Vika án smita í Færeyjum

Dýra­læknir í Færeyjum var­aði stjórn­völd við því í jan­úar að kór­ónu­veiran gæti orðið að heims­far­aldri. Þar var því gripið til skipu­legra aðgerða fljótt.

Íbúar Færeyja eru 52.337. Sýni hafa verið tekin af yfir 5.600 þeirra.
Íbúar Færeyja eru 52.337. Sýni hafa verið tekin af yfir 5.600 þeirra. Mynd: Úr safni

Í Færeyjum hafa 184 greinst með kór­ónu­veiruna en ekk­ert nýtt til­felli hefur greinst frá því 6. apríl eða í heila viku.

Enginn liggur nú á sjúkra­húsi í Færeyjum vegna COVID-19 og 163 Fær­ey­ingar hafa náð bata af sjúk­dómnum og eng­inn hefur lát­ist. Aðeins 21 virkt smit er því að finna á eyj­unum.

Fær­ey­ingar hafa verið mjög fram­ar­lega í sýna­tökum og hafa tekið yfir 5.600 sýni eða úr um 10 pró­sentum þjóð­ar­innar.

Árang­ur­inn er að miklu leyti rak­inn til eins manns. Dýra­lækn­is­ins Debes Christiansen nánar til tekið. Hann hóf að rann­saka sýni úr mönnum í stað laxa á rann­sókn­ar­stofu sinni og lagði þannig mikið af mörkum til bar­átt­unnar gegn kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Stjórn­völd hafa ákveðið að þann 20. apríl verði leik­skólar opn­aðir á ný og nem­endur fyrstu bekkja grunn­skóla munu einnig snúa aftur í skól­ann.

Dýra­lækn­ir­inn Christiansen, sem fer fyrir rann­sókn­ar­stofnun dýra­sjúk­dóma í Færeyjum, er með rann­sókn­ar­stofu í höf­uð­staðnum Þórshöfn. Strax í jan­úar var­aði hann heima­stjórn Færeyja við því að hin nýja kór­ónu­veira sem þá var farin að leika Kínverja grátt gæti orðið að heims­far­aldri. Færeyjar yrðu að vera undir það búnar.

Á rann­sókn­ar­stof­unni er aðal­lega unnið að rann­sóknum á veiru­sýk­ingum í laxi. Christiansen keypti nauð­syn­leg tæki og tól til að hægt yrði að rann­saka þar sýni úr mönnum.

Fær­ey­ingum hefur tek­ist að rekja hvert ein­asta smit sem þar hefur komið upp og ýmist sett fólk í ein­angrun eða sótt­kví, líkt og gert er hér á landi.

Christiansen segir í við­tali við breska blaðið Guardian að hægt væri að rann­saka þús­und sýni á dag á rann­sókn­ar­stof­unni í Þórshöfn ef þess gerð­ist þörf. Hann segir að það mörg sýni hafi verið tekin í Færeyjum að litlar líkur séu á því að sam­fé­lags­smit væri útbreitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár