­inn fæl­ing­ar­mátt; ef fyr­ir­tæki brýtur gegn starfs­manni þá á við­kom­andi ein­stak­lingur að fá það bætt. Og ekki bara með því að fá greitt sam­kvæmt lág­marks­kjörum heldur að fá við­ur­kenn­ingu á því að brotið hafi verið á honum.“

Þá bendir hann á að ef fyr­ir­tæki brýtur á fólki og málið fer fyrir dóm­stóla þá endi það með því að fyr­ir­tækið verði ein­ungis dæmt til að greiða það sem það átti að greiða. „Það er auð­vitað alveg fárán­leg aðferða­fræði að geta farið þann veg og hvetur það til dóms­mála frekar en hitt. Samtök atvinnu­lífs­ins hafa haldið þessu máli í gísl­ingu und­an­farið ár og það er auð­vitað mjög miður að þau vilji ekki breyta kerf­inu þannig að það kom­ist á ein­hver skyn­sam­leg sam­skipti á vinnu­mark­aði.“

Þegar Kristján Þórður er spurður út hver lausnin sé á þessum vanda þá segir hann að ein leiðin sé sú að stjórn­völd stigi inn og breyti lögum – og setji á févíti. „Ég myndi telja að með því væri hægt að koma í veg fyrir fjölda dóms­mála sem verið er að fara í í dag. Það myndi í raun og veru bæta öll vinnu­brögð á vinnu­mark­aði.“ Hann bætir því við að auð­vitað geti átt sér stað mis­tök við útreikn­inga og þá yrði það leið­rétt – en þegar verið sé að brjóta vís­vit­andi á fólki með klækjum þá verði að greiða fyrir það.

Nauðsynlegt að setja meiri pressu á samningsaðila

Kristján Þórður telur að rót­tækar kerf­is­breyt­ingar þurfi að eiga sér stað á mörgum sviðum í sam­fé­lag­inu. Til að mynda þurfi að gera breyt­ingar á vinnu­lög­gjöf­inni.

„Bara ef við horfum á gerð kjara­samn­inga til dæmis. Þetta ferli er gríð­ar­lega langt og svifa­seint. Ég myndi vilja sjá breyt­ingar á kerf­inu þannig að það yrði meiri agi í vinnu­brögðum, þannig að samn­inga­við­ræður tækju skemmri tíma. Að mínu mati er eina leiðin til að gera það að búa til meiri pressu á samn­ings­að­ila til að setj­ast að samn­inga­borð­inu og klára samn­inga. Leiðin sem ég sé fyrir mér í því er að skerpa á heim­ildum verka­lýðs­fé­lag­anna til að beita ein­hverjum aðgerðum til að auka þrýst­ing á atvinnu­rek­endur og þá horfi ég fyrst og fremst til þess hvernig verið er að vinna málin á Norð­ur­lönd­unum. Þar er það þannig að þegar samn­ingar renna úr gildi þá stýra því stjórnir og trún­að­ar­ráð verka­lýðs­fé­lag­anna hvenær verk­falls­að­gerðir myndu hefj­ast ef ekki nást samn­ingar,“ segir hann.

Hér á landi þurfi að fara í slíkt ferli; að það væri inn­byggð seinkun í við­ræð­urnar. „Þannig að það að auka við heim­ildir til að grípa til aðgerða og reyna að koma meira skikki á mark­að­inn er gríð­ar­lega mik­il­vægt. Ég veit hins vegar að atvinnu­rek­endur eru alls ekki sam­mála því, þeir eru sátt­ari við þetta fyr­ir­komu­lag sem er núna í dag.“

Hann segir að atvinnu­rek­endur hafi beinan hag af því að svara ekki eða vilja ekki funda. Kerfið sé þannig upp byggt að það er lang­dregið og svifa­seint og býr til óþarfa stöðu sem ætti ekki að þurfa. „En það er aug­ljóst að það þarf að koma meiri aga á þessi vinnu­brögð,“ segir hann.

Fólkið á að vera miðpunkturinn

Varðandi fram­tíð­ar­sýn Krist­jáns Þórðar og hvernig sam­fé­lag hann sér fyrir sér eftir COVID-far­aldur þá segir hann að vænta megi mik­illa breyt­inga. „Við erum auð­vitað í þessum aðstæðum að fara inn á við og meta auð­lindir sem við eigum sem sam­fé­lag. Ég myndi vilja sjá í kjöl­far þessa ástands að fólkið verði mið­punkt­ur­inn í því hvernig við sjáum fyrir okkur fram­tíð­ina – ekki fjár­magns­eig­endur eða slíkir aðilar. Ég myndi vilja sjá að sam­fé­lags­kök­unni, svo ég noti mynd­mál Samtaka atvinnu­lífs­ins, verði skipt með jafn­ari hætti svo fólkið njóti meiri ávinn­ings af þeim auð­lindum sem við njótum í sam­fé­lag­inu.“

Honum finnst mik­il­vægt að Íslend­ingar haldi í þann ávinn­ing sem þeir hafi náð hvað varðar fast­eigna­mark­að­inn. „Við höfum náð alveg gríð­ar­legum árangri í að lækka vaxta­stig hér á landi und­an­farið ár og ég veit að mínir félags­menn horfa mjög mikið í það að við­halda því vegna þess að þetta hefur gríð­ar­leg áhrif á útgjöld heim­il­anna.“ Jafn­framt sé sam­fé­lagið út í miðri á varð­andi mörg verk­efni til þess að bæta fast­eigna­mark­að­inn.

„ASÍ og BSRB gripu til þess ráðs fyrir nokkrum árum að stofna Bjarg íbúða­fé­lag og gengur mjög vel að byggja íbúðir og fjölga þeim. Þetta er auð­vitað kostur fyrir fólk sem er tekju­lágt og á leigu­mark­aði,“ segir hann.

Kristján Þórður nefndir jafn­framt hlut­deild­ar­lánin þar sem ríkið fer með fólki í fjár­mögnum fast­eigna­kaupa og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á fast­eigna­mark­aðnum. „Þessi verk­efni hafa haft mjög jákvæð áhrif á leigu­mark­að­inn í heild sinni en hann hefur verið gríð­ar­lega erf­iður fyrir fólk og óvand­aður á und­an­förnum ára­tugum. Ég held að við séum að ná að koma honum í betri far­veg.“

„Við erum líka fljót að detta í sama far“

Stundum er talað um að gild­is­mat breyt­ist við ástand sem þetta. Kristján Þórður nefnir í þessu sam­hengi við­brögð sam­fé­lags­ins eftir hrunið 2008. Hann segir að margir hafi haft ákveðnar vænt­ingar um að margt myndi breyt­ast í kjöl­farið.

„Það er auð­vitað þannig að margt hefur breyst frá þeim tíma, sem betur fer. En auð­vitað hefði maður viljað sjá meiri breyt­ingar á ýmsum sviðum. Ég held að eftir þetta ástand núna sé fólk mikið að fara inn á við í líf­inu. Við nýtum okkur til dæmis tækni­lausnir í rík­ari mæli og ég held að við munum halda því áfram að ein­hverju marki.

Við erum líka þannig að við erum fljót að detta í gam­alt far. Þannig að já, við munum halda í eitt­hvað af því sem við erum að gera í dag en að ein­hverju leyti taka upp gamla siði,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár