Smitið barst „án nokkurs vafa“ frá Bandaríkjunum

Uppruna kór­ónu­veirunnar, sem þrír Íslend­ingar smit­uð­ust af, má án „nokk­urs vafa“ rekja til Banda­ríkj­anna. Þetta er nið­ur­staða rað­grein­ingar á smit­unum sem Íslensk erfða­grein­ing hefur gert.

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Íslensk erfða­grein­ing hefur rað­greint þrjú ný kór­ónu­veirusmit sem stað­fest voru hér á landi í síð­ustu viku. Veiran er í öllum þremur er með sama mynstur og er það „án nokk­urs vafa frá Banda­ríkj­unum þannig að atburða­rásin var óyggj­andi“ eft­ir­far­andi: Fót­bolta­kona úr Breiða­bliki, sem fyrst af þessum þremur greind­ist með veiruna, smit­að­ist í Banda­ríkj­unum. Íslensk erfða­grein­ing telur ljóst að hún smit­að­ist af sam­býl­is­konu sinni en ekki sam­býl­is­konan af henni. Þetta megi ráða af því að fót­bolta­konan var með svo lítið magn af veirunni þegar hún kom til lands­ins að hún fannst ekki.

„Síðan fjölg­aði veiran sér í nef-og munn­holi hennar og hún varð smit­andi og smit­aði vin­kon­una og fót­bolta­mann­inn. Nú erum við að leita að fleirum sem kynnu að hafa smit­ast af þeim þremur,“ segir í grein Íslenskrar erfða­grein­ingar um málið. Þá kemur þar einnig fram að enn eitt smitið, sem talið er tengj­ast hinum þremur, hafi greinst í gær.

Í grein sem Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, skrifar og hefur birt á net­inu er atburða­rásin rakin með eft­ir­far­andi hætti: Ung kona íslensk kom til lands­ins frá Banda­ríkj­unum 17. júní og fór í skimun eftir „veirunni vondu“, SARS-CoV-2, og reynd­ist nei­kvæð á próf­inu; engin veira þar. Hún er fót­bolta­kona og spilar eins og stendur fyrir Breiða­blik og kom inn á í nokkrar mín­útur í leik gegn KR sem var háður þann 18. júní. Þann 20. júní fór hún í fjöl­menna útskrift­ar­veislu. Þann 21. júní eyddi hún tölu­verðum tíma með vin­konu sinni. Síðan spil­aði hún heilan leik með Breiða­blik þann 23. júní og að kvöldi þess dags fékk hún þær fréttir að kona sem hún deildi hús­næði með í Banda­ríkj­unum hefði smit­ast af veirunni. Hún fór því í veiru­próf síðla dags þann 24. júní og fékk þær fréttir að morgni þess 25. júní að hún væri „sneisa­full af veirunni,“ eins og það er orðað í grein­inni.

[adspot]

Í lok dags­ins í gær hafði verið ski­mað eftir veirunni í sex hund­rað manns sem höfðu verið í umhverfi kon­unnar frá því hún kom til lands­ins, sótt útskrift­ar­veisl­una, spilað með henni fót­bolta og svo fram­vegis. Í þessum hópi voru tveir með veiruna, vin­konan sem hún var með þann 21. júní og ungur fót­bolta­maður. Um það bil 300 manns voru settir í sótt­kví og eru þar enn. „Þetta leit út eins og smit sem hefði laumað sér inn í landið með konu sem var svo nýsmituð að veiran hafði ekki fengið tæki­færi til þess að fjölga sér að því marki að hún fynd­ist. Hún hafi svo smitað vin­konu sína þann 21. júní og fót­bolta­mann­inn í útskrift­ar­veisl­unni,“ segir í grein Kára.

[links]Þegar starfs­fólk ÍE ræddi við fót­bolta­mann­inn sagð­ist hann hafa verið las­inn af háls­bólgu í heila viku áður en hann fór í útskrift­ar­veisl­una og hann hefði smit­ast af for­eldrum sínum sem hefðu báðir verið lasnir af kvefi á undan honum. Hann kvaðst hafa þurran hósta og verk í berkjum. „Á þessu augna­bliki leit þetta út þannig að sá mögu­leiki væri fyrir hendi að fót­bolta­konan hefði smit­ast af fót­bolta­mann­inum sem hefði smit­ast af for­eldrum sínum,“ segir í sam­an­tekt ÍE. „Þessi mögu­leiki hlaut síðan tölu­verðan stuðn­ing af því að faðir hans mæld­ist með mótefni gegn SARS-CoV-2 sem móðir hans gerði hins vegar ekki. Það eru nefni­lega engar líkur á því að sá sem er með mótefni gegn veirunni hafi ekki smit­ast af henni.“

Þegar starfs­menn ÍE fengu sögu föð­ur­ins sagð­ist hann að öllum lík­indum hafa smit­ast þann 17. mars af nem­anda sínum. Hann sat við hlið­ina á nem­and­anum sem hafði nokkru áður smit­ast af veirunni á frægri kóræf­ingu þar sem fjöldi manns smit­að­ist. Hann hefði verið illa las­inn í fjórar vikur og oft reynt að kom­ast í skimun en ekki tek­ist. Við þessa vit­neskju fóru böndin aftur að ber­ast að Banda­ríkj­unum sem upp­sprettu sýk­ing­ar­innar.

End­an­legt svar fékk Íslensk erfða­grein­ing svo svo með því að rað­greina veiruna úr öllum þremur smit­uðu ein­stak­ling­unum; fót­bolta­kon­unni, fót­bolta­mann­inum og vin­kon­unni. „Það vill nefni­lega svo til að veiran bætir á sig stökk­breyt­ingum þegar hún flyst á milli ein­stak­linga og þótt stökk­breyt­inga­tíðni hennar sé ekki mikil er hún búin að smita í það minnsta 10 milljón manns í þessum heimi og því er úr nógu að velja. Stökk­breyt­ing­arnar rað­ast í mynstur sem verða hægt og hægt nokkuð ein­kenn­andi fyrir land­svæði.“

Veiran í öllum þremur er með sama mynstur „og er það án nokk­urs vafa frá Banda­ríkj­unum“.

Íslensk erfða­grein­ing hefur dregið af þessu nokkrar álykt­anir:

  • Það er ljóst að veiru­prófið er ekki full­komið og þessi saga „opin­berar einn af veik­leikum þess sem er að mjög snemma í sýk­ingu, áður en veiran er búin að ná almenni­lega fót­festu, er erfitt að finna hana,“ skrifar Kári.
  • Næmi prófs­ins er hins vegar tölu­vert meira en 70% og prófið „dugði okkur til þess að hemja fyrsta kap­ít­ula far­ald­urs­ins fljótar og betur en flestir.“
  • Skimun á landa­mærum minnkar hins vegar mjög lík­urnar á því að smit­andi ein­stak­lingar kom­ist inn í landið án þess að fara í ein­angrun. „Við höfum til þessa náð þremur og misst einn þannig að af okkar tak­mörk­uðu reynslu hefur skimunin fækkað til­fellum um 75%.“
  • Með því að taka góða sögu af sýktum ein­stak­lingum og beita víð­tækri skimun, smitrakn­ingu, mótefna­mæl­ingu og rað­grein­ingu er hægt að sækja nokkuð nákvæman skiln­ing á því sem er að ger­ast og bregð­ast við því.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár