„Forkastanlegt að aðili með svona viðhorf gegni þessari stöðu“

Lista­fólkið Libia Castro og Ólafur Ólafsson hafa bent rík­is­sak­sókn­ara á for­dóma­full ummæli vara­rík­is­sak­sókn­ara í garð lista­fólks í kjöl­far þess að sak­sókn­ari hóf skoðun á öðrum ummælum vara­rík­is­sak­sókn­ar­ans sem snúa að sam­kyn­hneigðum hæl­is­leit­endum.

Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, listafólkið Ólafur Ólafsson og Libia Castro og Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari.
Sigríður Frið­jóns­dóttir, rík­is­sak­sókn­ari, lista­fólkið Ólafur Ólafsson og Libia Castro og Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari. Mynd: Samsett/Kjarninn

Libia Castro og Ólafur Ólafsson hafa sent Sigríði Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ara erindi þar sem þau benda á ummæli Helga Magnúsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara sem þau telja for­dóma­full í garð lista­fólks. Ummælin birti Helgi Magnús í færslu á Facebook-síðu sinni sem sjá má neðar í frétt­inni. Þau Libia og Ólafur ákváðu að senda Sigríði póst eftir að hafa heyrt af því að hún hefði hafið skoðun á nýlegum ummælum Helga Magnúsar sem hann við­hafði á Facebook-síðu sinni og sneru að sam­kyn­hneigðum hæl­is­leit­endum. Að því er fram kemur í frétt á vef RÚV ákvað Sigríður að hefja skoðun á mál­inu að sínu frum­kvæði.

„Í ljósi upp­lýs­inga um að hún hefði verið að hefja rann­sókn á þessu máli, í fram­haldi af ummælum Helga, þá vildum við koma þessum upp­lýs­ingum á fram­færi við hana,“ segir Ólafur í sam­tali við Kjarnann og bætir því við að þau Libia hafi fengið stað­fest­ingu á mót­töku erind­is­ins.

Í erindi þeirra Libiu og Ólafs segir að ummælin sem hann við­hafði um verk þeirra sem sett hafði verið upp í tengslum við sýn­ing­una Töfra­fundur – ára­tug síðar í Hafn­ar­borg hafi verið „að okkar mati, líkt og nýleg ummæli hans um sam­kyn­hneigða hæl­is­leit­endur, full for­dóma, van­virð­ingar og fyr­ir­litn­ingar og ættu að okkar mati ekki að líð­ast, án afleið­inga, starfs­manni í hans stöðu.“

Segir eðli verksins einnig skipta máli

„Hann hefur verið að ráð­ast gegn inn­flytj­endum og sam­kyn­hneigðum og hópum sem hafa verið og eru í minni­hluta eða í erf­iðri aðstöðu,“ segir Ólafur í sam­tali við Kjarnann. „Við vildum koma þessum ummælum á fram­færi við hana líka því hún er að rann­saka hans mál, svo hún vissi líka hvernig hann hefur verið að ráð­ast gegn mynd­list og lista­fólki. Það er for­kast­an­legt að aðili með svona við­horf gegni þess­ari stöðu, svona valda­mik­illi og mik­il­vægri stöðu sem maður ætlar að sé staða sem eigi að gæta hlut­leysis og geta vegið og metið aðstæður.“ [links]

Að sögn Ólafs skiptir það líka máli hvers eðlis lista­verkið var. „Þarna skiptir inn­tak lista­verks­ins líka máli, því við erum að tala um lista­verk sem er hluti af stærri við­burði sem fjallar um nýju stjórn­ar­skrána, mál sem er og hefur verið beitt þöggun. Þetta er hluti af þeirri þöggun.“

Verkið sem um ræðir var eins og áður sagði hluti af sýn­ingu í Hafn­ar­borg í Hafn­ar­firði. Verkið var hengt upp á gafl húss Hafn­ar­borgar en það svo fjar­lægt að beiðni bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar Rósu Guð­bjarts­dóttur. Verkið rataði aftur upp á gafl húss­ins að nokkrum dögum liðnum.

„Fátt annað á netinu eftir hann nema fordómar og vitleysa“

Í umræddri færslu deildi Helgi Magnús frétt Vísis um málið og sagði verkið „eitt­hvert krafs á dúk“ sem væri til ama. „Svo mætir ein­hver mann­vits­brekkan af ein­hverjum fjöl­miðl­inum og rekur míkra­fón upp í and­litið á þeim og fer að ræða þessa aðför að list­sköpun þess­ara greyja. Auðvitað veit þetta frétta­séni að þetta er bara krafs á dúk, en vill ekki að fólk haldi að það þekki ekki list þegar það sér hana,“ rit­aði Helgi.

Af orðum hans má skilja að honum hafi ekki þótt mikið til lista­verks þeirra Libiu og Ólafs koma. „Eru engin tak­mörk fyrir því bulli sem hægt er að veifa í nafni lista. Hvað verður það næst kannski ein­hver ótót­legur feitur kauði nak­inn í stóru fiska­búri að fitla við sig og skíta í dollu. Eða er búið að mjólka það,“ rit­aði Helgi Magnús.

Líkt og áður segir var það athugun rík­is­sak­sókn­ara á nýlegum ummælum Helga Magnúsar sem rak þau Libiu og Ólaf af stað með erindi sitt. „Ég vissi ekk­ert hver þessi maður var þá.“ segir Ólafur um Helga Magnús og vísar til þess tíma þegar Helgi deildi færsl­unni um lista­verkið. „En ég googlaði hann og sá að það var fátt annað á net­inu eftir hann nema for­dómar og vit­leysa. Núna þegar þetta kemur fram þá hugs­aði ég: „Við förum ekk­ert að sitja á þessu.“,“ segir Ólafur sem einnig deildi færslu Helga Magnúsar frá því í fyrra á Facebook-síðu sinni.

Ummælin alvarleg, „sérstaklega komandi frá handhafa ákæruvaldsins“

Ummælin sem Helgi lét falla á sam­fé­lags­miðlum fyrir helgi hafa vakið óhug hjá mörgum, en Helgi sagði hæl­is­leit­endur „auð­vitað ljúga“ um kyn­hneigð sína og spurði einnig hvort ekki væri nú þegar nóg af hommum á Íslandi. Helgi Magnús hefur eytt ummælum sínum.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur gagn­rýnt ummæli Helga Magnúsar en vísað á rík­is­sak­sókn­ara er varðar ábyrgð á mál­inu.

Það hefur Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir þing­maður Við­reisnar gagn­rýnt en í færslu á Facebook-síðu sinni segir hún að í krafti stjórn­un­ar- og eft­ir­lits­heim­ilda sinna geti dóms­mála­ráð­herra kallað eftir því að aga­við­ur­lögum verði beitt. Í færslu sinni sagði Þor­gerður Katrín að Helgi Magnús sendi mjög hættu­leg skila­boð út til sam­fé­lags­ins með ummælum sínum. „Svona ummæli eru alvar­leg. Sér­stak­lega kom­andi frá hand­hafa ákæru­valds­ins. Orðræðan hefur félags­mót­andi áhrif og hat­urs­full orð geta gert mik­inn skaða,“ ritar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár