Þórólfur: „Greinilegt að menn hafa slakað mjög, mjög á“

Sótt­varn­ar­læknir segir að almenn­ingur verði að taka sig taki og herða á per­sónu­legum sótt­vörnum. Hann segir ekki tíma­bært að ákveða hvenær næst verður slakað á fjölda­tak­mörk­unum eða hvenær opn­un­ar­tími skemmti­staða verði rýmk­aður.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Umfangs­mikil smitrakn­ing hefur átt sér stað síð­ustu daga vegna hóp­sýk­ingar sem upp kom fyrir um viku. Á fimmta hund­rað manns er í sótt­kví vegna fjög­urra smita sem greinst hafa síð­ustu daga.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir að hóp­sýk­ingin, þó að hún virð­ist lítil. Sé vís­bend­ing um að ástandið geti farið úr bönd­unum mjög hratt. Hann sagði nauð­syn­legt að læra af þess­ari reynslu og að skoða mögu­lega að setja fólk sem er að koma til lands­ins frá háá­hættu­svæðum í sótt­kví frekar en landamæra­skimun. Þá sé mögu­legt að Íslend­ingar verði frekar settir í sótt­kví við kom­una til lands­ins en útlend­ingar þar sem þeir eiga hér miklu víð­tækara tengsla­net.

„Við erum aðeins í öðrum leik núna en við vorum,“ sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag, um það sem er að ger­ast hér núna sam­an­borið við mars og apríl. Hann sagði að almenn­ingur væri ekki eins mót­tæki­legur fyrir umræð­unni um smit­varnir nú og hætt­unni sem er til staðar. „Við verðum að standa öll saman í því. Það var auð­veld­ara í byrjun mars að koma með þessi skila­boð.“

Hann brýndi fyrir fólki að ástandið yrði svona næstu mán­uði – hætta á hóp­sýk­ingu yrði fyrir hendi áfram.

Frá upp­hafi landamæra­skimunar þann 15. júní hafa rúm­lega 17 þús­und manns komið til lands­ins og um 12 þús­und verið skimaðir fyrir veirunni. Aðeins fjögur virk smit hafi greinst en nítján hafa greinst með gam­alt smit „og við höfum engar áhyggjur af“.

Sagði hann ánægju­legt að svo fáir hefðu greinst með veiruna.

[links]Hins vegar væri hóp­sýk­ingin sem kom upp hér á landi á dög­unum annað mál. Hann sagði mik­il­vægt að allir átt­uðu sig á því að ekk­ert í fari stúlkunnar sem kom hingað til lands með veiruna án þess að hafa hug­mynd um það, gefur til­efni til að ásaka hana.

Um 600 sýni hafa verið rann­sökuð í tengslum við hópsmitið. Fjórir hafa greinst með veiruna og yfir fjögur hund­ruð farið í sótt­kví. „Þetta dæmi sýnir að veiran er langt á frá horfin úr okkar lífi þó að lítið hafi borið á henni und­an­farið,“ sagði Þórólfur og benti á að mest hætta sé á því að hún dreif­ist inn­an­lands með Íslend­ingum.

Hann sagði hópsmitið „engan heimsendi“ enda varað við því lengi að til slíks gæti komið. „En það er full ástæða til að skerpa á nokkrum hlutum,“ sagði hann ákveð­inn. Íslend­ingar verði að sýna sér­staka gát við kom­una til lands­ins, jafn­vel þótt að nei­kvæð nið­ur­staða fáist úr landamæra­skimun. Þeir ættu að fara var­lega í tvær vikur eftir kom­una til lands­ins, forð­ast mann­marga staði, virða tveggja metra regl­una og ástunda per­sónu­legar sótt­varnir á borð við hand­þvott.

Sótt­varna­læknir segir að til skoð­unar sé hvort að setja eigi fólk sem er að koma frá háá­hættu­svæðum í nokkra daga sótt­kví við kom­una til lands­ins, líkt og áður var gert. Skoða þurfi hóp­sýk­ing­una sem upp er komin betur áður en ákvörðun um það verður tekin.

Hann segir ekki síður mik­il­vægt að allir lands­menn séu á varð­bergi. „Það er greini­legt að menn hafa slakað mjög, mjög á. Það er ekki gott og er áhyggju­efni. Það eru kjörað­stæður fyrir veiruna að ná sér á strik aftur ef hún á annað borð kemst inn í svona partí.“

Í ljósi þess­ara atburða sagði hann ekki hægt að segja til um hvenær fjölda­tak­mark­anir verða auknar úr 500 í 2.000 manns eins og hann hafði boðað að yrði gert um miðjan júlí. Þá sé ekki heldur fyr­ir­séð hvenær hægt verði að rýmka afgreiðslu­tíma skemmti­staða en þeim ber nú að loka kl. 23. Einnig benti hann á að ekki verði á næst­unni hægt að taka meira en 2.000 sýni úr komu­far­þegum.

Hér geta komið upp alvarlegar hópsýkingar

Ástæðan er sú, að sögn Þórólfs, að „við getum fengið hér alvar­legar hóp­sýk­ingar. Vonandi þurfum við ekki að stíga skref til baka og herða en það verður að koma í ljós. [...] Þó að bakslag hafi komið í far­ald­ur­inn held ég að við þurfum ekki að örvænta – með sam­hentu átaki og við­brögðum ráðum við við þetta. Það yrði tölu­vert áfall ef við þyrftum að herða [reglur] eftir allar þær fórnir sem við höfum þurft að færa á und­an­förnum mán­uðum.“

Íslensk yfir­völd hafa farið hraðar í aflétt­ingu ýmissa tak­mark­ana en mörg önnur lönd. „Það er hugs­an­legt að það komi í bakið á okkur. Ef upp koma fleiri hóp­sýk­ingar verður að bakka.“

Alma Möller land­læknir tók undir var­úð­ar­orð Þórólfs um að það þurfi að skerpa á upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings. „COVID-19 hefur marg­sannað hversu lúmskur hann er. [...] Neikvætt próf er ekki óyggj­andi.“

Tveggja metra reglan

Sagði hún heil­brigð­is­yf­ir­völd telja óþarft, eins og sakir standi, að fólk í áhættu­hópum fari í vernd­ar­sótt­kví. Hins vegar þurfi það fólk að fara sér­stak­lega var­lega og huga að per­sónu­legu hrein­læti, tveggja metra regl­unni og að forð­ast mann­marga staði. Það sama eigi við um aðstand­endur þessa fólks.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, var líkt og Alma og Þórólfur mjög ákveð­inn er hann ræddi um sótt­varn­irnar. Sagði hann m.a. að fólk yrði að virða það að það væri 500 manna sam­komu­bann í land­inu og að ef fólk væri að skipu­leggja við­burði fyrir fleiri og ekki væri hægt að koma upp hólfa­skipt­ingu sem úti­lok­aði blöndun hópa, þyrfti að skipu­leggja við­burð­inn með öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár