„Þingmaðurinn ekki svo illa innrættur að hann skilji ekki áhyggjur fólks“

Brynjar Níelsson svarar yfir­lækni á COVID-göngu­deild­inni og segir að hann velti fyrir sér heild­ar­hags­munum til lengri tíma litið – og að það sé löngu tíma­bært að sú umræða sé tekin.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Þing­mað­ur­inn er ekki svo illa inn­rættur að hann skilji ekki áhyggjur fólks. En þing­mað­ur­inn er bara að velta fyrir sér heild­ar­hags­munum til lengri tíma litið. Löngu tíma­bært að sú umræða sé tekin og ekki viss um að rétt sé að þagga hana niður eins og grill­meist­arar reyna.“

Þetta skrifar Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á Facebook í dag en þarna svarar hann Ragnari Frey Ingv­ars­syni, umsjón­ar­lækni COVID-göngu­deild­ar­innar, en hann gagn­rýndi Brynjar harð­lega á Facebook í gær og spurði hvort það gæti verið að þing­mað­ur­inn ætti í erf­ið­leikum með að reikna.

Ragnar Freyr benti að í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins hefðu um 3.600 ein­stak­lingar smit­ast af veirunni hér á landi. Hann sagði í sam­tali við Kjarn­ann að það væri sú tala sem mótefna­mæl­ingar sem gerðar hafa verið bendi til. Í þeirri bylgju lögð­ust 115 inn á sjúkra­hús, 26 á gjör­gæslu og 10 lét­ust.

Hafði efasemdir um að þvingunaraðgerðir stjórnvalda ættu sér fullnægjandi lagastoð

Brynjar byrjar færslu sína á Facebook með því að segja að lands­þekktur grill­ari í lækna­stétt hafi tekið fram grill­spað­ann í gær til að grilla heimsku þing­manns­drusl­una. „Náði lækn­ir­inn slíkum hæðum í hroka að þing­mað­ur­inn, sem kallar nú ekki allt ömmu sína í þeim efnum, bliknar í sam­an­burð­inum. Vil byrja á að leið­rétta grill­ar­ann og lækn­inn með það að þing­mað­ur­inn vilji engar aðgerðir. Þing­mað­ur­inn velti því upp hvort svona íþyngj­andi og víð­tækar aðgerðir væru nauð­syn­legar og til góðs til lengri tíma fyrir líf og heilsu fólks. Svo hafði þing­mað­ur­inn efa­semdir um að allar þessar þving­un­ar­að­gerðir stjórn­valda ættu sér full­nægj­andi laga­stoð. Þing­mað­ur­inn, sem var fyrir sæmi­lega illa þokk­aður víða, hefur fengið yfir sig hol­skefl­una, ekki síst frá fólki sem telur mik­il­vægt fyrir lýð­ræðið að við tölum saman og skipt­umst á skoð­unum,“ skrifar Brynjar.

[links]Hann talar um sig í þriðju per­sónu og seg­ist vera nokkuð upp með sér að grill­lækn­ir­inn skyldi eyða tíma sínum í að skrifa um sig.

„Það er nú ekki svo að þing­mað­ur­inn sé svo hug­mynda­ríkur að koma fyrstur fram með þessar efa­semdir. Margir af helstu sér­fræð­ingum í smit­sjúk­dómum og alls konar lýð­heilsu­fræðum við bestu háskóla í heimi hafa miklu sterk­ari skoð­anir í þessa átt­ina en þing­mað­ur­inn. Hefði skilið svona færslu ef grill­lækn­ir­inn hefði beint orðum sínum að öðrum sér­fræð­ingum sem eru ann­arrar skoð­unar en hann í stað þing­manns­ins,“ skrifar hann.

Kannski nennir einhver að reikna út hve margir hafa dáið vegna þessara íþyngjandi aðgerða?

Brynjar segir að „grill­lækn­ir­inn“ hafi áhyggjur að því að hann skilji ekki tölur. „Hann byrjar á því að full­yrða að „fyrir hverja 1.000 smit­aða fáum við 32 inn­lagnir, 7 á gjör­gæslu og 3 deyja, að minnsta kosti. Síðan segir tal­naglöggi grill­ar­inn í næstu setn­ingu „að í þess­ari bylgju hafi um 1.000 smit­ast, 24 eru á sjúkra­húsi, 4 á gjör­gæslu og sem betur fer eng­inn dáið“. Þing­mað­ur­inn er ekki svo ótal­naglöggur að sjá ekki ósam­ræmi í þessum tölum grillar­ans.

En ótal­naglöggi þing­mað­ur­inn getur þó reiknað út að með sama áfram­haldi verður ekki hægt að leggja til jafn marga millj­arða í heil­brigð­is­kerfið og nú er gert. Meira segja þekktir grill­arar geta reiknað út hvað margir myndu deyja þá. Kannski nennir ein­hver síðar að reikna út hvað margir hafa dáið vegna þess­ara íþyngj­andi aðgerða, sem nú hafa staðið lengi yfir,“ skrifar hann.

Brynjar leggur til í lokin af stjórn­völd flytji inn sér­fræð­inga frá Norður-Kóreu til aðstoðar. Þeir viti örugg­lega hvernig eigi að loka löndum og allri starf­semi, svo vel sé. Honum skilst að dán­ar­tíðni þar sé mjög lítil og svo hafi verið lengi og löngu fyrir tíma COVID.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár