Skattrannsóknarstjóri fékk gögn um Samherja fyrir Kveiksþáttinn

Yfirvöld í Namibíu höfðu sent skatt­rann­sókn­ar­stjóra gögn um Samherja áður en við­skipta­hættir fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu voru opin­beraðir í fjöl­miðlum. Embættið fund­aði með hátt­settum aðilum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu 18. nóv­em­ber 2019.

Samherji er grunaður um að hafa greitt mútur fyrir aðgang að ódýrari kvóta í Namibíu.
Samherji er grun­aður um að hafa greitt mútur fyrir aðgang að ódýr­ari kvóta í Namibíu. Mynd: Bára Huld Beck

Í minn­is­blaði frá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem sent var til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins 18. nóv­em­ber 2019 segir að til­efni fundar Bryn­dísar Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra og sér­fræð­ings frá emb­ætt­inu með tveimur full­trúum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, Guðmundi Árnasyni ráðu­neyt­is­stjóra og Helgu Jóns­dóttur, skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu skatta­mála, sama dag hafi verið „fjöl­miðlaum­fjöllun fyrr í mán­uð­inum um meint refsi­verð brot í starf­semi Samherja hf. á erlendri grundu og hugs­an­lega hér­lendis.“

Þar segir enn fremur að Samherji sé eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Evrópu, með starf­semi í allt að tíu löndum. „Skatt­rann­sókn­ar­stjóri rík­is­ins hefur haft gögn vegna sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja hf. til skoð­unar í nokkrar vikur.“

Það þýðir að emb­ættið hafði fengið gögn tengd Samherja, og hafið skoðun sína á þeim, áður en þáttur Kveiks um málið var sýndur þriðju­dags­kvöldið 12. nóv­em­ber 2019.

[links]Í minn­is­blað­inu segir að um sé að ræða gögn sem bár­ust emb­ætt­inu frá namibískum yfir­völdum. „Við þá yfir­ferð sem og við skoð­unar fjöl­miðlaum­fjöll­unar um mál­efni félags­ins und­an­farna daga hafa komið fram ýmis atriði sem þarfn­ast ítar­legrar skoð­unar af hálfu emb­ætt­is­ins. Á næstu dögum á emb­ættið von á frek­ari gögnum vegna máls­ins.“

Í minn­is­blað­inu, sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið neit­aði upp­haf­lega að afhenda frétta­manni hjá RÚV, var einnig að finna nán­ari upp­lýs­ingar um þennan anga, en úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál taldi að ráðu­neyt­inu hefði verið heim­ilt að fella þá efn­is­grein út úr minn­is­blað­inu áður en það yrði afhent. Hún komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu með úrskurði 14. febr­úar síð­ast­lið­inn að flest annað í minn­is­blað­inu ætti fullt erindi við almenn­ing og lagði fyrir ráðu­neytið að veita aðgang að þeim hlutum þess.

Hluti af minnisblaðinu fellt út

Sam­herj­a­málið hófst form­lega í nóv­em­ber í fyrra þegar Kveik­­­ur, Stund­in, Wiki­leaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mút­­u­greiðsl­­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­­göngu. 

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir í minn­is­blað­inu að í ljósi „mik­il­vægi máls­ins og umfangs þess“ telji það rétt að fara þess á leit við ráðu­neytið að emb­ætt­inu yrði „gert kleift að auka mann­afla emb­ætt­is­ins tíma­bundið til að geta sinnt þessu afmark­aða verk­efni á sem skjótastan og far­sælastan hátt.“

Þar nefnir skatt­rann­sókn­ar­stjóri þrjár leiðir sem væru færar í því efni. Þær leiðir voru felldar út úr minn­is­blað­inu áður en það var afhent, sam­kvæmt ákvörðun úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál.

[adspot]Í minn­is­blað­inu kemur fram að starfs­menn Skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafi fundað með fyr­ir­svars­mönnum Samherja að beiðni hins síð­ar­nefnda fyrr þennan dag. „Lýstu fyr­ir­svars­menn félags­ins þar yfir vilja til fulls sam­starfs við emb­ættið og aðgengi að öllum gögnum félags­ins, inn­lendum og erlendum, bók­halds­gögnum sem fjár­hags­gögnum.“

Þetta er ekki eina minn­is­blaðið sem sent var á þessum tíma. Sama dag, 18. nóv­em­ber, sendi emb­ætti rík­is­skatt­stjóra minn­is­blað til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins vegna vanga­veltna um mögu­legt sam­starf milli emb­ætt­is­ins og Skatt­rann­sókna­stjóra vegna Sam­herj­a­máls­ins. Þar eru ýmis sjón­ar­mið reifuð um heppi­leika og mögu­lega fram­kvæmd slíks sam­starfs. 

Fengu á endanum 200 milljónir

Í minn­is­­blaði sem Ólafur Þór Hauks­­son hér­­aðs­sak­­sókn­­ari sendi til dóms­­mála­ráðu­­neyt­is­ins í sömu viku kom fram að um hund­rað mál biðu rann­­sóknar hjá emb­ætt­inu og að þáver­andi starfs­­manna­­fjöldi dygði ekki til að sinna öllum þeim rann­­sókn­­ar­verk­efnum sem það þarf að takast á við að óbreyttu, hvað þá við­­bót­­ar­­málum af stærra umfangi. Meiri fjár­­muni þyrfti til.

Ólafur Þór lagði til að starfs­­mönnum á rann­­sókn­­ar­sviði emb­ættis hans yrði fjölgað um sex í byrjun árs 2020. Hann lagði auk þess til að starfs­­mönnum yrði mög­u­­lega fjölgað um tvo til við­­bótar síðar á árinu ef verk­efna­­staða emb­ætt­is­ins gefur til­­efni til. Með­­al­­kostn­aður fyrir hvert starf sem við bæt­ist væri áætl­­aður 15 millj­­ónir króna og því myndi fyrsta aukn­ingin kosta um 90 millj­­ónir króna.

Í jan­úar var greint frá því að þær stofn­anir sem tengj­ast eft­ir­liti og vörnum gegn pen­inga­þvætti, skatt­rann­sóknum og skatt­eft­ir­liti myndu fá 200 millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag úr rík­is­sjóði á þessu ári.

Þetta var gert í sam­ræmi við yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um að grípa til alls sjö aðgerða til að auka traust á íslensku atvinnu­lífi, en aðgerð­ar­á­ætl­unin var sam­þykkt á rík­is­stjórn­ar­fundi 19. nóv­em­ber, nokkrum dögum eftir að opin­berun Kveiks, Stund­ar­inn­ar, Wikileaks og Al Jazeera á meintum mútu­greiðsl­um, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herja í Namibíu og víðar var birt, og einum degi eftir að minn­is­blað skatt­rann­sókn­ar­stjóra var sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár