Fyrsta innanlandssmitið frá því um miðjan maí

Tvö til­felli af COVID-19 stað­fest á tveimur dögum og áætlað að yfir 200 manns þurfi að fara í sótt­kví. Málið er með­höndlað sem hugs­an­leg hóp­sýk­ing á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Tvö til­felli hafa nú verið stað­fest inn­an­lands af COVID-19, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum. Annað þeirra er upp­runnið erlendis og greind­ist í gær en hitt var greint í morgun og er þar um að ræða inn­an­lands­smit.

Það er í fyrsta sinn sem slíkt smit, sem verður innan landamæra Íslands, er greint frá því um miðjan maí­mánuð.

Almanna­varnir segja að áætlað sé að yfir 200 manns þurfi að fara í sótt­kví vegna smit­anna. Unnið er að smitrakn­ingu og er málið með­höndlað sem hugs­an­leg hóp­sýk­ing á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

[adspot]Í til­kynn­ingu Almanna­varna segir að unnið sé sam­kvæmt sams konar verk­lagi og gert var þegar hóp­sýk­ingar áttu sér stað í Vest­manna­eyjum, Bol­ung­ar­vík og á Hvamms­tanga. „Í und­ir­bún­ingi er skimun á mjög stórum hópi fólks sem teng­ist mál­inu í sam­starfi við heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Íslenska erfða­grein­ingu.“

Í gær var sagt frá því að íslensk knatt­spyrnu­kona, sem leikur með Breiða­blik í efstu deild, hefði greinst með jákvætt sýni í COVID-19 sýna­töku. Hún kom til lands­ins 17. júní og reynd­ist sýna­taka á landa­mærum nei­kvæð. Síðar kom í ljós að hún hafði verið í nánd við smit­aðan ein­stak­ling erlendis og fór því aftur í sýna­töku. Sú sýna­taka reynd­ist jákvæð.

Í til­kynn­ingu frá Almanna­vörnum sem birt var í gær sagði að knatt­spyrnu­konun væri sem stendur ein­kenna­laus. „Allir sem hafa verið útsettir fyrir smiti í sam­skiptum við hana síð­ast­liðna tvo sól­ar­hringa þurfa að fara í sótt­kví í 14 daga. Smitrakn­ing er í gangi en ljóst er að margir þurfa að fara í sótt­kví.“

RÚV greindi frá því í gær­kvöldi að allir leik­menn Breiða­bliks og þjálf­arateymi liðs­ins verða í sótt­kví í 14 daga. Breiða­blik mætti KR í deild­inni í vik­unni og leik­manna­hópur KR mun einnig fara í sótt­kví. Frekari smitrakn­ing er í gangi. 

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) greindi frá því í dag að alls fimm leikjum hafi verið frestað vegna máls­ins. Þeir eru:

30. júní kl. 19.15 Þróttur R – Breiða­blik
1. júlí kl. 19.15 KR – FH

6. júlí kl. 18.00 Breiða­blik – Þór/KA
6. júlí kl. 19.15 Selfoss - KR

26. júní kl. 19:15 Augna­blik - Völs­ungur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár