Bankasýslan ætlar að funda með Íslandsbanka vegna Borgunar

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Borgun hafi ekki upp­fyllt kröfur laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti. Málinu hefur einnig verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara. Banka­sýsla rík­is­ins ætlar að funda með Íslands­banka vegna máls­ins.

Jón Gunnar Jónsson er forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Jón Gunnar Jónsson er for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. Mynd: Úr safni

Stjórn­endur Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka, munu funda með for­svars­mönnum Íslands­banka um mál­efni Borgunar í náinni fram­tíð. Sá fundur mun fara fram þegar færslu­hirð­ing­ar­fyr­ir­tækið, sem er í 63,5 pró­sent eigu Íslands­banka, hefur útskýrt athugun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á starf­semi þess fyrir stjórn­endum Íslands­banka. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið beindi hins vegar fyr­ir­spurn Kjarnans um álit þess á mál­efnum Borgunar til Banka­sýsl­unnar.

Kjarninn greindi frá því fyrir viku að Fjár­­­mála­eft­ir­litið hefði kom­ist að þeirri nið­­­ur­­­stöðu, eftir athugun sem stóð í um níu mán­uði, að fram­­­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borg­unar í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­­­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­­­ins erlendis upp­­­­­fylli ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lög­­­­­um. Borgun voru gefnir tveir mán­uðir til að ljúka úrbótum vegna athuga­­­semda eft­ir­lits­ins. Auk þess var mál­inu vísað til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara síð­ast­lið­inn mánu­dag, þar sem grunur leikur á um sak­næmt athæfi sem við liggur refs­ing sam­kvæmt lögum.

Viðskipti sem geta leitt af sér orðsporsáhættu

Borgun hefur verið að færa skarpt út kví­arnar á öðrum mörk­uðum en þeim íslenska á síð­ustu árum. Á meðal þeirra landa sem fyr­ir­tækið hefur aukið mjög hlut­deild sína í færslu­hirð­ingu eru Bret­land, Ung­verja­land og Tékk­land. Kjarninn hefur fengið það stað­fest að á meðal þeirra við­skipta­vina sem Borgun hefur tekið að sér að þjón­usta séu aðilar sem selji aðgang að klámi, fjár­hættu­spilum eða selji lyf á net­inu. Allt eru þetta athæfi sem er ólög­legt að stunda á Íslandi en Borgun er hins vegar frjálst að veita stoð­þjón­ustu gagn­vart í öðrum löndum, að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Slíkum við­skiptum fylgir þó mikil orð­spors­á­hætta.

Borgun sendi frá sér yfir­lýs­ingu á mið­viku­dag þar sem fyr­ir­tækið segir að það telji sig hafa farið að lögum og fram­kvæmt áreið­an­leikakann­anir á við­skipta­vinum sam­kvæmt verk­lags­hefð á Evrópska efna­hags­svæð­inu. Þar hafn­aði Borgun því einnig að stór­aukin umsvif Borgunar í öðrum löndum tengd­ust vafasömum við­skiptum sem önnur korta­fyr­ir­tæki vildu ekki sinna. Í yfir­lýs­ing­unni var því hins vegar ekki hafnað að Borgun hafi tekið að sér slík við­skipti, heldur ein­ungis sagt að hin stór­auknu umsvif væru ekki vegna þeirra.

Ríkið á bankann sem á Borgun

Borgun er í 63,5 pró­sent eigu Íslands­banka sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins. Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem fer með eignir rík­is­ins, um mál­efni Borgunar. Þar var m.a. spurt um hvort ráðu­neytið hafi látið kanna starf­semi Borgunar í kjöl­far athug­unar Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, hvort ráðu­neytið hafi skoðun á því að fyr­ir­tæki í óbeinni eigu rík­is­ins stundi færslu­hirð­ingu fyrir fyr­ir­tæki sem selji aðgang að klám­síðum, veð­mála­starf­semi og lyf­sölu á net­inu og hvort ráðu­neytið ætli að bregð­ast við þeirri stöðu sem upp sé komin með ein­hverjum hætti.

Ráðu­neytið svar­aði fyr­ir­spurn­inni ekki efn­is­lega heldur vís­aði henni til Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hluti rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, segir í svari til Kjarnans að stofn­unin hafi fengið það stað­fest hjá Íslands­banka að bank­inn hafi spurst fyrir um málið. „Um leið og Íslands­banki hefur fengið svör við fyr­ir­spurn sinni munum við funda með honum um málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár